Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - apr. 2019, Blaðsíða 41

Læknablaðið - apr. 2019, Blaðsíða 41
LÆKNAblaðið 2019/105 193 ■ ■ ■ Védís Skarphéðinsdóttir Berklar (Hvíti dauðinn) höfðu gífurleg áhrif á íslenskt samfélag á síðustu öld. Þeir voru banvænir og mjög raunveru- legur ógnvaldur sem allir óttuðust og engin örugg meðferð var til fyrr en um miðja öldina. Þeir lögðu að velli fjölmargt ungt fólk og sú fjölskylda var vandfundin sem ekki átti um sárt að binda eftir sjúk- dóminn. Spítala- og hælisvist var löng og ströng og þungbær en jafnframt spruttu af henni ýmsir menningarkimar, vinátta og jafnvel hjónabönd. Félag áhugamanna um sögu læknis- fræðingar er eitt öflugasta félag sinnar tegundar og er vakið og sofið yfir nýjum og nýjum umfjöllunarefnum og sóknar- færum sem svo eru kölluð. Jóhann Sig- urjónsson skáld frá Laxamýri auðgaði íslenska menningu með leikritum sínum um Galdra-Loft og Fjalla-Eyvind og gaf okkur ljóðið Sofðu unga ástin mín. Í sumar eru 100 ár liðin síðan hann dó úr berklum tæplega fertugur að aldri. Af þessu tilefni efndi félagið í samvinnu við íslensku- og menningardeild Háskóla Ís- lands til málþings um berkla og menningu í Þjóðminjasafninu og stýrði Torfi Tulinius samkomunni. Helgi Sigurðsson prófessor í krabba- meinslækningum rakti ítarlega sögu berkla og berklahæla á Íslandi einkum þó Vífilsstaða í stórfróðlegu erindi. Hælið var það fyrsta sinnar tegundar hér heima, reist með tilstyrk norskra frímúrara og um flest sjálfbært í upphafi. Þar voru híbýli fyrir starfsmenn, rekinn myndarbúskapur og sjúklingar stóðu fyrir mikilli menn- ingarstarfsemi. Því miður er nú öll sú Snorrabúð stekkur. Rögnvaldur Ólafsson var fyrsti íslenski arkitektinn en þurfti að hverfa frá námi í Kaupmannahöfn vegna berklaveiki. Hann teiknaði meðal annars berklahælið á Vífilsstöðum, þar sem hann lést árið 1917. María Pálsdóttir leikkona og drifkraft- ur fyrir Kristneshæli í Eyjafirði sagði sögur að norðan sem voru bæði hjartasker- andi og hugljúfar í senn. María er að endurreisa Kristnes sem menningarsetur og sýningarstað fyrir sögu berklanna og hefur komist í færi við fjölda fólks sem getur miðlað af eigin reynslu þegar kemur að berklum. Kristnes hefur nú fengið að gjöf alls kyns frásagnir, ljóð, myndir, bréf og muni meðal annars rifbein sem eiga rót sína á berklahælinu. Fyrir hlé stilltu Óttar Guðmundsson og Jóhanna Þórhallsdóttir stemmninguna al- veg í botn með því að spila þrjú tóndæmi úr óperusögunni þar sem söguhetjan er að veslast upp úr berklum. Dagný Kristjánsdóttir, prófessor í ís- lenskum nútímabókmenntum, hélt erindi um Jóhann Sigurjónsson og hans feril. Í leikriti hans um Doktor Rung er eitt aðalviðfangsefnið lækningar á banvæn- um sóttum einsog berklum. Síðastur á mælendaskrá var Sveinn Yngvi Egilsson, prófessor í íslenskum bókmenntum síð- ari alda. Hann bar saman og rakti örlög þriggja mikilhæfra skálda sem öll dóu ung úr berklum, voru að sönnu óskabörn ógæfunnar, og hétu Jóhann: Sigurjónsson, Jóhann Jónsson og Jóhann Gunnar Sig- urðsson. Sofðu unga ástin mín, - úti regnið grætur. Mamma geymir gullin þín, gamla leggi og völuskrín. Við skulum ekki vaka um dimmar nætur. Það er margt, sem myrkrið veit, - minn er hugur þungur. Oft ég svarta sandinn leit svíða grænan engireit. Í jöklinum hljóða dauðadjúpar sprungur. Sofðu lengi, sofðu rótt, seint mun best að vakna. Mæðan kenna mun þér fljótt, meðan hallar degi skjótt, að mennirnir elska, missa, gráta og sakna. úr Fjalla-Eyvindi eftir Jóhann Sigurjónsson Málþing um berkla og menningu María Pálsdóttir leikkona og frumkvöðull sem er að koma skikki á gamla Kristnes- hælið, það verður menningarsetur og safn um sögu berklaveikinnar þar í húsi. Gamli hjúkrunarkvennabúningurinn var mjög passandi við tilefnið.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.