Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - apr. 2019, Blaðsíða 12

Læknablaðið - apr. 2019, Blaðsíða 12
164 LÆKNAblaðið 2019/105 R A N N S Ó K N gláku á Landspítala, þannig náði rannsóknartímabilið frá hluta árs 2017 til hluta árs 2013. Útilokaðir voru þeir sem höfðu áður gengist undir skurðaðgerð við gláku. Hver einstaklingur kom að- eins einu sinni fyrir í rannsókninni þó svo að aðgerð hafi verið framkvæmd á báðum augum. Athuguð voru gögn í sjúkraskrám einstaklinga í Sögukerfinu og í sjúkraskrám augnlækna. Einnig var stuðst við lyfjagagnagrunn landlæknis við öflun upplýsinga. Skráðar voru sjúkdómsgreiningar einstaklinga ásamt aldri og kyni. Skráð voru öll lyf til inntöku á 6 mánaða tímabili, bæði fyr- ir og eftir aðgerð. Lausasölulyf voru ekki talin með nema þeirra væri sérstaklega getið í sjúkraskrá eða lyfseðill leystur út í lyfja- gagnagrunni landlæknis. Lyf til innöndunar, útvortis notkunar og lyf til innspýtingar voru ekki talin með í rannsókninni. Vítamín og bætiefni voru ekki tekin með. Skráð var augnþrýstingslækk- andi meðferð fyrir aðgerð, en þær upplýsingar voru aðgengilegar í sjúkraskrám augnlækna um allt rannsóknarþýðið. Stuðst var við ATC-flokkun við skráningu á lyfjum. Niðurstöður Rannsóknin náði til 100 einstaklinga. Konur voru 53 og karlar 47. Aldur sjúklinga var 45 til 94 ára og var meðalaldur þeirra 75 ± 11 ár, miðgildi aldurs var 78 ár. Meðalfjöldi lyfja, annarra en gláku- lyfja var 5,3 lyf á þeim tíma sem aðgerðin fór fram. Þrettán einstak- lingar tóku engin lyf önnur en glákulyf, en hjá þeim 87 einstak- lingum sem tóku lyf, var lyfjanotkun 6,1 lyf að meðaltali, allt frá einu lyfi upp í 18 lyf. Glákulyf Meðalfjöldi augnþrýstingslækkandi lyfja var 3,0 lyf á hvern sjúk- ling. Prostaglandín-hliðstæður voru algengasta augnþrýstings- lækkandi lyfið, notað af 92 sjúklingum. Næstalgengastir voru beta-blokkar hjá 80 sjúklingum, þar næst karbóanhýdrasa-hemlar í dropaformi sem 71 sjúklingur notaði. Yfirlit yfir augnþrýstings- lækkandi meðferð rannsóknarþýðisins er í töflu I. Sjúkdómsgreiningar og lyf til inntöku Algengasti lyfjaflokkurinn var blóðþrýstingslækkandi lyf sem 57 sjúklingar notuðu. Næstalgengasti lyfjaflokkurinn voru svefnlyf og kvíðastillandi lyf sem 40 sjúklingar notuðu. Á þvagræsilyfjum voru 36 og 32 á blóðþynnandi meðferð. Í töflu II má sjá 15 algeng- ustu lyfjaflokkana sem hópurinn notaði. Algengasta einstaka lyfið var svefnlyfið zópíklón sem var notað af 29 sjúklingum. Í töflu III má sjá undirflokka fjögurra algengustu lyfjaflokkanna. Meðalfjöldi sjúkdómsgreininga sem þörfnuðust lyfjameðferðar var 2,8 greiningar á hvern einstakling og má sjá yfirlit yfir helstu greiningar í töflu IV. Hafa verður í huga að upplýsingar um sjúk- dómsgreiningar voru ekki alltaf aðgengilegar og því eru þær niðurstöður aðeins til viðmiðunar. Umræða Lyfjanotkun og augndropameðferð Til samanburðar við rannsókn Maríu Gottfreðsdóttur og félaga,5 sem var framkvæmd í Bandaríkjunum, er lyfjanotkun íslenska þýðisins mun meiri en þess bandaríska. Þar var notkunin aðeins 3,5 samanborið við 5,3 lyf að meðaltali hér á landi. Hins vegar verður að hafa í huga að meðalaldur þýðisins í þessari rannsókn er um það bil 10 árum hærri og er með svo langt gengna gláku að skurðaðgerðar er þörf. Einnig er samsetning hópsins önnur og einsleitari á Íslandi. Frá þeim tíma sem María Gottfreðsdóttir gerði sína rannsókn 1997 hefur orðið mikil aukning á fjöllyfjameðferð um allan heim.6 Í grein í Læknablaðinu frá 2013 er lyfjanotkun einstaklinga á hjúkrunarheimilum á Íslandi skoðuð árin 2002-2004 og er með- alfjöldi lyfja 10 á hvern einstakling.7 Hins vegar er meðalaldur- inn í þeirri rannsókn 8 árum hærri en í okkar þýði en 13% voru á glákumeðferð. Þó verður að setja þann fyrirvara við niðurstöður að lausasölulyf, innöndunarlyf og lyf til innspýtingar voru ekki talin með í rannsókninni og er meðalfjöldi lyfja líklega vanáætl- aður af þessum sökum. Erfitt getur verið fyrir eldra fólk að halda utan um augndropa- meðferð og sérstaklega þegar það notar einnig fjölda annarra Tafla I. Fjöldi einstaklinga á tiltekinni augnþrýstingslækkandi meðferð. Augnþrýstingslækkandi meðferð Fjöldi Prostaglandín-hliðstæður 92 Beta-blokkar 80 Karbóanhýdrasa-hemlar 71 Adrenvirk lyf 40 Karbóanhýdrasa-hemlar um munn 11 Pílókarpín 10 Tafla II. Fjöldi einstaklinga á tiltekinni meðferð. Lyfjaflokkur Fjöldi Blóðþrýstingslækkandi lyf 57 Svefn- og kvíðastillandi lyf 40 Þvagræsilyf 36 Segavarnarlyf og lyf sem hindra samloðun blóðflagna 32 Prótónpumpuhemlar 31 Önnur verkjalyf og hitalækkandi lyf (parasetamól) 30 Blóðfitulækkandi lyf 29 Kódein og sterk verkjalyf 24 Þunglyndislyf 22 Bólgueyðandi lyf og gigtarlyf 17 Kynhormónar 13 Skjaldkirtilshormónar 12 Astmalyf 11 Sykursterar 11 Þvagfæralyf (sildenafil) 8

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.