Læknablaðið - nóv. 2019, Blaðsíða 47
LÆKNAblaðið 2019/105 519
Læknar með metfjölda
ályktana á aðalfundinum
Aðalfundur Læknafélags Íslands tók afstöðu til 26 álykt-
ana á fundinum, sem er metfjöldi. Hér er tæpt á þeim
helstu og hægt að kynna sér efni þeirra á lis.is.
• Nauðsynlegt er að bregðast tafarlaust við alvarlegum
mönnunarvanda sem ríkir í heilsugæslu í dreifbýli.
• Mikilvægt er að kröfur til nýrra stjórnenda á Landspít-
ala sé yfirgripsmikil reynsla og þekking á viðkomandi
klínísku sviði og eðlilegt að læknar komi helst til álita
til starfanna.
• Aðalfundurinn krefst þess að læknar séu í forystu í
ákvörðunum og þróun um miðlæga rafræna sjúkra-
skrá.
• Aðalfundurinn fagnar grósku í uppbyggingu fram-
haldsnáms í læknisfræði á Íslandi, en lýsir yfir áhyggj-
um vegna óvissu um gagnkvæma viðurkenningu þess
í Evrópu. Eyða þurfi henni og tryggja fjármögnun til
frekari uppbyggingar.
• Aðalfundurinn lýsir yfir áhyggjum af dvínandi rann-
sóknar- og vísindastarfsemi á heilbrigðisstofnunum
landsins. Landspítali verji 0,7%-0,8% af árlegri veltu á
meðan háskólasjúkrahús á Norðurlöndum nýta 6% af
veltunni til rannsókna. Aðalfundurinn skorar á heil-
brigðisráðherra að auka þetta hlutfall um 0,5 prósentu-
stig á ári fram til ársins 2030.
• Aðalfundurinn kallaði eftir endurskoðun á lyfjastefnu
til að bregðast við lyfjaskorti. Óviðunandi sé að læknir
sé persónulega ábyrgur fyrir mögulegum aukaverkun-
um þegar lyf er ekki með markaðsleyfi.
• Aðalfundurinn lýsir þungum áhyggjum yfir stöðu
öldrunarmála á Íslandi og hvetur stjórnvöld til úrbóta
með frekari uppbyggingu öldrunarþjónustu.
• Aðalfundur leggst eindregið gegn auknu aðgengi að
áfengi þar sem aðgengisstýring er eitt sterkasta vopnið
í forvörnum. Þá þurfi að bregðast við ólöglegum áfeng-
isauglýsingum.
• Aðalfundur skorar á Alþingi að festa í lög bann við sölu
á rafrettum og tengdum varningi.
• Aðalfundur mótmælir harðlega drögum að frumvarpi
sem gerir ráð fyrir að læknaráð og hjúkrunarráð verði
lögð niður og í stað þeirra komi eitt fagráð.
• Aðalfundur telur að það væru alvarleg mistök yrði
haldið áfram með starfsmatskerfi til jafnlaunavottunar
sem Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri vinna nú
að. Kerfi þetta sé ónothæft þar sem það fangar hvorki
eðli né inntak læknisstarfsins.
A Ð A L F U N D U R L Í 2 0 1 9
Kristín
Sigurðardóttir
bráðalæknir
og Ragnar
Jónsson
bæklunar-
læknir komin
út undir
beran himin í
fundarlok.
Þorbjörn Jónsson blóðmeinalæknir og formaður LÍ árin 2011-2016, og kona hans Guðrún Svan-
borg Hauksdóttir læknir.
Félagar úr FAL voru óvenju margir í ár eða 18 aðalfundarfulltrúar af 69.
Jón Bjarnarson heilsugæslulæknir og Elísabet Ragnarsdóttir.