Læknablaðið - nov. 2019, Síða 43
LÆKNAblaðið 2019/105 515
að finna punktinn sem ljósgeislinn eigi að
meðhöndla. Þá sé lítið akkeri skrúfað fast í
hauskúpuna: „Stungusárið í höfuðkúpuna
er eina sárið sem sjúklingurinn er með á
höfðinu. Það er 3,2 millimetrar að stærð og
lokað með einu spori.“
Hún segir sjúklinginn ná sér nánast
samstundis. „En við höfum ákveðið að
hafa þann háttinn á að halda sjúklingnum
á sjúkrahúsinu í einn til tvo daga og fylgj-
ast með honum,“ segir hún. „En auðvitað
er hætta á fylgikvillum af þessari meðferð
og aukaverkunum. Fyrst og fremst er
hætta á að það myndist heilabjúgur vegna
hitamyndunarinnar. Sjúklingurinn fær því
stera í tvær vikur eftir að meðferð lýkur.“
Leysir bætir lífsgæði fólks
En breytir leysirinn ekki starfi heila-
skurðlæknis? „Jú, þetta gefur okkur mikla
möguleika, þá sérstaklega varðandi æxli
sem hefur verið erfitt að komast að vegna
djúprar legu eða viðkvæmrar staðsetn-
ingar,“ segir hún en það sé þó ekki þannig
að heilaskurðlæknir styðjist eingöngu við
leysi í framtíðinni og enga hnífa. „Nei,
ekki enn sem komið er. Við heilaskurð-
læknar verðum ekki atvinnulausir, ekki
strax,“ segir hún og hlær.
„Svo er þetta eins og með flesta nýja
tækni, hún er í mótun og enn sem komið
er ákveðin áskorun að velja rétt æxli til
að meðhöndla,“ segir hún og býst við að
gerðar verði ein til tvær aðgerðir með leysi
í mánuði á Karólínska-sjúkrahúsinu. „Við
þurfum að velja tilfellin vel því þetta er
meðferð sem hentar ekki endilega hvaða
æxli sem er.“ Hún nýtist áður en önnur
krabbameinsmeðferð hefjist, svo sem geisl-
un og lyfjameðferð, sé æxlið ekki of stórt.
„Við munum nota leysinn við illkynja
heilaæxlum þegar þau birtast aftur. Þá eru
þau oft í dýpri legu eða minni í ummáli
og hægt að grípa til þessarar tækni í stað
opinnar aðgerðar með minni áhættu fyrir
sjúklingana og styttra bataferli.“ Leysirinn
bæti lífshorfur og lífsgæði sjúklinganna
talsvert í framtíðinni.
Fleiri sjúkrahús vilja leysi
En eru hin Norðurlöndin að skoða hvernig
þau gera á Karólínska? Já, mér vitanlega
eru fleiri sem hafa áhuga á því að kaupa
tækið og koma þessari meðferð á legg.
Meðferðin er einnig að verða aðgengileg á
fleiri stöðum í Evrópu.“
En hvað með Landspítala, er óraun-
hæft að hann taki upp tæknina? „Það er
erfitt að segja hversu mörgum sjúklingum
tæknin gagnast heima. Á meðan tæknin
er svona ný er einnig erfitt að meta hversu
útbreidd hún mun verða,“ segir hún. „Mér
finnst það ekkert óraunhæft þótt það geti
verið erfitt að segja hversu mörgum sjúk-
lingum tæknin gagnast.“
Jiri Bartek og Margrét Jensdóttir ásamt taugalækningateymi Karólínska háskólasjúkrahússins.
Mynd/Karólínska
Jiri Bartek og Margrét Jensdóttir. Mynd/Karólínska