Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - nóv. 2018, Blaðsíða 45

Læknablaðið - nóv. 2018, Blaðsíða 45
LÆKNAblaðið 2018/104 525 Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir skrifar sérstaka athugasemd við leiðar­ ann „Aldarafmæli spænsku veikinnar og viðbrögð við skæðum farsóttum á 21. öld“ sem birtist í októberhefti Læknablaðsins.1 Það er ánægjulegt að þessi stuttu skrif mín hafi vakið athygli sóttvarnalæknis. Það er þó nauðsynlegt í málefnalegum skoðanaskiptum að rétt sé eftir manni haft. Í athugasemdum sínum hér í blaðinu og á heimasíðu Embættisins leggur hann undirrituðum fyrst orð í munn en beinir síðan athugasemdum sínum (og „leið­ réttingum“ eins og það er orðað á heima­ síðu Embættisins) að eigin orðum: Hann segir að ég „láti að því liggja að viðbúnað­ ur í dag hér á landi sé lítill sem enginn“. Þetta er rangt. Ég skrifaði hins vegar að við séum „furðulega illa undir slíka vágesti búin í margvíslegu tilliti“. Þetta eru ekki fullyrðingar sem leggja má að jöfnu. Í framhaldi af þessu telur sóttvarna­ læknir upp nokkur mikilvæg atriði úr viðbragðsáætlun gegn heimsfaraldri in­ flúensu sem endurskoðuð var 2016. Mér er ljúft að segja það hér að ég hef gott eitt að segja um viðbragðsáætlunina og geri hvergi lítið úr henni. Leiðarinn fjallar þó ekki aðeins um inflúensu heldur einnig skæða smitsjúkdóma, til dæmis Ebola eins og ljóslega má sjá af yfirskrift hans og efni. Fullnægjandi aðstaða til að taka á móti slíkum sjúklingum á Landspítala er ein­ faldlega ekki til staðar, enda þótt starfsfólk hafi reynt að gera eins gott úr stöðunni og kostur er í síðasta stóra faraldri.2 Í annan stað ýja ég að þeirri spurningu hversu vel Landspítali, þar sem langflest­ um af veikustu sjúklingum landsins er sinnt í dag, sé fær um að takast á við við­ bótarálag þegar spítalinn er á viðbúnaðar­ stigi langtímum saman, jafnvel í venjulegu árferði þegar engin óvenjuleg veikindi eru á sveimi í þjóðfélaginu. Í þriðja lagi liggur það í eðli skæðra sýkinga að oft þurfa sjúklingar á einangr­ un og gjörgæslumeðferð að halda. Ísland er meðal þeirra landa í Evrópu sem hafa hlutfallslega fæst gjörgæslurúm.3 Ætti þessu ekki að vera öfugt farið í fámennu eyríki (með einna hæstu þjóðartekjur á mann í heimi) sem ekki getur leitað yfir landamærin með aðstoð og sjúkraflutn­ inga þegar þörfin er brýnust? Reynslan á Íslandi af síðasta heimsfaraldri inflúensu 2009 sýnir að af þeim sem lögðust inn á sjúkrahús þurfti hátt hlutfall meðferð á gjörgæslu.4 Þrátt fyrir þetta hefur rúmum á gjörgæsludeildum hérlendis fækkað frá þeim tíma og þar skortir mannskap eins og víðar.3 Í leiðara mínum voru lyf einnig nefnd til sögunnar: „Aðrir veikleikar hjá okkur lúta að takmörkuðu birgðahaldi margra helstu nauðsynja og má þar nefna bæði lífsnauðsynleg lyf og ýmsa einnota hluti sem notaðir eru í meðferð fjölveikra.“ Hér er undirritaður að vísa til þess að reynslan af Ebolafaraldrin­ um sem hófst árið 2014 sýnir að veruleg töf (hálft ár) getur skapast á að fá ýmiss konar búnað þegar margar þjóðir eru samtímis um hituna.2 Það er ekki alltaf augljóst eða fyrirsjáanlegt hvaða búnað þarf næst. Hvað lyfin varðar eru fylgisýkingar af völdum baktería algengar í sjúklingum með inflúensu. Læknar hafa oft mátt búa við það undanfarin ár að hafa ekki aðgang að mjög mikilvægum sýklalyfjum handa skjólstæðingum sínum, jafnvel vikum og mánuðum saman. Sem dæmi má nefna kloxacillín, trimetoprím­sulfametoxazól og nítrófúrantoín, ­ allt algeng og mikilvæg lyf. Sá skortur er viðbragðsáætlun gegn heimsfaraldri óviðkomandi eftir því sem ég best veit, en jafnraunverulegur fyrir sjúklinga engu að síður og því gerður að umtalsefni. Vonandi verður þetta aldarafmæli hörmunganna frá 1918 okkur hvatning til að bæta þá umgjörð sem bæta þarf. Magnús Gottfreðsson ritstjóri Læknablaðsins Heimildir 1. Gottfreðsson M. Aldarafmæli spænsku veikinnar og við­ brögð við skæðum farsóttum á 21. öld. Læknablaðið 2018; 104: 435. 2. Guðlaugsson Ó, Elfarsdóttir Á, Helgadóttir H, Guðmundsson. Landspítalinn og ebóla, lærdómur og framtíðin. Læknablaðið 2016; 102: 306­9. 3. Kárason S. Tólf gjörgæslurúm á Landspítala ­ dugar það til? Læknablaðið 2018; 104: 333. 4. Sigurðsson GH, Möller AD, Kristinsson B, Guðlaugsson Ó, Kárason S, Sigurðsson SE, et al. Gjörgæslusjúklingar með inflúensu A (H1N1) á Íslandi 2009. Læknablaðið 2010; 96: 83­90. Furðulega illa undir búin í margvíslegu tilliti – svar við athugasemd sóttvarnalæknis Lyflæknaþing 2018 XXIII þing Félags íslenskra lyflækna verður haldið í Hörpu 30. nóvember -1. desember næstkomandi. Dagskrá þingsins, sem er fjölbreytt að vanda, er að finna á fésbókarsíðu Félags íslenskra lyflækna og á vef Athyglisráðstefna (athygliradstefnur.is)

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.