Læknablaðið - apr. 2019, Síða 3
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Ritstjórn
Magnús Gottfreðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Elsa B. Valsdóttir
Gerður Gröndal
Hannes Hrafnkelsson
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Magnús Haraldsson
Sigurbergur Kárason
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Esther Ingólfsdóttir
esther@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1800
Prentun, bókband
og pökkun á Íslandi
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
Áskrift
16.900,- m. vsk.
Lausasala
1690,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og
geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo
sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki að hluta né í
heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar
(höfundar, greinarheiti og útdrættir) í
eftirtalda gagnagrunna: Medline (National
Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition, Scopus og
Hirsluna, gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic
Medical Journal are indexed and
abstracted in Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index (SciSe-
arch), Journal Citation Reports/Science
Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2019/105 155
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
www.laeknabladid.is
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Sóttvarnalæknir hefur staðið í ströngu og beitir
því úrræði að setja fólk í sóttkví. Fólk í smithættu
er úr leik í þrjár vikur og er treyst fyrir því að
halda sig innandyra og án samneytis við aðra.
Ástæða sóttkvíanna segir Þórólfur að sé hve
margir smituðust í flugi milli Reykjavíkur og
Egilsstaða. „Það krafðist þess að við myndum
grípa til þessara ráðstafana.“ Breiði faraldurinn
úr sér verði hætt að setja fólk í einangrun.
„Hugmyndafræðin er að kaupa okkur tíma til
að bólusetja fjölskyldur þeirra og alla nákomna,
þannig að fái fólkið mislinga sé nánasta umhverfi
varið,“ segir hann. Tíminn hafi einnig verið
nýttur til að bólusetja sem flesta í samfélaginu.
Þórólfur veit ekki hvort þetta fólk verði fyrir fjár-
tjóni vegna ákvörðunarinnar.
Þórólfur segir viðbragðsáætlanir í samvinnu
við Almannavarnir hafa staðist. „Aðalmálið er að
fólk þekki hlutverk sín og allir taki þátt,“ segir
Þórólfur. „Galdurinn er að virkja kerfið hratt,
allir séu með skýrar leiðbeiningar og sömu upp-
lýsingar,“ segir hann.
Þórólfur segir 80.000 hafa greinst með
mislingasmit í Evrópu í fyrra, 80 hafi látist. Þá
hafi helmingurinn lagst inn á sjúkrahús og hóp-
ur upplifað alvarlega fylgikvilla. Þeir geta til að
mynda verið eyrna-, lungna- og heilabólga. Sér
hann fram á fylgikvilla hjá þeim 7 sem hafi smit-
ast nú?
„Við höfum ekki séð það núna eftir því sem
ég veit best,“ segir hann en það sé á þeim grunni
sem svo hart sé brugðist við.
Þórólfur segir endurmenntun heilbrigðis-
starfsfólks ganga út á að halda því á tánum. „Það
þarf að vera meðvitað um að upp geta komið
sjúkdómar sem það hefur ekki séð,“ segir hann.
„Við lifum í breytilegum heimi, þannig að við
förum að sjá mikið af nýjum sýkingum.“ Í suður-
hluta Evrópu fjölgi sjúkdómstilfellum eins og
Vestur-Nílarveiki, malaríu og öðrum sjúkdómum
sem skordýr beri með sér.
„Við erum partur af alheiminum,“ segir hann.
„Ég tel að þessi uppákoma núna sýni að allir
þurfi að vera á varðbergi fyrir því að óvenjulegir,
sjaldgæfir hlutir gerast.“
Lengra viðtal við Þórólf
í hlaðvarpi á vefsíðu Læknablaðsins.
Búast þurfi við breyttu
landslagi sjúkdóma
Læknar og heilbrigðisstarfsfólk þurfa að vera á tánum yfir sjúkdómum sem þau sjá ekki
dags daglega, segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Það sé nýr veruleiki sem fylgi
loftslagsbreytingum og tíðum ferðalögum til fjarlægra landa. Aldrei áður hafi jafn margir landsmenn
verið settir í einangrun eins og nú vegna mögulegra mislingasmita, eða 66 talsins.
Þórólfur Guðnason á
skrifstofu sinni eftir
annasama mislingadaga.
Mynd/gag
Hvað segir sagan?
Mislingar lögðu
landsmenn á 19. öld
Mislingafaraldrar árin 1846 og 1882 voru
mannskæðir. Fjórfalt fleiri létust í júní 1846
en reikna mátti með en um 1300 fleiri en bú-
ast mátti við í seinni faraldrinum. Staðbund-
inn faraldur geisaði á Austurlandi árið 1869.
Alls 64% þeirra sem létust árið 1882 voru
börn yngri en fjögurra ára. Dánarhlutfall
kvenna á barneignaraldri var tvöfalt hærra
en karla á sama aldri og fæðingartíðni 7-9
mánuðum eftir mislingafaraldurinn það ár
lækkaði um 50%.
Þrír greindust með mislinga árið 2017 og
árið 2014 greindust mislingar hér sem þá
hafði ekki gerst allt frá árinu 1996.
Heimild: Grein Söndru Gunnarsdóttur, Haraldar Briem og
Magnúsar Gottfreðssonar í 04. tbl. 100. árg. 2014