Læknablaðið - Nov 2019, Page 21
LÆKNAblaðið 2019/105 493
R A N N S Ó K N
Tölfræðiúrvinnsla
Gögn voru greind með tölfræðiforritinu R (útgáfa 3.5.1) með
vött/kg á þolprófi sem útkomu. Lýsandi niðurstöður fyrir meðal
hlutfallslega breytingu voru reiknaðar sem margfeldismeðaltal
(geometric mean). Meðal hlutfallsleg breyting miðað við skýribreyt-
ur var metin með almennum línulegum líkönum með logra-tengi-
falli fyrir endurteknar mælingar. Það líkan skilar náttúrulega
logranum af væntigildi. Með því að varpa til baka með veldisfall-
inu verður mismunur tveggja logra af væntigildum að hlutfalls-
legum mun. Kyn var skráð sem karl eða kona. Aldurshópar voru
36-64 ára og 65-83 ára, útstreymisbroti hjarta var skipt í undir
40% annars vegar og hins vegar 40% og hærra. Gert var ráð fyrir
að þjálfunin væri stunduð þrisvar sinnum í viku. Ástundun var
flokkuð í tvennt: þeir sem mættu oftar en tvisvar sinnum og þeir
sem mættu tvisvar eða sjaldnar. Víxlhrif voru notuð í líkaninu til
að meta hvort hlutfallsleg breyting í afkastagetu væri mismunandi
eftir aldurshópum, útstreymisbroti hjarta og ástundun.
Niðurstöður
Niðurstöður frá 76 skjólstæðingum, 69 körlum (91%) og 7 konum
(9%), voru nýttar til greiningar. Lýðfræðilegar upplýsingar má sjá í
töflu I. Mælingar sem lágu fyrir voru: hæð, þyngd, líkamsþyngdar-
stuðull (kg/m2), útstreymisbrot hjarta (%), líkamleg afkastageta
(w/kg), hámarksafl (vött), blóðþrýstingur (mmHg) og púls (slög pr/
mínútu) úr þolprófi. Meðalaldur var 64 ár, aldursspönn karla var
36-83 ár en kvenna 54-79 ár (tafla I). Þjálfunartímabil var að með-
altali 8 vikur með spönn 5-15 vikur. Fjöldi þjálfunartíma var að
meðaltali 18 með spönn 11-32 skipti.
Meðalaukning á afkastagetu (w/kg) var 16% (p<0,001; öryggis-
bil 13-18%). Eldri aldurshópurinn bætti sig um 19% (öryggis-
bil 15-23%) og yngri um 12% (öryggisbil 9-16%) (mynd 1). Eldri
aldurshópurinn bætti sig tölfræðilega marktækt meira en sá yngri
(p=0,015) (mynd 1). Meðal afkastagetu við upphafsmælingu, loka-
mælingu og eftir skiptingu þátttakenda í yngri (36-64 ára) og eldri
(65-83 ára) aldurshóp er að finna í töflu II fyrir hópinn í heild og
bæði kyn.
Afkastageta (w/kg) var greind miðað við útstreymisbrot hjarta
undir 40% eða 40% og hærra fyrir hópinn í heild og eftir kynjum
(tafla III). Meðalaukning á afkastagetu var 17% (öryggisbil 13-22%)
fyrir þá sem voru með lægra útstreymisbrot en 15% (öryggisbil
12-18%) fyrir þá sem voru með hærra útstreymisbrot (mynd 1).
Ekki reyndist tölfræðilega marktækur munur á breytingu á líkam-
legri afkastagetu út frá skiptingu útstreymisbrots hjarta (p=0,407)
(mynd 1).
Við úrvinnslu gagna var þátttakendum skipt í tvennt, þá sem
mættu að jafnaði oftar en tvisvar sinnum í viku í þjálfun og þá
sem mættu tvisvar sinnum eða sjaldnar. Meðalaukning afkasta-
getu var 18% (öryggisbil 15-20%) fyrir þá sem mættu oftar en 6%
(öryggisbil 0-12%) fyrir þá sem mættu sjaldnar (mynd 1). Í töflu IV
má sjá niðurstöður fyrir hópinn í heild og eftir kynjum. Þeir sem
mættu oftar til þjálfunar bættu sig marktækt meira en þeir sem
mættu sjaldnar (p=0,0005) (mynd 1). Hámarkspúls hjá hópnum í
heild jókst um 5% (p<0,001). Ekki var marktæk breyting á líkams-
þyngdarstuðli né hvíldarpúlsi eftir þjálfunartímabilið.
Umræða
Rannsóknir hafa sýnt fram á jákvæð áhrif þjálfunar á afkastagetu
hjá hjartabiluðum7-9,19 og eru þessar niðurstöður í takt við þær.
Rannsóknir hafa sýnt fram á góðan árangur þol- og styrktarþjálf-
unar hjá eldri einstaklingum.8,20,21 Slembiröðuð samanburðarrann-
sókn Austin og félaga (2005) á eldra fólki (60-89 ára) með hjartabilun
og útstreymisbrot undir 40% sýndi marktækan jákvæðan árangur,
meðal annars á 6 mínútna gönguprófi miðað við samanburðarhóp.
Í henni hafði rannsóknarhópurinn fengið hjartaendurhæfingu í 24
vikur.21 Íhlutunarrannsókn á eldra fólki (71-90 ára) með 6 mánaða
Mynd 1. Hlutfallsleg bæting metin með líkani sem inniheldur kyn, aldur, útstreymisbrot hjarta (EF),
ástundun og víxlhrif.
Tafla II. Afkastageta eftir aldurshópum, fjöldi (n), meðaltal og fjórðungsmörk.
Aldursskipting Grunnmæling (w/kg) Lokamæling (w/kg) Breyting Hlutfallsleg breyting
Allir (n=76) 1,60 [1,3-1,9] 1,85 [1,4-2,1] 0,25 [0,1-0,4] 0,16 [0,06-0,25]
36-64 ára (n=34) 1,82 [1,52-2,2] 2,07 [1,83-2,5] 0,25 [0,12-0,38] 0,15 [0,07-0,20]
65-83 ára (n=42) 1,43 [1,1-1,6] 1,67 [1,22-2,0] 0,25 [0,1-0,4] 0,17 [0,07-0,27]
Karlar 36-64 ára (n=32) 1,84 [1,58-2,23] 2,09 [1,87-2,5] 0,26 [0,17-0,40] 0,15 [0,08-0,20]
Karlar 65-83 ára (n=37) 1,51 [1,3-1,7] 1,76 [1,4-2,0] 0,25 [0,1-0,40] 0,16 [0,08-0,25]
Konur 36-64 ára (n=2) 1,55 [1,38-1,72] 1,70 [1,45-1,95] 0,15 [0,08-0,23] 0,08 [0,04-0,12]
Konur 65-83 ára (n=5) 0,84 [0,9-0,9] 1,04 [0,9-1,2] 0,20 [0-0,4] 0,23 [0-0,44]
w = vött
Mynd 1. Hlutfallsleg bæting, metin með líkani sem inniheldur kyn, aldur,
útstreymisbrot hjarta (EF), ástundun og víxlhrif.