Bændablaðið - 08.05.2017, Síða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2017
„Vandamálið sem við stóðum
frammi fyrir var að á Íslandi er,
þrátt fyrir allt, ekki nóg af vannýttu
hráefni til þess að það stæði undir
því að vera grunnur fóðurfram-
leiðslu með hermannaflugum,“
segir Gylfi Ólafsson, annar stofn-
enda Vía, nýsköpunarfyrirtækis í
skordýraeldi, sem hætti starfsemi í
nóvember í fyrra. Gylfi hélt erindi
á ráðstefnunni Úrgangur í dag –
auðlind á morgun þar sem hann
fjallaði um sögu Vía.
Gylfi og Sigríður Gísladóttir
stofnuðu Víur árið 2014 með það að
markmiði að stunda rannsóknir og
tilraunaræktun á lirfum svörtu her-
mannaflugunnar. Aðalhugmyndin
var að nota vannýtt hráefni til
framleiðslu á fóðurefni í fiskeldi.
„Hugmyndina má rekja til útgáfu
skýrslu Matvæla- og landbúnað-
arstofnunar Sameinuðu þjóðanna
um skordýraát og fóðurframleiðslu,
framtíð þess og möguleika árið
2013. Við skoðuðum þetta nánar
og sáum að skordýr voru ekki rækt-
uð á Íslandi í þessum tilgangi. Því
fórum við að velta því fyrir okkur
hvort það væri ekki fullt af vannýttu
hráefni sem hægt væri að nýta sem
fóður fyrir þessi skordýr, og nota
þær svo til að fóðra dýr og jafnvel
menn. Enn fremur hefur fiskeldi
vaxið mjög hratt á Vestfjörðum og
fiskimjölsverð hækkar. Þar sem
laxar þurfa að fá dýraprótein vild-
um við skoða möguleika á að geta
framleitt prótein úr dýrum sem
eru staðsett lágt í fæðukeðjunni,
til þess að framleiðsla fóðurs væri
sem ódýrust, bæði út frá fjármagni
sem og lífhagkerfinu,“ segir Gylfi.
Lítið um hráefni
Víur rak starfsstöð í Bolungarvík
og störfuðu þar mest þrír
starfsmenn. Þar voru ræktaðar
svartar hermannaflugur, hraðvaxta
hitabeltisskordýr sem nærðust á
úrgangi úr fiskframleiðslu en úr
lirfunum var svo unnið eldisfóður.
Hins vegar komst framleiðsla
fyrirtækisins ekki á legg en Gylfi
telur einkum tvær ástæður liggja
þar að baki. „Í fyrsta lagi framleiðir
Ísland ekkert sérstaklega mikið af
landbúnaðarafurðum miðað við
aðrar þjóðir. Í öðru lagi erum við
orðin mjög góð að nota það sem áður
var vannýtt og setja það ofarlega í
virðiskeðjuna. En hugmyndin okkar
sneri að því að taka vannýtt hráefni
og setja neðarlega í keðjuna, þ.e.a.s.
að nota hana í fóður.“
Hann segir enn fremur að þrátt
fyrir að kvartað sé undan háu
fóðurverði, þá sé verðið afar lágt
til framleiðenda. „Þess vegna er
erfitt að ætla að búa til fyrirtæki sem
framleiðir fóður og hagnast á því.
Viðskiptamódelið okkar reyndist
því ekki nógu sterkt,“ segir Gylfi.
Skordýr flokkuð sem húsdýr
Lög og reglur hafa eðlilega
mikil áhrif á hvernig fyrirtæki
geta unnið en í tilfelli Vía
reyndist reglugerðarumhverfi
afar heftandi. Gylfi segir að
lagaumhverfi Evrópusambandsins
um skordýraeldi sé skiljanlega
óþroskað enda engin hefð fyrir
framleiðslu skordýra til fæðu eða
í fóður.
Skordýr séu því enn sem komið
er flokkuð með öðrum húsdýrum
í reglugerðum og því fylgir
takmarkanir á fóðri fyrir dýrin.
„Þrátt fyrir að sýnt hafi verið
fram á að skordýr geti nærst af skít
og hægt sé að nota slík skordýr
til ýmissa góðra nota á fyllilega
öruggan hátt er óleyfilegt að gefa
húsdýrum skít.“ Þannig ætti að
taka skordýr sérstaklega út fyrir
sviga í flokkun eldisdýra en samtök
skordýraræktenda í Evrópu vinna
nú að því að ná fram breytingum á
reglugerðum, að sögn Gylfa.
Framgangur í Evrópu
Þótt Víur hafi lagt upp laupana
segir Gylfi vera mikla grósku í
þróun skordýraræktunar í Evrópu
og spáir því að ekki líði á löngu
þar til að komi fram vörur sem gera
slíkt eldi auðveldara.
„Ég er sannfærður um að á
næstu 5–10 árum verði til arðbær
fyrirtæki í Evrópu sem framleiða
skordýr í fóðurframleiðslu eða
til manneldis. Þannig munu
tæknilausnir verða til sem munu
hjálpa einstökum bændum til
að nota aukaafurðir frá sér, láta
skordýr éta þær og nota svo
til fóðurframleiðslu á einn eða
annan hátt. Ég hef til að mynda
séð áhugavert úrræði sem miðar
að því að búa til umhverfi þar sem
lirfur gætu étið afganga. Síðan
yrðu hænum sleppt lausum í rýmið
og þær gætu étið lirfurnar beint.“
En enn sem komið er sé
ekki vettvangur á Íslandi fyrir
skordýraeldi. „Við komumst að
þeirri niðurstöðu að þetta var
ekki nógu góð lausn á Íslandi árið
2017. Kannski eftir 10–20 ár, en
það finnst mér í raun ósennilegt
vegna þess lúxusvandamáls að það
er skortur á vannýttu hráefni til að
nota sem fóður fyrir lirfurnar,“
segir Gylfi Ólafsson. /ghp
Víur ræktaði svartar hermannaflugur til fóðurgerðar:
Framleiðsla skordýra reyndist ekki arðbær
– Regluverk og skortur á hráefni stóð viðskiptahugmyndinni fyrir þrifum
FRÉTTIR
Lirfur hermannaflugunnar nærðust á úrgangi úr fiskframleiðslu en úr lirfunum
var svo unnið eldisfóður.
Þrátt fyrir að Víur hafi lagt upp laupana er Gylfi Ólafsson sannfærður um
að á næstu árum verði til arðbær fyrirtæki í Evrópu sem framleiða skordýr
í fóðurframleiðslu eða til manneldis.
Glerárgata 34b v/ Hvannavelli · 600 Akureyri
Sími: 461 1092 · E-mail: asco@asco.is ÁSCO
Hlaut hæsta kynbótadóm sögunnar:
Heimsmethafi til sölu
– Þórálfur frá Prestsbæ á leið úr landi
Stóðhesturinn Þórálfur frá
Prestsbæ hlaut hæsta kynbóta-
dóm sem kveðinn hefur verið upp
á íslenskum hesti á kynbótasýn-
ingu á Melgerðismelum í Eyjafirði
í byrjun mánaðarins.
Þórálfur er nú 8 vetra. Hann
hlaut 8,93 fyrir sköpulag og 8,95
fyrir hæfileika sem gera 8,94 í aðal-
einkunn. Hann hækkaði dóm Spuna
frá Vesturkoti frá 2011 þar með um 2
kommur. Þórálfur hlaut m.a. 9,5 fyrir
skeið, vilja og geðslag, samræmi,
fótagerð og hófa og einkunnina 9,0
fyrir fet, brokk, stökk, réttleika og
prúðleika.
Ræktendur og eigendur Þórálfs
eru Inga og Ingar Jensen frá Svíþjóð
en hesturinn hefur verið í umsjón
Þórarins Eymundssonar, reiðkennara
og tamningamanns, frá upphafi.
„Þetta er öðlingur. Hann er mjög
skrefmikill, hefur góðar gangtegund-
ir og einarðan vilja. Þrátt fyrir það
geta allir riðið honum. Það fer bara
eftir því hvað maður krefur hann
mikið. Ef maður biður hann um
afköst þá skilar hann þeim alveg
hreint,“ segir Þórarinn.
Heiðursverðlaun í báða leggi
Þórálfur er stórættaður gripur, undan
tveimur heiðursverðlaunahrossum.
Móðir hans er Þoka frá Hólum sem
hlaut Glettubikarinn árið 2012. Hún
hefur nú gefið 12 afkvæmi og hafa
öll dæmd afkvæmi hlotið háa fyrstu
verðlauna dóma.
Þórarinn hefur tamið og sýnt öll
afkvæmi Þoku og segir vilja og getu
einkenna afkvæmi hennar.
„Þau eru með ofsalega jafnar og
góðar gangtegundir og bæta lengi í.“
Þórálfur sé einmitt gott dæmi þess,
en hann hefur verið að bæta í dómi
ár frá ári.
Faðir Þórálfs er Álfur frá Selfossi
sem hlaut Sleipnisbikarinn árið
2012. Undan honum eru nú skráð
694 afkvæmi, þar af 118 fyrstu verð-
launa hross.
Samkvæmt Worldfeng eru
afkvæmi Þórálfs nú 118 og eru þau
elstu að komast á tamningaaldur.
Stefnt á Heimsleika
Hæst dæmdu hross á kynbóta-
sýningum ársins fá boð um að
koma fram á kynbótasýningu á
Heimsmeistaramótinu sem fram fer
í Hollandi í ágúst. Ef fer sem horfir
mun Þórálfur því vera fulltrúi Íslands
í elsta flokki stóðhesta ytra.
Gæðingurinn mun auk þess vera
til sölu og að sögn Þórarins hafa ein-
hverjar þreifingar nú þegar átt sér
stað. /ghp
Þórarinn Eymundsson hefur séð um Þórálf frá Prestsbæ frá upphafi og segir
gæðinginn mikinn öðling. Mynd/Bjarney Anna