Læknablaðið - nóv. 2019, Blaðsíða 62
534 LÆKNAblaðið 2019/105
L I P R I R P E N N A R
Rannsóknir benda til að heilbrigðis-
starfsmenn brenni öðrum fremur út.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin skilgreinir
,,kulnun í starfi” sem heilkenni sem stafar
af ófullægjandi getu til að takast á við
langvarandi álag í vinnu. Þessu fylgja
einkenni einsog síþreyta, skert starfsgeta,
depurð og neikvæðni.
Sumir telja að aukin tíðni kulnunar
meðal heilbrigðisstarfsmanna hljóti að ein-
hverju leyti að helgast af aukinni umræðu
og meðvitund, að vandinn sé að vissu
leyti tilkominn vegna þessara ,,stöðugu”
vangaveltna um tildrög hans. Skýringin
er að öllum líkindum flóknari og örar
breytingar á starfsumhverfi, aukin skrif-
finnska og minna sjálfræði í starfi hljóta
til að mynda að taka sinn toll. En auk þess
ímynda ég mér að persónuleikagerð heil-
brigðisstarfsfólks geti átt sinn þátt í þessu.
Undir lok síðustu aldar lýstu hjarta-
læknarnir Friedman og Rosenman
tengslum milli þess sem þeir nefndu
A-persónuleikagerð og aukinnar tíðni
sjúkdóma. Þannig var niðurstaða þeirra,
eftir nærri áratugs langsniðsrannsókn
á ríflega 3000 sjúklingum, að fólk með
persónuleikagerð A væri tvöfalt líklegra
til að þjást af kransæðasjúkdómi í sam-
anburði við fólk með persónuleikagerð B.
Vissulega hefur síðar verið bent á ýmsa
galla í rannsóknum þeirra (til að mynda
skertan yfirfæranleika þar sem sjúk-
lingaþýði þeirra samanstóð, því miður,
eingöngu af miðaldra karlmönnum) en
áhugavert er að skoða nánar skilgreiningu
þeirra á A- og B-persónuleikum.
Fólk var flokkað í hópa byggt á svör-
um við spurningum einsog: ,,Færð þú
samviskubit ef þú notar frítíma þinn til
að slaka á”, ,,hefur þú tilhneigingu til að
hreyfa þig og/eða ganga hratt?”, ,,þarftu
að vinna til þess að njóta þess að taka þátt
í spilum eða íþróttum?” og ,,reynir þú oft
að gera marga hluti í einu?” Mig grunar að
margir heilbrigðisstarfsmenn myndu svara
háu hlutfalli þessara spurninga játandi.
Hver á sér ekki samstarfsmann sem fer
beint af sólarhringsvaktinni á æfingu fyrir
næstu þríþrautarkeppni áður en börnin
eru sótt snemma í leikskólann til að ná
örugglega að kreista inn gæðastund með
fjölskyldunni fyrir næstu vakt? Eða sér
kollega sína reglulega hlaupandi á göng-
um spítalans, slafrandi í sig skyri, á leið á
næsta fund/aðgerð/göngudeild? Mögulega
að keppast við að klára símatímann með
handfrjálsa búnaðinn tengdan í snjallsím-
ann sem samtímis tilkynnir um símtal á
bið. Á meðan 10 nýjustu fræðigreinarnar
bíða yfirlestrar og nemar handleiðslu.
Vinnubrögð og lífsstíll af þessu tagi
valda eðli málsins samkvæmt miklu álagi,
sem er jú lykilorsök kulnunar. Engu að
síður er kúlturinn þannig að við höfum
tilhneigingu til að telja þetta ákjósanlegt
ástand og hrósa hvert öðru í hástert fyrir
þennan ,,dugnað”. Þegar öllu er á botn-
inn hvolft vitum við samt öll, og segjum
sjúklingum okkar reglulega, að það skiptir
máli að sofa á nóttunni, að hreyfa sig (í
hófi), borða reglulega og reyna að lág-
marka streitu í lífi okkar.
Friedman og Rosman lýstu A-persónu-
leikum sem metnaðarfullum og skipu-
lögðum einstaklingum sem er umhugað
um góða tímastjórnun og mikil afköst.
Allt getur þetta komið sér vel, hvort sem
er í lífi eða starfi. En A-einstaklingar eru
einnig líklegri til að vera óþolinmóðir og
upplifa pirring í samskiptum sínum við
aðra, sérstaklega annað A-fólk. Einstak-
lingar með B-persónuleikagerð eru aftur á
móti líklegri til að upplifa minni streitu í
sínu daglega lífi. Vinnuhraðinn er kannski
minni en hjá A-fólkinu en, vel að merkja,
reynist ekki alltaf vera fylgni milli hraða
og afkasta. Auk þess er B-fólkið líklegra
til að sýna meiri þolinmæði og vera færara
um að vinna í hópum en A- einstaklingar.
Flest liggjum við einhvers staðar á
hinu breiða rófi milli A- og B-eiginleika.
En það var þó niðurstaða pakistanskr-
ar rannsóknar frá 2014 að læknanemar
væru líklegir til að þróa með sér æ fleiri
A-persónuleikaeinkenni meðan á námi
stendur. Þetta bendir til þess að einstak-
lingsgerð heilbrigðisstarfsfólks (eða í það
minnsta pakistanskra læknanema) sé
mótanleg og að vinnustaðarmenning hafi
áhrif á hana. Sé þetta rétt, er full ástæða
til að huga að þessari menningu og hvort
hún á þátt í kulnuninni sem við sjáum allt
í kringum okkur.
Kannski væri bara besta ráðið að fá
heilbrigðisstarfsfólk til að keppa í því
að slaka sem mest og best á? Gætum til
að mynda keppt í greinum einsog hver
svitnar mest í Hot Yoga? Eða hugleiðir sem
dýpst án þess að sofna (sem er víst mæl-
anlegt með mati á heilabylgjum)? Ekki veit
ég – og segi þetta auðvitað í gríni frekar
en hitt. En engu að síður er eitthvað bog-
ið við það að fólkinu sem vinnur við að
hlúa að öðrum takist svona illa upp við að
hugsa almennilega um sjálft sig og sam-
starfsfélaga sína. Þar mætti metnaðurinn
að ósekju vera meiri.
Sólveig
Helgadóttir
Föstudags-
hugleiðingar
Sólveig er sérfræðingur við svæfinga- og gjörgæsludeild háskólasjúkrahússins í Uppsölum í Svíþjóð.