Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - apr. 2019, Side 21

Læknablaðið - apr. 2019, Side 21
LÆKNAblaðið 2019/105 173 R A N N S Ó K N og þeirra sem fengu íhaldssama meðferð 66 ár (bil: 19-99) og var munurinn marktækur (p<0,05). Hjá þeim sjúklingum sem með- höndlaðir voru með íhaldssamri meðferð (n=643) var keri lagður í gallblöðru hjá 88 (14%). Meðalaldur sjúklinga sem fengu kera var 71 ár (bil: 28-92) miðað við 62 ár hjá þeim sem ekki fengu kera (p<0,05) og var hlutfall karla og kvenna jafnt. Sjúklingar sem fengu kera höfðu haft einkenni (n=81) að meðaltali í fjóra daga (bil: 0-28) fyrir komu á sjúkrahús, en tímalengd einkenna var óljós hjá 7 sjúk- lingum. Við greiningu þeirra sem meðhöndlaðir voru með kera voru hvít blóðkorn að meðaltali 15,7 x 109/L (bil: 2-68,3) og CRP 212 mg/L (bil: 4-524) hjá þeim sem meðhöndlaðir voru með kera. Fjórðungur þeirra (n=22) var með einkenni sýklasóttar við grein- ingu. Meirihluti sjúklinga sem fengu kera höfðu fylgisjúkdóma (86%) og voru margir þeirra með fleiri en einn (tafla I). Alls höfðu 7 sjúklingar (8%) sem fengu kera fengið gallblöðrubólgu áður og rúmlega þriðjungur sjúklinga (n=33, 38%) hafði farið áður í aðgerð- ir á kviðarholi. Þrjátíu og þrír sjúklingar (38%) sem fengu kera í gallblöðru voru á blóðþynningarmeðferð við innlögn. Flestir sjúklinganna voru á warfaríni, eða 17 (52%), en önnur lyf voru asetýlsalisýlsýra (n=15, 45%), klópídógrel (n=1, 3%), rívaroxaban (n=1, 3%) og enoxap- arínnatríum (n=1, 3%). Keri var lagður í gegnum lifur hjá 62 sjúklingum (70%) en hjá 15 (17%) fór keri ekki gegnum lifur. Lega á kera var óviss hjá 11 sjúk- lingum (13%). Ástungan var gerð ómstýrt hjá 58 sjúklingum (66%), hjá 16 (18%) með aðstoð sneiðmyndatækis og hjá 14 (16%) var not- ast við hvort tveggja. Keri var fjarlægður fyrir útskrift hjá flestum sjúklinganna eða 71 (81%) en 17 (19%) sjúklingar voru útskrifaðir með kera. Áður en keri var fjarlægður var gerð röntgenmyndataka af gallvegum með skuggaefni um kera (secondary cholangiography) hjá 71 sjúklingi (81%). Niðurstöður gallvegamyndatöku má sjá á mynd 2. Meðaltímalengd kerameðferðar var 12 dagar (miðgildi 7, bil: 0-87), en óvíst var um tímalengd kerameðferðar hjá 5 sjúk- lingum. Tímalengd kerameðferðar hjá sjúklingum (n=17) sem voru útskrifaðir heim með kera var að meðaltali 39 dagar (miðgildi 44, bil: 6-87) miðað við 7 daga (miðgildi 6, bil: 0-26) hjá sjúklingum þar sem keri var fjarlægður inni á sjúkrahúsi (p<0,05). Hjá tveimur sjúklingum var gerð bráðaaðgerð í legu þrátt fyrir kerameðferð. Annar þeirra fékk sýklasóttarlost þrátt fyrir keraísetningu og var því tekinn til aðgerðar brátt, sama dag og ástungan var gerð. Hjá hinum dróst keri út og vegna viðvarandi einkenna þrátt fyrir íhaldssama meðferð var ákveðið að taka hann til bráðaaðgerðar í sömu sjúkrahúslegu, 26 dögum frá keraísetningu. Gallblöðrutaka var gerð síðar hjá 43 (49%) af þeim 88 sjúk- lingum sem fengu kera og fór aðgerðin fram að meðaltali 101 degi eftir ísetningu kerans (bil: 30-258). Flestar aðgerðirnar (n=41, 95%) byrjuðu sem kviðsjáraðgerðir en hjá 5 sjúklingum (12%) var henni breytt í opna aðgerð. Hjá tveimur sjúklingum var ákveðið að framkvæma opna gallblöðrutöku. Ákvörðun um opna aðgerð var annars vegar vegna gruns um æxli í gallblöðru og hins vegar vegna þess að sjúklingur hafði fengið gallblöðrubólgu tvisvar á stuttum tíma og keri var í gallblöðru án viðkomu í lifur. Meðal- aðgerðartími kviðsjáraðgerða (n=38) var 96 mínútur (bil: 41-227) en opinna aðgerða (n=5) 123 mínútur (bil: 93-156) en munurinn var ekki marktækur (p=0,29). Upplýsingar um ASA-flokkun (American Society of Anesthes- iologists classification) voru skráðar af svæfingalæknum fyrir 42 af þeim 45 sjúklingum sem fóru í gallblöðrutöku (93%). Níu sjúk- lingar (21%) voru í ASA-flokki 1, 23 (55%) í flokki 2 og 10 (24%) í flokki 3. Sextíu og einn sjúklingur (69%) fengu ekki fylgikvilla eft- ir ísetningu kera en 27 sjúklingar (31%) fengu alls 28 fylgikvilla. Tuttugu þessara fylgikvilla (63%) tilheyrðu Clavien-Dindo-flokki I þar sem engrar meðferðar er þörf. Algengasti fylgikvillinn var að keri dróst út (n=20, 71%). Tveir sjúklingar (7%) þurftu nýjan kera og einn (4%) var tekinn til bráðrar gallblöðrutöku eftir að keri rann út, vegna viðvarandi einkenna. Aðrir fylgikvillar voru verkir vegna kera (n=3, 11%) sem meðhöndlaðir voru með verkjalyfjum. Þrír sjúklingar (11%) fengu gallleka og þurftu tveir þeirra bráðaaðgerð vegna galllífhimnubólgu þar sem saumað var yfir gatið á gall- blöðrunni. Einn sjúklingur fékk íhaldssama meðferð með verkja- og sýklalyfjum. Hjá þessum þremur sjúklingum lá keri ekki gegn- um lifur. Tveir sjúklingar (7%) fengu gallblöðrubólgu að nýju eftir að kerameðferð lauk, báðir innan 30 daga frá keraísetningu og eftir útskrift af sjúkrahúsi. Alls létust 5 sjúklingar (6%) innan 30 daga frá keraísetningu. Tveir létust eftir útskrift af sjúkrahúsi og eftir að meðferð við gallblöðrubólgu var lokið (aldur 76 og 84 ár). Þrír sjúklingar (3%) létust vegna undirliggjandi alvarlegs ástands í tengslum við gallblöðrubólgu og sýklasóttarlost (aldur 80, 84 og 90 ár), þar af tveir innan sólarhrings frá keraísetningu. Umræður Mikill fjöldi sjúklinga leggst inn á Landspítala árlega með gall- blöðrubólgu og lagðist sjúklingur inn annan hvern dag á því tímabili sem hér var skoðað. Þriðjungur þeirra sjúklinga sem fékk gallvegatengdar sjúkdómsgreiningar var með gallblöðrubólgu, sem er í samræmi við aðrar rannsóknir og var meðalaldur þeirra einnig sambærilegur fyrri rannsóknum.1,4,11 Meirihluti sjúklinga með gallblöðrubólgu, eða um 80%, fóru í gallblöðrutöku en athygli vekur að einungis helmingur þeirra fór í bráðaaðgerð. Þessar niðurstöður eru í samræmi við amerískar og evrópskar rannsókn- ir.1,2 Þrátt fyrir að skurðaðgerð sé ráðlögð meðferð við bráðri gall- blöðrubólgu eru ýmsir þættir sem geta leitt til þess að aðgerð er frestað, eins og tímalengd einkenna, undirliggjandi ástand sjúk- Mynd 2. Skífuritið sýnir niðurstöður úr gallvegamyndatöku sem gerð var um kera (n=71). Skuggaefni flæðir í skeifugörn, eðlileg rannsókn (n=40) Ekkert flæði úr gallblöðru (n=14) 2420 56 Dren dregist út/ skuggaefni fer fyrir gallblöðru (n=17)

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.