Læknablaðið - nóv. 2019, Blaðsíða 53
LÆKNAblaðið 2019/105 525
L Ö G F R Æ Ð I 3 4 . P I S T I L L
Dögg
Pálsdóttir
lögfræðingur
Læknafélags Íslands
Dogg@lis.isBörn sem aðstandendur
Erlendar rannsóknir hafa leitt í ljós að
áföll í bernsku, eins og það að missa for-
eldri, geta haft afdrifarík áhrif á barnið til
langframa. Allur stuðningur við börn sem
lenda í þessari stöðu er því mikilvægur
og nauðsynlegur, hefur almenn forvarn-
aráhrif, dregur úr kostnaði og líkum á
langtímaáhrifum og stuðlar að virkri og
farsælli samfélagsþátttöku þeirra til fram-
tíðar.
Fram til þessa hefur hér á landi lítið
verið hugað að þessum hópi barna. Þó var
gerð rannsókn á stöðu þessara barna að
frumkvæði Jóns Bjarnasonar fv. alþingis-
manns og ráðherra, undir forystu Sigrúnar
Júlíusdóttur með stuðningi Ólafar Nordal
dómsmálaráðherra. Árangur rannsóknar-
innar er þrjár skýrslur þar sem fram koma
ýmsar brotalamir í heilbrigðis-, skóla og
félagsþjónustu á upplýsingum og stuðn-
ingi við þessi börn. Þau eru oft afskipt í
veikindum foreldris og þurfa jafnvel að
þola kunnáttuleysi og klaufaskap í við-
móti hinna fullorðnu.
Hagstofan hefur birt tölur yfir fjölda
barna sem missa foreldri ár hvert. Frá
2009-2018 misstu árlega um 100 börn
foreldri sitt, fæst árið 2015 þegar 89 börn
misstu foreldri en flest árið 2010, 133
börn. Alls misstu 1007 börn foreldri yfir
tímabilið, 525 drengir og 482 stúlkur. Alls
létust 649 foreldrar barna á tímabilinu,
448 feður og 201 móðir. Flest foreldranna
létust af völdum illkynja æxlis, tæplega
40%. Næstalgengast var að foreldri létist
vegna ytri orsaka og eitrana, í tæplega
34% tilvika. Meirihluti foreldra sem lét-
ust af þessum ástæðum létust af völdum
sjálfsvígs og vísvitandi sjálfsskaða. Þegar
dánarorsakir eru skoðaðar eftir kyni
og aldri eru ytri orsakir langalgengasta
dánarorsök ungra foreldra, 29 ára og
yngri. Meðal foreldra eldri en 49 ára voru
illkynja æxli algengasta dánarorsökin.
Í júní 2019 samþykkti Alþingi lög um
breytingu á ýmsum lögum vegna réttar
barna sem aðstandenda nr. 50/2019. Með
lögunum eru gerðar breytingar á lögum
um réttindi sjúklinga, lögum um heil-
brigðisstarfsmenn, barnalögum og lögum
um öll skólastigin, það er lögum um leik-
skóla, grunnskóla og framhaldsskóla, til
að tryggja að börnum sem missa foreldri
vegna sjúkdóms eða andláts, sé tryggður
viðunandi stuðningur og ráðgjöf í þessum
kringumstæðum. Með lagabreytingunum
er einnig leitast við að tryggja að ákveðnir
verkferlar fari af stað hjá tilgreindum að-
ilum við andlát foreldris þannig að börn í
þessari stöðu verði upplýst um lagalega og
félagslega stöðu sína og fái þá þjónustu og
þann stuðning sem hin nýju lagaákvæði
eiga að tryggja þeim.
Þessi nýsamþykktu lagaákvæði leggja
því nýjar skyldur á lækna og aðra heil-
brigðisstarfsmenn, sem mikilvægt er að
þeir þekki og framfylgi. Samkvæmt nýrri
27. gr. a í lögum um réttindi sjúklinga á:
1. heilbrigðisstarfsmaður, sem kemur beint
að meðferð sjúklings, svo sem læknir,
hjúkrunarfræðingur eða félagsráðgjafi,
að huga að rétti barns sem er aðstandandi
foreldris sem glímir við alvarleg veikindi
eða foreldris sem andast.
2. læknir og aðrir heilbrigðisstarfsmenn
skulu kanna hvort sjúklingur með geð-
sjúkdóma, fíknisjúkdóma eða illvíga
líkamlega sjúkdóma eigi barn undir lög-
aldri. Reynist svo vera skal svo fljótt og
unnt er ræða við sjúklinginn um rétt og
stöðu barnsins vegna veikinda foreldris-
ins. Heilbrigðisstarfsmaðurinn, að gættri
trúnaðar- og þagnarskyldu, skal hafa
samráð við heilsugæsluna þar sem barnið
á lögheimili um að bjóða barninu og þeim
sem annast það í veikindum foreldris
samtal. Ef við á skal heilbrigðisstarfsmað-
urinn í samráði við heilsugæslu, félags-
málanefnd sveitarfélagsins og foreldri eða
forsjáraðila hafa frumkvæði að samvinnu
við skóla barnsins.
3. læknir, sem gefur út dánarvottorð, skal
kanna hvort hinn látni hafi átt barn undir
lögaldri. Reynist svo vera skal læknirinn,
eins fljótt og unnt er, tilkynna andlát
foreldrisins til heilsugæslunnar þar sem
barn á lögheimili. Að fenginni slíkri
tilkynningu á heilbrigðisstarfsmaður
heilsugæslu að bjóða barninu og þeim
sem það annast samtal. Ef við á skal
einnig, í samráði við félagsmálanefnd
sveitarfélagsins og eftirlifandi foreldri
eða forsjáraðila, að hafa frumkvæði að
samvinnu við skóla barnsins. Mjög mikil-
vægt er að læknar sem rita dánarvottorð
tileinki sér þetta nýmæli í lögunum.
4. í samtali við barn skal gætt að aldri þess
og þroska og hugað að því að aðstoða það
við að fá aðgang að viðeigandi úrræðum
og veita því upplýsingar um lagalega
stöðu þess, s.s. rétt þess til umgengni
samkvæmt barnalögum og hvaða félags-
leg úrræði eru til staðar.
Í nýrri málsgrein sem bæst hefur við
13. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn eru
skyldurnar áréttaðar með því að segja að
heilbrigðisstarfsmaður skuli sérstaklega
huga að rétti og stöðu barna sem aðstand-
enda og vísað til framangreindrar 27. gr. a.
Þess er vænst að þær frumkvæðis-
skyldur heilbrigðisstarfsmanna, þar á
meðal lækna, sem felast í þessum nýju
laga ákvæðum muni tryggja börnum
sem missa foreldri vegna sjúkdóms eða
skyndilegs andláts nauðsynlegan stuðning
og ráðgjöf og að betur verði virtur réttur
þeirra til umgengni við nána vandamenn
hins látna foreldris eða aðra nákomna.
Allir hljóta að vera sammála um að það er
mikilvægt að hlúa að þessum börnum og
tryggja að þau fái viðeigandi aðstoð til að
vinna úr því áfalli sem foreldramissir er.
Heimildir
1. Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna
réttar barna sem aðstandenda, 255. mál, þskj. 273 á 149.
löggjafarþingi. althingi.is/altext/149/s/0273.html - septem-
ber 2019.
2. Skýrslurnar voru gefnar út 2015-2018 í ritröð
Rannsóknastofnunar í barna- og fjölskylduvernd.
3 Hagstofan, frétt 29. apríl 2019. hagstofa.is/utgafur/fretta-
safn/mannfjoldi/born-sem-missa-foreldri/ - september
2019.