Læknablaðið - Apr 2019, Page 43
LÆKNAblaðið 2019/105 195
flott orðað,“ segir Ýr. Í kjölfar fundarins
hafi hún séð hvernig hún hefði getað sýnt
meiri sveigjanleika til að ná meiri árangri
í starfi. Söguna sagði hún til að leggja
áherslu á góð samskipti á vinnustað og til
að gefa ráð.
„Heilbrigðiskerfið er rosalega sérstakt.
Við erum þétt saman. Við [læknar] erum
tengd við vinnu annarra og okkur finnst,
og við erum, að framkvæma mikilvægt
starf. Almennilegheit hætta að skipta
máli,“ sagði hún.
Vond samskipti skaðleg
Hún vitnaði í rannsókn sem sýndi að
einungis fjórðungur fólks sem hefði orðið
fyrir leiðindum byðist til að hjálpa þeim
sem það svo hitti í kjölfarið í vanda. Það
gerði hins vegar helmingur þeirra sem
hefðu ekki orðið fyrir leiðindunum.
Í fyrirlestrinum sagði hún hvern og
einn þurfa að fórna pínulitlu af eigin
ákveðni svo heildin næði árangri saman
og ekki verði keðja vondra samskipta.
„Hegðun okkar mun endurspeglast í þeim
sem hafa haft samskipti við okkur,“ sagði
hún. Einnig að leiðinleg hegðun leiddi til
þess að afköst fólks minnkuðu. Yfirmenn
bæru því mikla ábyrgð: „Sem yfirmaður
er búið að setja þig í það hlutverk að halda
verndarvæng yfir öllum.“
Þá sagði hún mikilvægt að yfirmenn
tækju ekki neikvæða hluti sem undirmenn
segja persónulega. Þeir þurfi að passa að
óánægjan rati rétta leið. „Ef fólkið þitt tal-
ar ekki við þig um vandamál talar það við
aðra.“ Hurðin þurfi að vera opin og sam-
skipti yfirmanna áþekk við alla. Jákvæðni
skipti miklu máli.
Ýr sagði við Læknablaðið að henni þætti
gott að líta á tölur í stað tilfinninga. „Ég
vildi sjá hvernig ég gæti staðið mig betur
og þá var þetta eitthvað sem ég varð að
vinna í.“ En var það þá Íslendingurinn og
ákveðni hans sem þvældist fyrir henni í
Bandaríkjunum?
„Nei, ég held það hafi verið Amerík-
aninn í hinum sem þvældist fyrir mér,“
segir Ýr og hlær. Samskiptin sem hún tók
á hefðu getað komið upp alls staðar.
Ýr segir gott að vera komin heim, hún
hafi náð að rækta fagþekkingu sína enn
frekar. „En ræturnar blunda alltaf í manni
og mér fannst ég hafa fengið það sem ég
gat út úr dvölinni ytra,“ segir hún.
Spurð hvort svona innlegg sé ekki sér-
lega mikilvægt á tímum þar sem ákveðin
krísa sé á spítalanum, byggingafram-
kvæmdir og plássleysi, svarar hún:
„Auðvitað er ég nýkomin inn á spít-
alann aftur, spennt fyrir áskorununum,
en á endanum er það þannig að það eru
ákveðnir hlutir sem þú getur ekki breytt
og þá verður sérhver að sætta sig við það
og reyna að breyta því sem hægt er. Svo
þarf að halda í jákvæðni. Þetta er sama
vinnan við þessar ástæður. Við getum
unnið glöð í lund eða kvartandi. Það er
leiðinlegra að kvarta og tekur meiri orku
frá manni.“
„Oft eru það pínulitlir hlutir sem
gera það að verkum að fólki
líður ekki vel og erfiðara verður
að ganga að sama markmiði.
Það er ekki þín hegðun sem
skiptir máli heldur áhrif hennar
á aðra.“
Ýr Sigurðardóttir læknir er komin heim frá Bandaríkjunum reynslunni ríkari og vinnur nú á Barnaspítalanum. Mynd/ga