Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - nov 2018, Qupperneq 32

Læknablaðið - nov 2018, Qupperneq 32
512 LÆKNAblaðið 2018/104 ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Nýr forseti Alþjóðalæknafélagsins, Leonid Eidelman, vonast til þess að þjóðum innan vébanda þess fjölgi á næstu misserum. Hann vill sjá araba og múslíma verða meira áberandi innan félagsins. Eidelman er þriðji Ísraelinn sem stýrir félaginu og tók við stjórnartaumunum á aðalfundi þess sem haldinn var í Hörpu. Skortur á læknum og kulnum ráða ríkjum þetta ár hans í embætti. „Gullfallegt land. Ég var hér á ferðalagi fyrir tveimur árum og naut þess virkilega vel,“ segir Leonid Eidelman sem leiðir Alþjóðalæknafélagið, World Medical Association, WMA, næsta árið. „Ég hef lítið annað séð en Hörpu í þessari ferð en í þeirri síðustu fórum við fjölskyldan víða um og fengum góða leiðsögn alvöru vík­ ings. Hann var umhverfissinnaður og fékk mig til að dást að landi og þjóð. Ég dáist að því hvernig svona fámenn þjóð getur haldið uppi nútímasamfélagi – með öllu sem því fylgir og náð árangri.“ Eidelman settist niður með Læknablað- inu milli fundarseta í Hörpu. Úti rigndi en sólin skein þó í gegnum regnið þegar við tylltum okkur niður úr augsýn annarra ráðstefnugesta á Smurstöðinni á fyrstu hæð glæsilega tónleikahússins. Eidelman segir einnig magnað að finna kraftinn í Læknafélagi Íslands. „Það heldur úti fagtímariti á íslenskri tungu. Þótt við höfum haft læknatímarit á hebresku í rúm 90 ár er stöðug pressa, og var á mér, að gefa ekki út tímarit sem næði ekki til stærri hóps. Við höfum jú ekki milljónir lækna í Ísrael og afar erfitt að halda fast í þjóðleg gildi og þýðingu hugtaka gegn efnahagslegum þrýstingi. En hér á Íslandi ætti verkið að vera enn erfiðara, enda íslenskir læknar rétt um 1000. Það er ekki annað hægt en að dást að þessari elju.“ Samkvæmt Wikipedia eru um 35.000 læknar í Ísrael. Til Ísraels á níunda áratugnum Eidelman flutti á fertugsaldri til landsins helga. „Þegar ég flutti frá Eistlandi árið 1987 átti ég ekki von á því að svo miklar breytingar væru þar í vændum. Það var stutt í sögulega tíma þegar ég flutti en ég sá þá ekki fyrir,“ segir hann. „Þegar ég fór var ég svo viss um að Sovétríkin í öllu sínu veldi yrðu eilíf. Ég var ekki mikill spámaður,“ segir hann og hlær. Fyrirkomulagið hjá Alþjóðalækna­ félaginu er að menn gegna fyrst ársstöðu sem viðtakandi forseti (President-Elect) og verja svo ári sem fráfarandi forseti (Immediate Past President) eftir að forseta­ árinu er lokið. Því er um þriggja ára setu að ræða sem leiðtogi innan félagsins. Eidelman segir að 140 félög séu innan vé­ banda Alþjóðalæknafélagsins. „Það eru um 10 milljónir lækna um allan heim í félaginu. Við erum talsmenn þessara lækna og viljum að þeir viti að við stöndum með þeim sem starfa í samræmi við gott siðgæði. Við höfum ákveðið að gefa fleiri þjóðum tækifæri til þess að ganga til liðs við félagið. Ég vona að araba­ og múslímaþjóðir – lönd við Miðjarðarhafið og Mið­Austurlönd – sem standa utan félagsins, gangi í það,“ segir hann. Eidelman er lærður svæfinga­ og bráða­ læknir og kenndi meðal annars á árum áður í læknisfræði við hebreska háskólann Hadassah Medical School í Jerúsalem. Hann var yfirmaður svæfingadeildarinnar í Rabin Medical Center­Beilinson Campus í Petah Tikva þar í landi þegar hann var kosinn í fyrra og hefur verið formaður ísraelska læknafélagsins. Kulnun ógni læknum Eidelman vill meðal annars sem forseti fara ofan í kjölinn á framtíðarhlutverki lækna í samfélaginu. „Mun það breytast og þá hvernig? Ég trúi því að með því að kafa ofan í þetta mál getum við komið í veg fyrir neikvæða þróun, sérstaklega ef við vinnum að því að forða læknum frá kulnun,“ segir hann. „Margar rannsóknir sýna að allt að helmingur lækna upplifir skerta starfs­ orku og við vitum að læknar sem þjást af kulnum veita ekki jafn góða læknisþjón­ ustu. Við ættum því að reyna að gefa þeim áþreifanlegar leiðbeiningar um hvernig þeir forðast hana; og að skaðast á líkama og sál,“ segir hann. „Kulnun er heimsfaraldur í nútímasamfélögum“ Þetta segir Leonid Eidelman, nýr forseti Alþjóðalæknafélagsins. Hann tók við keflinu í Hörpu á aðalfundi félagsins sem haldinn var í fyrsta sinn hér á landi „Margir læknar fara snemma á eftirlaun. Reyndustu læknarnir hætta störfum því þeir hafa ekki kraft til að halda áfram; hafa misst þrautseigj- una. Kulnun er heimsfaraldur í nútímasamfélögum.“

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.