Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - nov. 2018, Side 44

Læknablaðið - nov. 2018, Side 44
524 LÆKNAblaðið 2018/104 Athugasemdir við ritstjórnargrein Magnúsar Gottfreðssonar í 10. tbl. 104 árg. Læknablaðsins 2018: „Aldarafmæli spænsku veikinnar og viðbrögð við skæðum farsóttum á 21. öld“ Í ritstjórnargrein Magnúsar Gottfreðsson­ ar í 10. tbl. 104. árgangs Læknablaðsins 2018 um spænsku veikina hér á landi er skil­ merkilega sagt frá því hversu alvarlegur faraldurinn var hér á landi á árinu 1918. Í lok greinarinnar lætur Magnús hins vegar að því liggja að viðbúnaður í dag hér á landi gegn slíkum ógnum sé lítill sem enginn og að það megi helst rekja til þess að aðbúnaður/viðbúnaður á Landspítala sé slæmur. Rétt er að upplýsa lesendur Lækna- blaðsins um að mikil vinna hefur verið innt af hendi á undanförnum árum af sóttvarnalækni og almannavarnadeild rík­ islögreglustjóra í samvinnu við ýmsa aðila í þjóðfélaginu við gerð viðbragðsáætlunar gegn heimsfaraldri inflúensu. Slíkri áætl­ un er ætlað að auka viðbragðsþol sam­ félagsins sem mest þegar næsti faraldur skellur á. Fjölmargir aðilar hafa komið að áætluninni og var síðasta útgáfa gefin út á árinu 2016. Mikilvægt er að hafa í huga að við­ brögð við alvarlegum farsóttum í fram­ tíðinni er ekki bara hægt að dæma út frá aðbúnaði á Landspítala heldur einnig þeim viðbrögðum sem áætluð eru á öðr­ um heilbrigðisstofnunum og í samfélaginu öllu. Landspítali mun vissulega gegna mikilvægu hlutverki þegar næsti heims­ faraldur inflúensu ríður yfir og mikilvægt að styrkja og bæta allan aðbúnað þar sem mest en aðbúnaður og samfélagsleg viðbrögð eru ekki síður mikilvæg. Í þessu tilliti er einnig rétt að árétta að hér á landi eru til birgðir af nauðsynlegum lyfjum og vökva til þriggja til fjögurra mánaða, veirulyf fyrir 40.000 manns, miklar birgðir af hlífðarbúnaði og bóluefni hefur ver­ ið tryggt fyrir að minnsta kosti 150.000 manns. Það er því ekki hægt að taka undir með Magnúsi að hér sé takmarkað birgða­ hald af lífsnauðsynlegum lyfjum og að Íslendingar séu illa búnir undir heimsfar­ aldur inflúensu. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir Sefitude — ný meðferð við kvíða og svefntruflunum Sefitude er viðurkennt jurtalyf unnið úr rót garðabrúðu. Styttir tímann til að sofna og bætir gæði svefns. Klínískar rannsóknir sýna sambærilega virkni garðabrúðurótar og lágskammta oxazepam en garðabrúðurót þolist mun betur.* *Ziegler G. et al. (2002). Eur. J. Med. Res. 7(11), 480–6. Fæst án lyfseðils í næsta apóteki Sjá meira á florealis.is Notkun Við vægum kvíða: fullorðnir, 1 tafla á dag allt að 3 á dag. 12–18 ára: 1 tafla á dag allt að 2 á dag. Við svefntruflunum: fullorðnir og eldri en 12 ára: 1 tafla ½–1 klukkustund fyrir svefn. Ekki ráðlagt börnum yngri en 12 ára, þunguðum konum eða konum með börn á brjósti. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun. Leitið læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.