Læknablaðið - nov. 2019, Side 28
500 LÆKNAblaðið 2019/105
Y F I R L I T
Ekki verður sérstaklega fjallað um langvinna háfjallaveiki eða
Monge-sjúkdóm í þessu yfirliti. Hún greinist í þeim sem búa í
meira en 2500 m hæð, en talið er að rúmlega 140 milljónir manna
búi við slíkar aðstæður (mynd 1).10 Sjúkdómurinn leiðir til aukins
fjölda rauðkorna í blóði og lungnaháþrýstings sem getur leitt til
hægri hjartabilunar.11
Lífeðlisfræði og hæðaraðlögun
Við sjávarmál er hlutfall súrefnis í innöndunarlofti 21% og helst
hlutfallið lengst af óbreytt þegar hærra er komið, til dæmis á tindi
Kilimanjaro (5895 m) og Everest (8848 m). Á hinn bóginn lækk-
ar loftþrýstingur í veldisfalli með aukinni hæð og í stað 760 mm
kvikasilfurs (ígildi 1013 mbara, eða 101,3 kPa) við sjávarmál er
hann aðeins helmingur þess á tindi Kilimanjaro og þriðjungur á
hæsta tindi jarðar, Everest. Þar sem hlutþrýstingur lofttegundar er
afleiða af heildarþrýstingi lækkar þrýstingur innandaðs súrefnis
sem nemur falli á loftþrýstingi. Þannig er magn súrefnis í ákveðnu
rúmmáli andrúmslofts á toppi Everest aðeins um þriðjungur þess
sem það er við sjávarmál (mynd 3). Þegar komið er yfir 2500 m
hæð er hætta á að súrefnisskortur fari að gera vart við sig. Til að
nýta sem best það súrefni sem er í boði setur líkaminn af stað
hæðaraðlögun (acclimatization).12 Þetta er flókið lífeðlisfræðilegt
ferli og getur tekið vikur og mánuði að ná fullri verkun.12 Þannig
lifir einstaklingur ekki lengi á toppi Everest án undangenginnar
hæðaraðlögunar,13 en eftir 6-8 vikur í mikilli hæð geta sérþjálfaðir
fjallgöngumenn klifið hæstu tinda jarðar án viðbótarsúrefnis.14
Flest líffæri aðlagast hæð, en viðbrögð öndunarkerfis, hjarta og
blóðs vega þyngst. Við lækkun á súrefnisþrýstingi í blóði örvast
viðtakar í æðum til heila sem auka öndunartíðni og öndunin
dýpkar, en hvort tveggja eykur loftskipti í lungnablöðrum.5 Um
leið lækkar hlutþrýstingur koltvísýrings í blóði og sýrustig blóðs
hækkar (respiratory alkalosis). Oföndunar verður oftast vart með
dofa í fingrum og í kringum munn.15 Algengt er að mæði komi
fram við minni áreynslu en áður, en öndunarrýmd skerðist vegna
minni styrks innöndunarvöðva. Á móti kemur að mótstaða í
öndunarvegum minnkar við lægri loftþrýsting en auk þess veldur
hærri blóðþrýstingur í lungnablóðrás því að blóð þrýstist lengra
út í lungnavef sem nýtist þannig betur til loftskipta.16 Hjartað
eykur afköst sín með því að hraða á sér og auka útstreymisbrot,
en hvort tveggja styttir flutningstíma súrefnis til vefja.5,12,17 Nýru
bregðast við hækkun sýrustigs í blóði af völdum oföndunar og
auka útskilnað á bíkarbónati, en það tekur nýrun nokkra daga að
leiðrétta sýrustig blóðs. Jafnframt eykst þvagútskilnaður og get-
ur vökvaskortur gert vart við sig ef þess er ekki gætt að drekka
vel.5,9 Nýru auka einnig framleiðslu sína á rauðkornavaka (eryt-
hropoietin) sem hvetur nýmyndun á rauðum blóðkornum í merg
og nær hún hámarki eftir tvær til þrjár vikur í hæð yfir 2500 m.
Magn blóðrauða eykst og þar með getan til að flytja súrefni, en
seigja blóðsins eykst einnig. Verði vökvaskortur minnkar blóð-
vatn (plasma) og seigja blóðsins vex enn frekar. Þetta getur skert
háræðablóðflæði út í fingur og tær og aukið hættu á kali.9,17 Mikil-
vægur hluti hæðaraðlögunar er að minna súrefni í blóði veldur því
að rauð blóðkorn eiga auðveldara með að losa súrefni í vefjum.17
Auk þess myndast „hypoxia-inducible factor-1a“ í súrefnissnauð-
um vefjum sem örvar nýmyndun æða.18 Við það eykst blóðflæði
og framboð súrefnis til vefja. Loks breytast efnaskipti í hvatberum
til að tryggja sem besta nýtingu á súrefni í vefjum.19,20 Um er að
ræða flókið ferli þar sem breyting verður á ýmsum efnaferlum í
hvatberum en einnig má sjá breytingar á byggingu þeirra í rafsmá-
sjá (mitochondral remodelling).
Á mynd 4 sést hvernig súrefnismettun í slagæðablóði minnkar
með aukinni hæð, en upp að 5000 m hæð nær hæðaraðlögun að
halda súrefnismettun í slagæðablóði yfir 80%.21 Eftir það fellur
súrefnismettun mun hraðar, áhrifin á líkamann verða meiri og
hættan á hæðarveiki eykst. Til þess að þola slíka hæð þarf margra
vikna hæðaraðlögun, en fjallgöngumenn sem leggja til lokaatlögu
við Everest og aðra tinda yfir 8000 metrum yfir sjávarmáli eru oft
með blóðrauða í kringum 190 g/L.14
Mynd 2. La Paz er höfuðborg Bólivíu og jafnframt hæsta höfuðborg í heimi. Þar búa
hátt í 800 þúsund manns í 3640 m hæð yfir sjávarmáli en ferðamenn finna þar gjarnan
fyrir hæðarveiki. Í bakgrunni sést í fjallið Illiminani sem er 6438 m hátt og 18. hæsta
fjall Suður-Ameríku. Mynd: Wikipedia: wikipedia.org/wiki/La_Paz
Mynd 3. Samband loftþrýstings og hæðar yfir sjávarmáli.
Mynd: Guðbjörg Tómasdóttir.
-
C
0..
� -
'-
::::s
0,
C
..
II) ·>'-
.a.-=
0
....I
100
80
60
40
Hvannadalshnjukur 2210 m
Kilimanjaro 5895 m
Everest 8848 m
2000 4000 6000 8000
Hood (m)
(m
m
H
g)