Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Nov 2018, Page 47

Læknablaðið - Nov 2018, Page 47
LÆKNAblaðið 2018/104 527 Staða læknis við Heilbrigðisstofnun Vesturlands í Borgarnesi Á Heilsugæslustöðinni í Borgarnesi fer fram fjölbreytt starfsemi en auk almennrar heilsugæsluþjónustu eins og móttöku, ung- barnaverndar, skólaheilsugæslu og mæðraverndar er þar teym- isvinna í kring um vaktþjónustu að deginum, sykursýkismóttöku og lífsstílsmóttöku. Upptökusvæði stöðvarinnar er víðfeðmt og nær yfir 5500 ferkílómetra svæði. Þar eru u.þ.b 4000 íbúar auk tveggja háskóla með nemendagörðum og ríflega 2000 sumar- bústaða. Helstu verkefni og ábyrgð Lögð er áhersla á faglegan metnað, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Hæfnikröfur Íslenskt lækningaleyfi er skilyrði og sérfræðiviðurkenning í heimilislækningum er æskileg. Góðrar íslenskukunnáttu er krafist. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum sem ekki teljast uppfylla framangreind skilyrði. Frekari upplýsingar um starfið Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efna- hagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert. Starfshlutfall er 100% en hægt að semja um annað, sem og vaktbyrði. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf og vísinda- og rannsóknarstörf ásamt staðfestu afriti af opinberu starfsleyfi. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast til yfirlæknis heilsugæslustöðvarinnar í Borgarnesi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Borgarnes er góður staður til að búa á, stutt í mikla náttúrufeg- urð, mannlíf gott og starfsandi á stöðinni góður. Húsnæði í boði á staðnum. Umsóknarfrestur er til og með 15.11.2018 Nánari upplýsingar veita Linda Kristjánsdóttir - linda.kristjansdottir@hve.is - 432-1430 Þórir Bergmundsson - thorir.bergmundsson@hve.is - 432-1000

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.