Læknablaðið - nóv. 2019, Blaðsíða 4
483
Högni Óskarsson, Kristinn Tómasson, Sigurður Páll Pálsson, Helgi Tómasson
Efnahagskreppur og tíðni sjálfsvíga á Íslandi 1911-2017
Sjálfsvíg eru í 16. sæti yfir dánarorsakir í veröldinni. Beinar orsakir eru ekki alltaf þekkt-
ar, en tengjast oft þunglyndi og ytri áföllum. Dregið hefur úr tíðni sjálfsvíga á heimsvísu
undanfarna áratugi. Samkvæmt niðurstöðunum er ekki samband milli sjálfsvígstíðni og
sveiflna í efnahagslífi Íslands.
491
Kristín Elísabet Hólmgeirsdóttir, Brynjólfur Gauti Jónsson, Thor Aspelund,
Gunnar Guðmundsson, Janus Guðlaugsson
Áhrif hjartaendurhæfingar á líkamlega afkastagetu einstaklinga
með hjartabilun
Dánartíðni einstaklinga með hjartabilun er há þrátt fyrir læknisfræðilegar framfarir síðustu
áratuga. Rannsóknir sýna jákvæð áhrif þjálfunar á líkamlega afkastagetu einstaklinga með
hjartabilun og vísbendingar eru um tengsl þjálfunar við færri endurinnlagnir á sjúkrahús og
lægri dánartíðni. Samkvæmt klínískum leiðbeiningum á hjartaendurhæfing að vera hluti af
meðferð einstaklinga með hjartabilun. Áhrif hjartaendurhæfingar felast í því að líkamleg,
andleg og félagsleg færni eykst sem jafnframt stuðlar að því að fólk komist til vinnu á ný.
499
Tómas Guðbjartsson, Engilbert Sigurðsson, Magnús Gottfreðsson,
Ólafur Björnsson, Gunnar Guðmundsson
Hæðarveiki og tengdir sjúkdómar
Háfjallaveiki er algengt vandamál. Rannsóknir tengdar ferðamönnum í Klettafjöllum
N-Ameríku hafa sýnt að 22% ferðamanna sem náðu 2500-2900 metra hæð fundu fyrir ein-
kennum og var tíðnin 42% þegar komið var yfir 3000 m hæð. Svipuðum niðurstöðum hef-
ur verið lýst hjá göngufólki í Ölpunum og Nepal, eða 10-40% einstaklinga sem náðu 3000
m og 40-60% hjá þeim sem komust upp í 4000-5000 m. Háfjallaveiki verður ekki vart
undir 2500 metra hæð og því gætir hennar ekki hjá heilbrigðum einstaklingum á íslenskum
fjöllum. Sjúklingum með hjarta- og æðasjúkdóma er þó hættara við að fá einkenni hæðar-
veiki í lægri hæð en öðrum.
476 LÆKNAblaðið 2019/105
F R Æ Ð I G R E I N A R
11. tölublað ● 105. árgangur ● 2019
479
Magnús Karl Magnússon
Nóbelsverðlaun í
læknisfræði 2019
– Súrefnisskynjun
frumunnar
Mikilvægi súrefnis hefur verið
þekkt öldum saman en það
er ekki fyrr en nýlega sem
vísindamenn áttuðu sig á því
hvernig frumur lífvera laga
sig að breytingum á súrefn-
ismagni.
481
Óttar Guðmundsson
Eina raunverulega
vandamál heimspek-
innar?
Bæði sjálfsvíg og efnahags-
kreppur eru flókin fyrirbæri
þar sem margir þættir rekast
hver á annars horn. Hrunið
hafði reyndar líka fyrirbyggj-
andi áhrif vegna aukinnar
samheldni þjóðarinnar í þessu
sameiginlega skipbroti.
z
L E I Ð A R A R
Everest
Gunnar Guðmundsson lungnalæknir tók þessa
mynd af hæsta fjalli heims, Everest í Himalaja-
fjöllum í Nepal (8848 m), frá grunnbúðum fjallsins
(5340 m). Gunnar er einn höfunda yfirlitsgrein-
ar um hæðarveiki sem birtist í þessu tölublaði
Læknablaðsins. Hann varð hvorki hæðarveikur né
tók lyf enda aðlagaði hann sig að hæðinni sam-
kvæmt leiðbeiningum sem fram koma í greininni.
Tíu Íslendingar hafa komist á tind Everest en
Gunnar lét grunnbúðir nægja í þetta sinn.
Mynd GG (október 2019).