Læknablaðið - nov. 2019, Side 29
LÆKNAblaðið 2019/105 501
Y F I R L I T
Háfjallaveiki
Bráð háfjallaveiki er samsafn einkenna þar sem höfuðverkur
er lykileinkenni en önnur ósértækari einkenni eru einnig oft
til staðar (tafla I).5,9 Samkvæmt skilmerkjum sem kennd eru við
Lake Louise og voru síðast uppfærð 2018 er um að ræða höfuð-
verk hjá einstaklingi sem ekki er hæðaraðlagaður og er nýkominn
í meira en 2500 metra hæð yfir sjávarmáli (tafla II).22 Að auki er
til staðar eitt eða fleiri af eftirtöldum einkennum: óþægindi frá
meltingarvegi (lystarleysi, ógleði eða uppköst), sundl, þrekleysi
og þreyta.22 Svefnleysi er hins vegar ekki lengur meðal skilyrða
fyrir greiningu háfjallaveiki í þessari nýjustu útgáfu Lake Louise
skilmerkjanna, enda hefur verið sýnt fram á að allt að 40% sjúk-
linga með háfjallaveiki finna ekki fyrir svefntruflunum.22 Í töflu
I eru auk einkenna sýnd helstu teikn sem finnast við skoðun á
sjúklingum með háfjallaveiki. Að jafnaði koma einkenni fram 6-10
klukkustundum eftir komu í mikla hæð en geta hafist allt að einni
klukkustund eftir komu eða einum til tveimur dögum síðar.5,9,15,17
Án frekari hækkunar ganga einkenni oftast til baka á einum til
þremur dögum.
Háfjallaveiki er algengt vandamál. Rannsóknir tengdar ferða-
mönnum í Klettafjöllum N-Ameríku hafa sýnt að 22% ferðamanna
sem náðu 2500-2900 metra hæð fundu fyrir einkennum og var
tíðnin 42% þegar komið var yfir 3000 m hæð.23 Svipuðum niður-
stöðum hefur verið lýst hjá göngufólki í Ölpunum og Nepal, eða
10-40% þeirra sem náðu 3000 m og 40-60% hjá þeim sem komust
upp í 4000-5000 m.24,25 Háfjallaveiki verður ekki vart undir 2500
metra hæð5 og því gætir hennar ekki hjá heilbrigðu fólki á íslensk-
um fjöllum (mynd 5). Sjúklingum með hjarta- og æðasjúkdóma er
þó hættara við að fá einkenni hæðarveiki í lægri hæð en öðrum.
Tafla II. Áhættuflokkun hæðarveiki.7
Áhætta Lýsing
Lítil Einstaklingur með enga fyrri sögu og hækkar sig í minna en
2800 m
Einstaklingur sem tekur tvo daga í að komast í 2500-3000 m og
hækkar sig í svefnstað minna en 500 m á dag og tekur aukadag
til aðlögunar fyrir hverja 1000 m hækkun
Meðal Einstaklingur með fyrri sögu sem hækkar sig í 2500-2800 m á
einum degi
Engin saga um hæðarveiki og færa sig í meira en 2800 m á
einum degi
Allir sem hækka sig meira en 500 m á dag (hækkun í svefnstað)
í hæð yfir 3000 m en með auka degi fyrir aðlögun fyrir hverja
1000 m hækkun
Mikil Einstaklingur með fyrri sögu sem hækkar sig í meira en 2800 m
á einum degi
Allir með fyrri sögu um hæðarheilabjúg
Allir sem fara í meira en 3500 m hæð á einum degi
Allir sem hækka sig meira en 500 m á dag (hækkun í svefnstað) í
hæð yfir 3000 m en með enga aukadaga fyrir aðlögun
Mjög hröð uppganga, til dæmis á Kilimanjaro á innan
åvið 7 dögum
Með hæð er átt við þá hæð sem sofið er í. Gengið er út frá því að hækkun byrji í 1200 m
hæð eða lægra. Ofangreint á við um þá sem hafa ekki fengið hæðaraðlögun.
Tafla I. Lake Louise skor fyrir háfjallaveiki.22
Höfuðverkur
0 – Enginn
1 – Vægur
2 – Meðal
3 – Svo slæmur að þolandi verður óvirkur
Meltingaróþægindi
0 – Góð matarlyst
1 – Léleg matarlyst eða ógleði
2 – Meðalslæm ógleði eða uppköst
3 – Slæm ógleði og uppköst sem gera þolanda óvirkan
Þreyta og/eða slappleiki
0 – Hvorki þreyta né slappleiki
1 – Væg þreyta/slappleiki
2 – Meðal slæm þreyta/slappleiki
3 – Mikil þreyta/slappleiki
Svimi/jafnvægistruflanir
0 – Hvorki svimi né jafnvægistruflanir
1 – Vægur svimi/jafnvægistruflanir
2 – Meðalslæmur svimi/jafnvægistruflanir
3 – Slæmur svimi/jafnvægistruflanir sem gera þolanda óvirkan
Háfjallaveiki – virkniskor
Ef þú fannst fyrir einhverjum einkennum háfjallaveiki, hver voru áhrifin á
virkni þína?
0 – Engin
1 – Einkenni til staðar en þau höfðu ekki áhrif á virkni eða ferðaáætlun
2 – Einkenni urðu til þess að ég gat ekki haldið uppgöngu áfram
óstuddur eða þurfti að halda niður
3 – Flytja varð mig brátt í lægri hæð
Mynd 4. Súrefnismettun í slagæðablóði fjallgöngumanna á Everest minnkar með auk-
inni hæð. Myndin er byggð á gögnum frá Dr. Nick Mason.
Mynd: Guðbjörg Tómasdóttir.