Ljósmæðrablaðið - Dec 2019, Page 6
6 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2019
Nú er 2020 rétt handan við hornið og við
erum eiginlega staddar mitt á milli tveggja
stórra ára í ljósmæðralífi okkar, 2019
markaði 100 ára afmæli okkar sem fag og
stéttarfélags og héldum við upp á þann
áfanga með ýmsum hætti og skemmti-
legum viðburðum. Má þar nefna afmæl-
isveislu í Rúgbrauðsgerðinni, stóra NJF
ráðstefnu sem samfléttuð var afmælinu,
minningarstein um stofnun félagsins sem
var lagður við Laugaveg 20, sýninguna
„Við tökum vel á móti þér“ í Þjóðarbók-
hlöðu. Frímerki var gefið út, hálsmen var
hannað og selt og nú er gefið út app sem
heitir Fylgja og er hugsað sem upplýs-
ingaveita fyrir ljósmæður, auk þess styttist
í útgáfu ljósmæðratals og sögu félagsins.
En það er skammt stórra högga á milli.
Næsta ár eða árið 2020 hefur Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunin, WHO, tilnefnt
ár ljósmæðra og hjúkrunarfræðinga. Árið 2020 var valið vegna
þess að Florence Nightingale hefði orðið 200 ára hefði hún
lifað og þó að ekki séu bein tengsl milli Florence og ljósmæðra,
þá er 2020 samt ár sem er tileinkað okkur og það kemur ekki
til baka og verður það líklega tækifæri sem er bara einu sinni
a.m.k.á starfsævi okkar flestra. Við verðum því að nýta það
sem best til að kynna okkur og það gagn sem við getum gert í
samfélaginu og hvernig við getum nýtt menntun okkar til fulln-
ustu á sem bestan hátt.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur bent á það að ljós-
mæður og hjúkrunarfræðingar gegni lykilhlutverki í að efla
lýðheilsu og séu um helmingur fagfólks innan heilbrigðiskerf-
isins í mörgum löndum. Það getur vissulega verið satt, ljós-
mæður ná til stórs hóps kvenna og fjölskyldna þeim tíma sem
þær eru hvað opnastar fyrir breytingum. Við erum svo heppnar
hér á Íslandi og hinum Norðurlöndunum að ljósmæður eru vel
menntaðar, búa að ríkri ljósmæðrahefð og njóta almennt séð
virðingar í samfélaginu. Samkvæmt tölum frá WHO þá geta
ljósmæður, menntaðar eftir alþjóðlegum stöðlum, afstýrt meira
en 80% alls mæðradauða, andvana fæðinga og nýburadauða
starfi þær við viðunandi aðstæður. Þess vegna mælist WHO
til þess að starf samkvæmt gagnreyndri þekkingu verði eflt
og fagleg þekking ljósmæðra verði notuð til fulls bæði með
aukinni þátttöku í þverfaglegum teymum og í sjálfstæðum
verkefnum.
Íslenskar ljósmæður hafa vakið mikla athygli erlendis
undanfarin ár fyrir góða útkomu, þátttöku í rannsóknarsam-
starfi og sjálfstæði í störfum og er það jákvætt og skemmti-
legt fyrir okkur sem fagmenn. Við höfum líka verið að reyna
að kynna okkur hér heima fyrir með ýmsum hætti og má því
segja að við höfum smá forskot á það kynningarstarf sem þarf
að vinna á ári ljósmæðra 2020. Ljósmæður hafa allt frá árinu
2003 haldið úti vefsíðunni ljosmodir.is sem er mjög vel sótt
og vinsæl síða. Ljósu appið er nú komið í
33. sæti yfir vinsælustu öpp landsins sem
er líka mjög góður árangur á stuttum tíma.
Snapchat reikningurinn sálugi var einnig
vinsæll miðill og vel sóttur en var ekki
heppilegur vettvangur. Nýjasta viðbótin er
Instagram reikningur félagsins sem hefur
vaxið hratt og er vinsæll og heppilegri
miðill en Snappið.
Þá eru ótaldar ljósmæður sjálfar sem
hafa komið fram í fjölmiðlum, skrifað
greinar, miðlað á samfélagsmiðlum, verið
með sjálfstæða starfsemi eða annað sem
á einhvern hátt hefur vakið athygli. Ljós-
mæður eru ekki „stórasta“ stétt á Íslandi
né í heimi og því er enn mikilvægara en
ella að við bökkum hvor aðra upp og
styðjum þær ljósmæður sem ná athygli
eða einhvers konar árangri af einhverju
tagi. Verum jákvæðar í þeirra garð,
reynum að dreifa/vekja athygli á þeim hvort sem við þekkjum
þær persónulega eða ekki, hvort sem okkur líkar við þær eða
ekki, hvort sem við hefðum gert hlutina eitthvað pínulítið
öðruvísi eða ekki, með því að lyfta undir aðrar lyftum við undir
okkur sjálfar, árangur einnar er áfangaasigur fyrir okkur allar
og fyrir fagið.
Ágætu ljósmæður, leggjumst allar á eitt á ári ljósmæðra 2020
til að kynna okkur sem best, ef tækifæri gefst til greinaskrifa
eða annars sem gerir okkur, eina eða allar, sýnilegri út á við
grípum þá það tækifæri og notum til fulls, styrkur liggur í
sameiginlegu átaki, verum sterkar út á við sem inn á víð á árinu
okkar 2020.
Óska öllum ljósmæðrum og fjölskyldum þeirra gleðilegra
jóla og farsældar í leik og starfi á komandi ári.
Áslaug Valsdóttir.
Áslaug Íris Valsdóttir,
formaður Ljósmæðrafélags Íslands
Á VA R P F O R M A N N S L M F Í
STYRKUR LJÓSMÆÐRA LIGGUR
Í SAMEIGINLEGU ÁTAKI