Ljósmæðrablaðið - dec 2019, Qupperneq 17
17LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2019
Nemar í ljósmóðurfræði sem hófu nám nú í haust eru fyrstu nemarnir
sem læra ljósmóðurfræði eftir breyttri námskrá. Nýja námskráin
felur í sér ýmsar spennandi breytingar, svo sem aukna áherslu á
eðlilegt barneignarferli í verknámi, námskeið um getnaðarvarnarráð-
gjöf og valnámskeið á fjórða ári í hjúkrun. Náminu lýkur svo með
meistaragráðu til starfsréttinda.
FORKRÖFUNÁMSKEIÐ Á FJÓRÐA ÁRI
Í HJÚKRUN
Eins og áður eru inntökuskilyrði í nám í ljósmóðurfræði BS-gráða
í hjúkrunarfræði og íslenskt hjúkrunarleyfi. Forkrafa fyrir umsókn
er nú einnig að hafa lokið valnámskeiðum (16 einingum) á 4. ári í
hjúkrunarfræði við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, eða samb-
ærilegum námskeiðum úr öðrum háskólum, Kynheilbrigði 6e (haust)
og Konur, heilsa og samfélag 10e (vor). Þessi námskeið voru fyrst
kennd samkvæmt nýrri námskrá í hjúkrunarfræði skólaárið 2018-
2019. Hjúkrunarfræðingum sem hafa lokið námi býðst að taka þessi
námskeið ef þeir hyggja á nám í ljósmóðurfræði.
Í námskeiðinu Kynheilbrigði kynnast nemendur hugmyndafræði
kynheilbrigðis og skoða mikilvæga þætti er varða kynheilbrigði
einstaklingsins, parsins og hvernig samfélagið getur haft mótandi
áhrif á kynheilbrigði fólks. Jafnframt skyggnast nemendur inn í
margvíslega áhrifaþætti á kynheilbrigði eins og barneign, ófrjósemi,
sjúkdóma og meðferð þeirra sem geta raskað eðlilegri starfsemi
líkamans og haft áhrif á líðan.
Námskeiðið Konur, heilsa og samfélag fjallar um líffræðilega, sál-/
félags- og umhverfislega þætti sem hafa áhrif á heilbrigði kvenna.
Pólitísk stefnumótun og hugmyndir um heilbrigði eru skoðaðar í
kynjafræðilegu samhengi. Unnið er út frá heildrænu sjónarmiði um
æviskeiðin og fjallað um áhrif lífsviðburða, sjúkdóma, ýmissa kvilla
og lausnir við þeim. Í námskeiðinu er einnig fjallað um sérhæfða
líffærafræði kvenna, fósturfræði og barneignarferli og helstu hugtök
í erfðafræði og litningarannsóknum í tengslum við meðgöngu.
ÁHERSLA Á EÐLILEGT BARNEIGNARFERLI
Í nýrri námskráá hefur kennsla um barneignarferlið verið endur-
skipulögð þannig að nú er aukin áhersla á samfellda þjónustu og
kennt samþætt um meðgöngu, fæðingu og sængurlegu í sama
námskeiðinu. Kennt er um eðlilegt barneignarferli á fyrsta misseri
og frávik í barneignarferlinu á seinna misseri fyrsta árs. Þetta gefur
nemendum tækifæri til að læra um barneignarferlið sem heild frá
upphafi náms, öðlast færni og skilning á því sem eðlilegt er fyrst,
og dýpka svo þekkingu sína í ljósmóðurfræði með því að skoða
frávik og áhættuþætti á seinna misseri. Til þess að styðja enn frekar
við færni nemenda í eðlilegu barneignarferli byrjar klínískt nám
fyrr í náminu og fer fram á fyrra misseri fyrsta árs í heilsugæslu og
fæðingarstöðum C og D, þar sem gera má ráð fyrir að ljósmæður
séu að mestu leyti að sinna heilbrigðum konum í eðlilegu barn-
eignarferli. Háskóli Íslands gerði í sumar samning við Björkina um
samstarf við klíníska kennslu nema og hafa nú allir nemendur á fyrra
ári í ljósmóðurfræði fengið tækifæri til þess að sinna konum í eðli-
legu barneignarferli bæði á Fæðingarstofu og í heimahúsum með
ljósmæðrum Bjarkarinnar. Að auki fóru nemendur í verknám á eftir-
farandi fæðingarstaði: Selfoss Keflavík, Akranes, Neskaupsstað og
Ísafjörð.
RÁÐGJÖF UM GETNAÐARVARNIR
Til að bregðast við breytingu á lyfjalögum og lögum um landlækni
og lýðheilsu er varða lyfjaávísanir hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra,
hefur námskeiði um ráðgjöf og getnaðarvarnir verið bætt við í náms-
skrá í ljósmóðurfræði. Þar verður almenn umfjöllun um lög og reglur
varðandi lyfjaávísanir og ábyrgðarskyldu heilbrigðisstarfsmanna en
einnig farið í lyfjafræði hormónagetnaðarvarna út frá áhrifum þeirra
á líkamann og milliverkun lyfja. Í námskeiðinu verður gerð grein
fyrir helstu frábendingum getnaðarvarna og hvað skuli varast við
ávísun þeirra og lögð áhersla á heilsufarssögu og fleiri áhrifaþætti
er varða upplýsta ákvörðun um val á getnaðarvörnum. Nemendur
fá þjálfun í ráðgjöf um getnaðarvarnir, heilsufarsmati kvenna og
skimun á krabbameini í kynfærum kvenna. Aðgöngu að námskeiðinu
hafa starfandi ljósmæður í gegnum Endurmenntun HÍ. Námskeiðið
gefur réttindi til ávísunar getnaðarvarna.
MEISTARANÁM TIL STARFSRÉTTINDA
Ljósmóðurfræðináminu lýkur nú með meistaragráðu og munu
nemendur vinna lokaverkefni sem eru 30 einingar í stað 8 eininga
áður. Verkefnið er unnið að mestu leyti á öðru ári, en nemendur fá
tækifæri til að dýpka sig í aðferðafræði og tölfræði strax á fyrra
ári. Þar sem töluverður námstími fer nú í undirbúning og vinnu
við meistararitgerð hefur hluti klínísks verknáms verið færður yfir
á sumarmisserið. Nemendur verða því í launuðu verknámi yfir
sumartímann milli fyrra og seinna námsárs, og fer verknámið fram
á kennasviði Landspítala.
Emma Marie Swift
LJÓSMÓÐURFRÆÐI TIL FRAMTÍÐAR
- kennt eftir nýrri námskrá í ljósmóðurfræði frá haustinu 2019 -
F R É T T I R
Hrafnhildur ljósmóðir og Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands
skrifa undir samning við Björkina.
Lilja Kristín nemi með fyrsta ljósu-
barnið sitt í Björkinni.
Laufey Rún nemi með fyrsta ljósu-
barnið sitt á Akranesi.