Læknablaðið - apr. 2019, Blaðsíða 50
202 LÆKNAblaðið 2019/105
L I P R I R P E N N A R
Læknablaðið hefur beðið nokkra lipra penna
í læknastétt að senda blaðinu hugleiðingar sínar
í dagsins önn.
Katrín Fjeldsted
heimilislæknir og fyrrum forseti
CPME, Comité Permanent des Médecins
Européens, í Brussel
katrinf@simnet.is
Nýlega rakst ég á áhugaverða og vel skrif-
aða bók eftir hjúkrunarfræðing að nafni
Christie Watson, The Language of Kindness,
sem kalla mætti Rödd góðmennskunnar
á íslensku. Höfundur er verndari konung-
lega breska hjúkrunarfélagsins, The Royal
College of Nursing. Í bókinni lýsir hún
uppvexti sínum, hvernig á því stóð að hún
lærði hjúkrun, starfsferli sínum og því sem
koma má til leiðar með fagmennsku og
góðvild að leiðarljósi. Sagt er frá spítalalífi,
sorgum fólks og gleðistundum, sem er
nokkuð sem við öll þekkjum sem starfað
höfum við heilbrigðisþjónustu. Í bókinni
er hálfri síðu varið í það sem gerst hefur í
hjúkrun á síðari árum í Bretlandi og minn-
ir óneitanlega á þróunina hér á landi.
Ég hef tekið þátt í umræðum og
stefnumörkun hvað þetta varðar, bæði hér
og ekki síður á Evrópuvettvangi. Aðrar
starfsstéttir, einkum sjúkraliðar, hafa að
mestu tekið við að hjúkra sjúklingum en
hjúkrunarfræðingar hafa sest við tölvur og
sinna í vaxandi mæli stjórnun og skrán-
ingu. Skráning er krafa frá yfirvöldum en
flestum okkar finnst hún helst til tímafrek.
Hjúkrunarnám var á sínum tíma
flutt á háskólastig. Launabarátta réði þar
miklu fremur en fagleg nauðsyn en auk
þess stóð metnaður þeirra sem í forsvari
voru á þeim tíma til þess að kvennastétt
kæmist upp að hlið lækna sem þá voru í
meirihluta karlar. Þetta er gjörbreytt; nú
er meirihluti læknanema og ungra lækna
konur svo þau rök standast ekki lengur.
Þótt mennt sé máttur eru gæði menntunar
þó þyngri á vogarskálum þekkingar en
lengd og þótt hvetja þurfi konur til að
mennta sig er hjúkrunarnám líka ætlað
körlum.
Svokallað framgangskerfi fyrir hjúkr-
unarfræðinga var merkur áfangi á sínum
tíma en svo virðist sem einungis titlar
gildi í því skyni en ekki klínísk vinna við
hjúkrun. Þannig ætti landsins besti hjúkr-
unarfræðingur, til dæmis að mati sjúk-
linga, ekki möguleika á framgangi í starfi
nema hafa komið sér upp mastersgráðu.
Viðbótarmenntun, sem bætir ekki miklu
við gæði hjúkrunar en gefur gráðu, gildir.
Ég tel tímabært að huga að breyting-
um, hvort ekki megi stytta grunnnám í
hjúkrun í þrjú ár. Efla þarf klínískan hluta
námsins, samskipti við sjúklinga, og draga
úr þeirri áherslu sem er á nám í stjórnun.
Vísindaleg aðferð þarf að vera hluti af
námi í háskóla en þeir sem ætla að leggja
vísindi fyrir sig í framtíðinni og stefna á
akademískan feril fara í framhaldsnám.
Fræðimennska tekur við af háskólanámi.
Stjórnun og vísindarannsóknir eiga að
mínu viti ekki að vera stór hluti af grunn-
námi hjúkrunarfræðinga, fremur en
lækna, heldur undirbúningur fyrir vinnu
með sjúklinga auk samstarfs við annað
heilbrigðisstarfsfólk. Það eru sjálfsögð
réttindi hvers sjúklings að vera sinnt af
ábyrgum lækni og hjúkrað af þeim sem
best kunna til verka. Ef hjúkrunarstéttin
hefur ekki lengur áhuga á að hjúkra sjúk-
lingum heldur vill láta öðrum það eftir
má gera ráð fyrir að minni þörf verði
fyrir hjúkrunarmenntun á háskólastigi
í framtíðinni. Sjúkraliðar, félagsliðar og
almennt starfsfólk tekur þau verkefni þá
að sér. Hvað um hjúkrunarstéttina verður
er spurning.
Með þá umræðu í huga sem nú er uppi
um að stytta megi kennaranám er tilval-
ið að skoða lengd hjúkrunarnáms. Betra
kann að vera að taka námslán í þrjú ár en
fjögur. Báðar þessar námsbrautir þurfa
að vera aðlaðandi kostur fyrir nýnema
og bjóða þarf upp á viðunandi laun og
starfskjör að námi loknu. Það er varla
boðlegt að missa fólk úr svo mikilvægum
störfum vegna launa. Slík rök eru notuð til
að réttlæta gríðarlega há laun í bankageir-
anum en eiga mun betur við hér.
Menntun sjúkraliða, þótt á framhalds-
skólastigi sé, þarf að meta sem skyldi
þannig að sjúkraliði sem fer í hjúkrunar-
nám geti lokið því á styttri tíma en sá sem
engan slíkan undirbúning hefur hlotið.
Lengst af komu hjúkrunarfræðingar í veg
fyrir slíkan framgang fyrir sjúkraliða, þar
sat ein kvennastétt á annarri.
Alla mína starfsævi hef ég unnið með
frábærum hjúkrunarfræðingum, bæði
hér heima og í Bretlandi. Ljóst má vera að
læknar og hjúkrunarfræðingar eru ólíkar
starfsstéttir sem ekki geta gengið í störf
hvor annarrar en eru fyrirmyndarteymi
þegar best lætur. Í læknanámi og starfi eru
samskipti læknis og sjúklings aðalatriði og
án efa þess valdandi að flestir læknar vilja
vinna sem læknar. Bók Christie Watson
undirstrikar hve stór þáttur góð hjúkrun
getur verið í gleði og sorgum sjúklinga og
fjölskyldna þeirra.
Rödd góð-
mennskunnar