Læknablaðið - nóv. 2019, Blaðsíða 44
516 LÆKNAblaðið 2019/105
„Það er lögbundið að sinna símenntun,“
sagði Alma D. Möller landlæknir sem tók
þátt í pallborði á málþingi um símenntun
á aðalfundi Læknafélags Íslands sem
haldinn var á Siglufirði 26.-27. september.
Hún bætti við: „Við verðum vissulega að
gera þetta skipulega og betur.“
Alma vísaði í að alltaf væri gott að vera
ekki meðal mestu skussanna og benti á að
ekkert Norðurlandanna gerði betur en hér
væri gert. Íslenskir læknar gætu varið 15
dögum á ári í símenntun. Ekki ætti að tala
niður þá símenntun sem þó væri uppi á
borðum, margt væri gert þótt mætti bæta.
„Við þurfum að gera þetta mark-
vissara og byrja að skrá,“ sagði hún og
lagði áherslu á að rétti tíminn væri núna.
„Frumskilyrði öruggrar heilbrigðisþjón-
ustu er menntun, mönnun og þekking.“
Ásamt Ölmu sátu Þórarinn Guðnason
hjartalæknir, Friðbjörn Sigurðsson krabba-
meinslæknir, Runólfur Pálsson lyflæknir,
María I. Gunnbjörnsdóttir lungnalæknir,
Salóme Ásta Arnardóttir heimilislæknir
og Reynir Arngrímsson erfðalæknir í pall-
borði.
Símenntun auki starfsánægju
Alma lagði áherslu á að símenntun væri
ríkur þáttur í starfsánægju lækna. Nú sé
lag til að koma skikki á símenntunina þar
sem kröfur til menntunar séu sífellt að
aukast. Læknar eigi ekki einir og sjálfir
að standa að þessari vinnu heldur taka
embættið og stjórnsýsluna með sér í þá
vinnu. Það auki trúverðugleika. Embætti
landlæknis sé tilbúið til þátttöku. Ráðast
Símenntun
verði hvatning
ekki refsing
Læknar ræddu þörfina fyrir
símenntun og leiðir að því
markmiði að halda skipulega
utan um hana og auka á
aðalfundi Læknafélagsins.
Ríflega 70 læknar sátu fundinn
Fræðslusjóður haldi utan
um símenntun lækna
„Læknafélagið þyrfti að stofna sjóð starfsþróunarseturs, rétt eins og BHM og
hjúkrunarfræðingar,“ sagði Reynir Arngrímsson formaður Læknafélags Íslands
í aðdraganda málþings félagsins um símenntun á aðalfundinum á Siglufirði.
Símenntun hefði lengi verið eitt af áhersluatriðum í starfi félagsins. Fræðslustofnun
Læknafélagsins væri ætlað það hlutverk að halda utan um hana.
„Ég tel að það sé kominn tími til að við förum fram á að ríkið greiði sambærilegt
fé í fræðslusjóðinn okkar. Við höfum slegið lauslega á þetta og við teljum að firn-
ingarnar myndu borga brúsann,“ sagði hann. Stefnt er á að gera atlögu að málinu í
kjarasamningum.
A Ð A L F U N D U R L Í 2 0 1 9
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Salóme Ásta Arnardóttir formaður Félags
íslenskra heimilislækna í pontu á aðalfundi
LÍ á Siglufirði í lok september.
Myndir tóku Gunnhildur og Védís.