Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - nov. 2019, Side 57

Læknablaðið - nov. 2019, Side 57
LÆKNAblaðið 2019/105 529 Sjúkraskrá á tækniöld Davíð B. Þórisson sérfræðilæknir á bráðamóttöku Árni Johnsen læknakandídat Sú var tíðin að læknar notuðu blað, penna og diktafón og gátu með þessum gamal- dags tólum komið sér upp hröðu vinnu- lagi sem stenst samanburð við jafnvel bestu sjúkraskrárkerfi í dag. Rafvæðing sjúkraskrár markaði endalok þessa gull- skeiðs og hefur skráning síðan orðið að dragbít á vinnuhraða lækna og samkvæmt erlendum könnunum ein helsta ástæða gremju og kulnunar. Margar ástæður koma þar við sögu. Kerfin eru hönnuð til að mæta kröfum þeirra sem þau kaupa, ekki notendanna sjálfra. Öll áhersla á notendavænleika, straumlínulögun og hraða aðgerða er neðarlega á listanum enda óskir stjórn- enda aðrar en þarfir þeirra sem nota kerfin. Afleiðingin er ótal tímaþjófar til að framkvæma einfaldar aðgerðir, það sem áður var einn kross og nokkur handskrif- uð orð á blaði eru orðnir ótal músasmellir og töf á meðan tölvan er að sækja gögn. Óánægja klínískra starfsmanna eykst enn frekar og þeir nálgast í dag sjúkraskrár- kerfi sem „ríkislausn“ og vænta einskis nema vonbrigða. Þannig hafa læknar misst allan áhuga á tóli sem þeir samt nota hvað mest í vinnudeginum og snerta það ekki nema tilneyddir. Á sama tíma hefur þróun í tölvu- og upplýsingatækni verið hreint ótrúleg og á fáeinum árum gjörbreytt samfélaginu. Tæknifyrirtæki hafa sprottið upp, vaxið gríðarlega og velt rótgrónum fyrirtækjum úr sessi sem þau stærstu í heimi. Marel er dæmi um íslenska sólskinssögu en vöxtur þess byggir á því að hámarksnýta afurðina með tækni fremur en að veiða meiri fisk úr sjónum. Þá nálgun sárvantar í heilbrigðisrekstur þar sem starfsfólk hleypur allan daginn til að reyna að halda boltunum á lofti. Fjórða iðnbyltingin hefur hafið innreið sína en heilbrigðisgeirinn er langt á eftir. Dýr tækjabúnaður, svo sem skurðróbót- ar og greiningartæki eru sjálfgefin en mest notaða tólið, sjúkraskrárkerfið, er látið mæta afgangi og þannig glatast sóknarfæri daglega. Tölvur skáka manns- huganum í öllu nema sköpunargáfu og samskiptum. Hraði, öryggi og nákvæmni er þeirra aðalsmerki og ekkert annað sem hefur jafnmikla getu til að auka afkasta- getu heilbrigðiskerfisins en á sama tíma veita starfsfólki kærkomið svigrúm til að njóta starfsins og einblína á það sem mestu skiptir - sjúklinginn sjálfan. Mikilvægi góðs sjúkraskrárkerfis Gott sjúkraskrárkerfi er svo miklu meira en tól til að skrá niður upplýsingar eins og löggjöf gerir kröfu um. Gott sjúkraskrár- kerfi á að aðstoða lækni í sínu klíníska starfi og flýta fyrir störfum hans, fremur en hitt. Vegna þess hve miklum tíma læknar eyða fyrir framan tölvu, er um- ræðan um sjúkraskrárkerfi í raun hluti af umræðu um vinnuumhverfi lækna. Á tækniöld þar sem hvert mannsbarn gengur með að lágmarki eitt snjalltæki í vasanum virðist fráleitt að vasar lækna séu fylltir af útkrotuðum flettilistum eða tossamiðum með upplýsingum um sjúklinga og ókláruð verkefni. Þetta stafar ekki af því að það sé ómögulegt að þróa tæknilausnir til að leysa þessi vandamál, heldur að þau sem smíða kerfin, þau sem kaupa kerfin og þau sem taka ákvarðanir um hvernig á að fjármagna þau kaup, þurfa ekki að takast á við afleiðingar þess að kerfin vinni ekki fyrir notendur þeirra. Að láta lækna vinna með sjúkraskrár- kerfi sem vinnur ekki með þeim leiðir til þess að þeir finna sér aðrar leiðir til að leysa verkefni sem sjúkraskrárkerfið gæti leyst. Vinnulag sem menn temja sér vegna þessa getur verið óskilvirkt og óöruggt. Hætt er við að mikilvægar upplýsingar sem skráðar eru á blað rati aldrei inni sjúkraskrárkerfið, rannsóknarniðurstöður týnist eða gleymist að fylgja þeim eftir. Þar glatast einnig tækifæri við að staðla vinnulag og skráningu upplýsinga. Í versta falli getur slæmt sjúkraskrárkerfi ýtt læknum í þá átt að skrá upplýsingar illa eða skrá þær alls ekki. Það er aðeins ein leið til að þróa sjúkra- skrárkerfi sem aðstoðar notendur við störf þeirra. Hún er að hafa lækna og heilbrigð- isstarfsfólk með í þróun kerfanna frá upp- hafi, og að hafa þau með í ráðum við inn- kaup og innleiðingu á nýjum kerfum. Það er ekki vænlegt til árangurs ef þeir sem smíða kerfin sitja öllum stundum á skrif- stofu úti í bæ, hitta sjaldan lækna og hitta aldrei nokkurn tíma sjúklinga. Í fluggeir- anum eru sérstakir flugverkfræðingar sem starfa í náinni samvinnu við flugstjóra og hanna flugstjórnunarklefann. Flugstjór- inn getur flogið nánast með bundið fyrir augun þar sem hann þekkir staðsetningu og virkni hvers einasta takka. Flugstjóri myndi seint láta bjóða sér frosið kerfi eða tugi músasmella í miðju aðflugi. Læknar ættu að gera sömu kröfur. Framhald í næsta blaði.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.