Ljósmæðrablaðið - dec. 2019, Side 12
12 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2019
F R Æ Ð S L U G R E I N
INNGANGUR
Almennt heilbrigði og heilsuefling hafa verið áberandi hugtök síðustu
áratugi en hreyfing og næring hafa verið þar í brennidepli. Hreyfing og
mataræði virðast oftar en ekki vera það sem fólk leggur áherslu á að
bæta þegar það leitast eftir að efla eigið heilbrigði og oft það fyrsta sem
fagfólk vill skoða þegar verið er að greina áhrifaþætti heilbrigðis hjá
viðkomandi skjólstæðingi. Svefn og svefnvenjur eiga það til að verða
útundan (Erla Björnsdóttir, e.d.).
Umfjöllun um svefn og skort á honum hefur aukist töluvert síðustu
misseri í íslensku samfélagi, ekki síst í kjölfar þess að forsætisráðu-
neytið gaf nýlega út greinargerð þar sem skoðað var hvort færa ætti
klukkuna og greint frá því að nætursvefn Íslendinga sé of stuttur
(Forsætisráðuneytið, 2018). Einnig hefur umræðan verið um þau áhrif
sem nýjasta tækni kann að hafa á eðli og gæði svefns og mögulegan
kostnað sem afleiddar afleiðingar skerts svefnheilbrigðis geta haft fyrir
samfélög (Vísir, 2018).
Svefn er órjúfanlegur þáttur tilverunnar en tilgangur hans var lengi
vel dularfull ráðgáta sem rann úr greipum vísindanna í árþúsundir. Á
síðustu áratugum hefur vísindalegur skilningur á honum aukist svo um
munar. Svefnvísindamaðurinn Matthew Walker (2017) undirstrikar
mikilvægi svefns í nýlegri bók sinni Why We Sleep en þar kemur fram
að svefn sé nauðsynlegur allri líkams- og heilastarfsemi og sé í raun
grunnstoð heilbrigðis. Walker lýsir yfir hljóðlátum faraldri svefnskorts í
nútímasamfélagi og telur að sinnuleysi samfélagsins gagnvart svefni sé
að hluta tengt því hversu langan tíma það hefur tekið vísindin að skýra
frá af hverju við þörfnumst hans. Nú sé það hins vegar orðið ljóst, út frá
niðurstöðum þúsunda rannsókna, að öll helstu líffæri líkamans og ferli
innan heilans hafi gagn af góðum nætursvefni og sömuleiðis geti orðið
meint af sé hann ekki nægur.
Svefnheilbrigði er nýtt hugtak innan heilbrigðisvísinda, en það hefur
verið skilgreint sem margþætt mynstur svefns og vöku, aðlagað að
einstaklingsbundnum, félagslegum- og umhverfislegum þörfum, sem
stuðlar að líkamlegri og tilfinningalegri vellíðan. Gott svefnheilbrigði
einkennist af góðri upplifun einstaklingsins á svefni, viðeigandi tíma-
stjórnun svefntíma, fullnægjandi lengd og nægum gæðum svefns ásamt
viðvarandi árvekni á meðan einstaklingurinn vakir (Buysse, 2014).
National Sleep Foundation (2015) hefur greint frá því að sjö til
níu klukkustunda nætursvefn sé heilbrigð svefnlengd fyrir fullorðna
einstaklinga á aldrinum 18-64 ára. Samkvæmt Walker (2017) geta
stutt svefnlengd og skert svefngæði haft alvarlegar afleiðingar í
för með sér og hann sparar ekki stóru orðin. Sem dæmi má nefna
getur reglulegur svefn undir sex til sjö klukkustundum veikt ónæm-
iskerfið, aukið líkur á stíflun og kölkun kransæðanna, heilablóðfalli,
hjartabilun, þyngdaraukningu og allt að tvöfaldað líkur á krabba-
meini. Auk þess getur ónægur svefn, jafnvel aðeins meðalskerðing
í eina viku, truflað blóðsykurstjórnun það mikið að viðkomandi
gæti flokkast með forstig sykursýki (e. pre-diabetic). Ófullnægjandi
svefn stuðlar svo ennfremur að öllum helstu geðsjúkdómum eins og
þunglyndi, kvíða og sjálfsvígshugsunum. Walker byggir mál sitt á
gagnreyndri þekkingu út frá niðurstöðum sinna eigin rannsókna og
rannsóknaniðurstaðna annarra fræðimanna, en dramatískar lýsingar
hans eru líklega ætlaðar til að vekja fólk til umhugsunar.
Bók Walkers (2017) fjallar þannig nánast um alla króka og kima
svefns ásamt afleiðingum þess að vanrækja hann og ávinning þess
að rækta hann. Mikilvægir þættir sem hann kemur hins vegar ekki
inn á er hvernig svefn getur verið breytilegur milli kynja og hvernig
ákveðnir þættir hans geta verið einstakir meðal kvenna. Þar ber helst
að nefna að svefn og dægursveifla kvenna verður að hluta til fyrir
SVEFN FYRIR TVO: TENGSL SVEFN-
GÆÐA OG SVEFNLENGDAR Á
MEÐGÖNGU VIÐ ÚTKOMU FÆÐINGA
Kristín Georgsdóttir,
hjúkrunarfræðingur og
ljósmóðurnemi á öðru ári
Dr. Berglind Hálfdánsdóttir,
ljósmóðir og lektor við Háskóla
Íslands og á Landspítala