Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - apr. 2019, Blaðsíða 43

Læknablaðið - apr. 2019, Blaðsíða 43
LÆKNAblaðið 2019/105 195 flott orðað,“ segir Ýr. Í kjölfar fundarins hafi hún séð hvernig hún hefði getað sýnt meiri sveigjanleika til að ná meiri árangri í starfi. Söguna sagði hún til að leggja áherslu á góð samskipti á vinnustað og til að gefa ráð. „Heilbrigðiskerfið er rosalega sérstakt. Við erum þétt saman. Við [læknar] erum tengd við vinnu annarra og okkur finnst, og við erum, að framkvæma mikilvægt starf. Almennilegheit hætta að skipta máli,“ sagði hún. Vond samskipti skaðleg Hún vitnaði í rannsókn sem sýndi að einungis fjórðungur fólks sem hefði orðið fyrir leiðindum byðist til að hjálpa þeim sem það svo hitti í kjölfarið í vanda. Það gerði hins vegar helmingur þeirra sem hefðu ekki orðið fyrir leiðindunum. Í fyrirlestrinum sagði hún hvern og einn þurfa að fórna pínulitlu af eigin ákveðni svo heildin næði árangri saman og ekki verði keðja vondra samskipta. „Hegðun okkar mun endurspeglast í þeim sem hafa haft samskipti við okkur,“ sagði hún. Einnig að leiðinleg hegðun leiddi til þess að afköst fólks minnkuðu. Yfirmenn bæru því mikla ábyrgð: „Sem yfirmaður er búið að setja þig í það hlutverk að halda verndarvæng yfir öllum.“ Þá sagði hún mikilvægt að yfirmenn tækju ekki neikvæða hluti sem undirmenn segja persónulega. Þeir þurfi að passa að óánægjan rati rétta leið. „Ef fólkið þitt tal- ar ekki við þig um vandamál talar það við aðra.“ Hurðin þurfi að vera opin og sam- skipti yfirmanna áþekk við alla. Jákvæðni skipti miklu máli. Ýr sagði við Læknablaðið að henni þætti gott að líta á tölur í stað tilfinninga. „Ég vildi sjá hvernig ég gæti staðið mig betur og þá var þetta eitthvað sem ég varð að vinna í.“ En var það þá Íslendingurinn og ákveðni hans sem þvældist fyrir henni í Bandaríkjunum? „Nei, ég held það hafi verið Amerík- aninn í hinum sem þvældist fyrir mér,“ segir Ýr og hlær. Samskiptin sem hún tók á hefðu getað komið upp alls staðar. Ýr segir gott að vera komin heim, hún hafi náð að rækta fagþekkingu sína enn frekar. „En ræturnar blunda alltaf í manni og mér fannst ég hafa fengið það sem ég gat út úr dvölinni ytra,“ segir hún. Spurð hvort svona innlegg sé ekki sér- lega mikilvægt á tímum þar sem ákveðin krísa sé á spítalanum, byggingafram- kvæmdir og plássleysi, svarar hún: „Auðvitað er ég nýkomin inn á spít- alann aftur, spennt fyrir áskorununum, en á endanum er það þannig að það eru ákveðnir hlutir sem þú getur ekki breytt og þá verður sérhver að sætta sig við það og reyna að breyta því sem hægt er. Svo þarf að halda í jákvæðni. Þetta er sama vinnan við þessar ástæður. Við getum unnið glöð í lund eða kvartandi. Það er leiðinlegra að kvarta og tekur meiri orku frá manni.“ „Oft eru það pínulitlir hlutir sem gera það að verkum að fólki líður ekki vel og erfiðara verður að ganga að sama markmiði. Það er ekki þín hegðun sem skiptir máli heldur áhrif hennar á aðra.“ Ýr Sigurðardóttir læknir er komin heim frá Bandaríkjunum reynslunni ríkari og vinnur nú á Barnaspítalanum. Mynd/ga

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.