Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - apr. 2019, Blaðsíða 19

Læknablaðið - apr. 2019, Blaðsíða 19
LÆKNAblaðið 2019/105 171 R A N N S Ó K N Inngangur Bráð gallblöðrubólga er ein algengasta innlagnarástæðan á kvið- arholsskurðdeildir og stór hluti sjúklinganna eru aldraðir.1 Al- þjóðlegar leiðbeiningar um meðferð bráðrar gallblöðrubólgu hafa nýlega verið endurskoðaðar.2 Samkvæmt þeim er mælt með að meta umfang bólgu, meðal annars með myndgreiningarrannsókn og ákvarða meðferð í samræmi við það. Mælt er með aðgerð hjá sjúklingum sem hafa væg bólgumerki og með tímalengd einkenna innan við 7 daga hjá reynslumiklum skurðlæknum en að öðrum kosti skal miða við 72 klukkustundir. Aðgerðin er yfirleitt gerð í kviðsjárspeglun (laparoscopy) en stundum er ekki talið öruggt eða mögulegt að framkvæma að- gerðina í kviðsjá og henni því breytt í opna aðgerð. Rannsóknir hafa sýnt að hlutfall þess að gallblöðrutöku í kviðsjá sé breytt í opna aðgerð sé um 5%.3 Gallblöðrutaka í kviðsjá er í flestum tilvikum örugg með dánartíðni undir 0,8%. Bráðaaðgerð fylgir þó aukin áhætta fyrir sjúklinginn, bæði hjá þeim sem teljast frískir en einnig hjá öldruð- um og þeim sem hafa undirliggjandi fylgisjúkdóma (comorbidity), en rannsóknir hafa sýnt fram á að dánartíðni er mun hærri en við valaðgerð, eða 14-30%.4,5 Erlendar rannsóknir, bæði frá Evrópu og Bandaríkjum Norður-Ameríku, sýna að um helmingur sjúklinga sem leggjast inn með bráða gallblöðrubólgu er meðhöndlaður með íhaldssamri meðferð (concervative treatment) þrátt fyrir að ráðlögð meðferð sé gallblöðrutaka.4,5 Ástæður fyrir þeirri ákvörðun geta verið margvíslegar en hún er venjulega í höndum vakthafandi skurðlæknis. Hún byggist meðal annars á undirliggjandi ástandi sjúklings ásamt fylgisjúkdómum, aðgengi að skurðstofu, reynslu og tímalengd einkenna, svo eitthvað sé nefnt. Ísetning á kera við gallblöðrubólgu á Landspítala 2010-2016 Á G R I P Inngangur Bráð gallblöðrubólga er ein algengasta ástæða bráðainnlagnar á kvið- arholsskurðdeild. Meðferðin er gallblöðrutaka en þegar aðgerð er ekki talin fýsileg er gefin íhaldssöm meðferð með sýklalyfjum. Svari sjúk- lingur ekki meðferð er lagður keri í gallblöðru gegnum húð. Markmið rannsóknarinnar var að skoða ísetningu gallblöðrukera og fylgikvilla þeirrar meðferðar á Landspítala. Efniviður og aðferðir Afturskyggn rannsókn. Farið var í gegnum sjúkraskrár allra með sjúk- dómsgreiningar K80-85 árin 2010-2016 og breytur skráðar í Excel sem einnig var notað við úrvinnslu. Notuð var lýsandi tölfræði. Niðurstöður Alls fengu 4423 sjúklingar galltengdar sjúkdómsgreiningar á tímabil- inu. Þar af voru 1255 (28%) með bráða gallblöðrubólgu og meðalaldur þeirra 58 ár (bil: 18-99). Alls fengu 88 (14%) gallblöðrukera og var meðalaldur þeirra 71 ár (bil: 28-92). Hjá 62 (70%) var kerinn lagður í gegnum lifur. Meðaltímalengd kera var 12 dagar (bil: 0-87). Gerð var gallvegamyndataka um kerann hjá 71 sjúklingi. Sautján sjúklingar voru útskrifaðir heim með kera. Helmingur sjúklinga (n=45, 51%) fór síðar í gallblöðrutöku í kviðsjá, að meðaltali 101 degi frá keraísetningu (bil: 30-258). Breytt var í opna aðgerð hjá 5 sjúklingum (12%). Meðal- aðgerðartími kviðsjáraðgerða var 96 mínútur. Tuttugu og sjö sjúklingar (31%) fengu 28 fylgikvilla og voru flestir minniháttar. Algengasti fylgi- kvillinn var að keri dróst út (n=20) en aðrir voru gallleki (n=3), verkir (n=3) og endurtekin gallblöðrubólga (n=2). Fimm sjúklingar (6%) létust innan 30 daga frá keraísetningu, þrír vegna sýklasóttarlosts en tveir af ástæðum ótengdum sjúkdómnum eða meðferðinni. Ályktun Ísetning gallblöðrukera er ekki algeng meðferð við bráðri gallblöðru- bólgu á Landspítala. Meðferðin er örugg og getur gagnast vel eldri sjúklingum sem ekki er treyst í skurðaðgerð. Katrín Hjaltadóttir1 Kristín Huld Haraldsdóttir1,3 Pétur Hörður Hannesson2,3 Páll Helgi Möller1,3 Höfundar eru öll læknar. 1Skurðdeild, 2röntgendeild Landspítala, 3læknadeild Háskóla Íslands. Fyrirspurnum svarar Katrín Hjaltadóttir, katrinhjalta@gmail.com https://doi.org/10.17992/lbl.2019.04.226 Þegar ákvörðun er tekin um íhaldssama meðferð er sjúkling- ur meðhöndlaður með sýklalyfjum en auk þess er mögulegt að leggja kera gegnum húð og inn í gallblöðruna (percutaneous cho- lecystostomy) til að létta á henni. Aðferðinni var fyrst lýst sem með- ferð við bráðri gallblöðrubólgu af Radder árið 1980 þótt að tæknin hafi verið til staðar frá því 1921.6 Síðan þá hefur gallblöðrukeri verið valkostur við meðferð bráðrar gallblöðrubólgu hjá bráðveik- um sjúklingum eða þeim sem eru í aukinni áhættu á fylgikvillum tengdum svæfingu og aðgerð. Þessari meðferð er stundum beitt ef sjúklingar eru óstöðugir eða svara ekki hefðbundinni meðferð með sýklalyfjum. Samhliða eru sjúklingum gefin sýklalyf í æð.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.