Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - apr. 2019, Blaðsíða 3

Læknablaðið - apr. 2019, Blaðsíða 3
Hlíðasmára 8 201 Kópavogi sími 564 4104 Útgefandi Læknafélag Íslands Ritstjórn Magnús Gottfreðsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Elsa B. Valsdóttir Gerður Gröndal Hannes Hrafnkelsson Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir Magnús Haraldsson Sigurbergur Kárason Tölfræðilegur ráðgjafi Thor Aspelund Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Blaðamaður Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@lis.is Auglýsingastjóri og ritari Esther Ingólfsdóttir esther@lis.is Umbrot Sævar Guðbjörnsson saevar@lis.is Upplag 1800 Prentun, bókband og pökkun á Íslandi Prenttækni ehf. Vesturvör 11 200 Kópavogi Áskrift 16.900,- m. vsk. Lausasala 1690,- m. vsk. © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild, án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna: Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna, gagnagrunn Landspítala. The scientific contents of the Icelandic Medical Journal are indexed and abstracted in Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSe- arch), Journal Citation Reports/Science Edition and Scopus. ISSN: 0023-7213 LÆKNAblaðið 2019/105 155 Læknablaðið THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL www.laeknabladid.is ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Sóttvarnalæknir hefur staðið í ströngu og beitir því úrræði að setja fólk í sóttkví. Fólk í smithættu er úr leik í þrjár vikur og er treyst fyrir því að halda sig innandyra og án samneytis við aðra. Ástæða sóttkvíanna segir Þórólfur að sé hve margir smituðust í flugi milli Reykjavíkur og Egilsstaða. „Það krafðist þess að við myndum grípa til þessara ráðstafana.“ Breiði faraldurinn úr sér verði hætt að setja fólk í einangrun. „Hugmyndafræðin er að kaupa okkur tíma til að bólusetja fjölskyldur þeirra og alla nákomna, þannig að fái fólkið mislinga sé nánasta umhverfi varið,“ segir hann. Tíminn hafi einnig verið nýttur til að bólusetja sem flesta í samfélaginu. Þórólfur veit ekki hvort þetta fólk verði fyrir fjár- tjóni vegna ákvörðunarinnar. Þórólfur segir viðbragðsáætlanir í samvinnu við Almannavarnir hafa staðist. „Aðalmálið er að fólk þekki hlutverk sín og allir taki þátt,“ segir Þórólfur. „Galdurinn er að virkja kerfið hratt, allir séu með skýrar leiðbeiningar og sömu upp- lýsingar,“ segir hann. Þórólfur segir 80.000 hafa greinst með mislingasmit í Evrópu í fyrra, 80 hafi látist. Þá hafi helmingurinn lagst inn á sjúkrahús og hóp- ur upplifað alvarlega fylgikvilla. Þeir geta til að mynda verið eyrna-, lungna- og heilabólga. Sér hann fram á fylgikvilla hjá þeim 7 sem hafi smit- ast nú? „Við höfum ekki séð það núna eftir því sem ég veit best,“ segir hann en það sé á þeim grunni sem svo hart sé brugðist við. Þórólfur segir endurmenntun heilbrigðis- starfsfólks ganga út á að halda því á tánum. „Það þarf að vera meðvitað um að upp geta komið sjúkdómar sem það hefur ekki séð,“ segir hann. „Við lifum í breytilegum heimi, þannig að við förum að sjá mikið af nýjum sýkingum.“ Í suður- hluta Evrópu fjölgi sjúkdómstilfellum eins og Vestur-Nílarveiki, malaríu og öðrum sjúkdómum sem skordýr beri með sér. „Við erum partur af alheiminum,“ segir hann. „Ég tel að þessi uppákoma núna sýni að allir þurfi að vera á varðbergi fyrir því að óvenjulegir, sjaldgæfir hlutir gerast.“ Lengra viðtal við Þórólf í hlaðvarpi á vefsíðu Læknablaðsins. Búast þurfi við breyttu landslagi sjúkdóma Læknar og heilbrigðisstarfsfólk þurfa að vera á tánum yfir sjúkdómum sem þau sjá ekki dags daglega, segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Það sé nýr veruleiki sem fylgi loftslagsbreytingum og tíðum ferðalögum til fjarlægra landa. Aldrei áður hafi jafn margir landsmenn verið settir í einangrun eins og nú vegna mögulegra mislingasmita, eða 66 talsins. Þórólfur Guðnason á skrifstofu sinni eftir annasama mislingadaga. Mynd/gag Hvað segir sagan? Mislingar lögðu landsmenn á 19. öld Mislingafaraldrar árin 1846 og 1882 voru mannskæðir. Fjórfalt fleiri létust í júní 1846 en reikna mátti með en um 1300 fleiri en bú- ast mátti við í seinni faraldrinum. Staðbund- inn faraldur geisaði á Austurlandi árið 1869. Alls 64% þeirra sem létust árið 1882 voru börn yngri en fjögurra ára. Dánarhlutfall kvenna á barneignaraldri var tvöfalt hærra en karla á sama aldri og fæðingartíðni 7-9 mánuðum eftir mislingafaraldurinn það ár lækkaði um 50%. Þrír greindust með mislinga árið 2017 og árið 2014 greindust mislingar hér sem þá hafði ekki gerst allt frá árinu 1996. Heimild: Grein Söndru Gunnarsdóttur, Haraldar Briem og Magnúsar Gottfreðssonar í 04. tbl. 100. árg. 2014

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.