Bændablaðið - 08.05.2017, Qupperneq 12

Bændablaðið - 08.05.2017, Qupperneq 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2017 „Vandamálið sem við stóðum frammi fyrir var að á Íslandi er, þrátt fyrir allt, ekki nóg af vannýttu hráefni til þess að það stæði undir því að vera grunnur fóðurfram- leiðslu með hermannaflugum,“ segir Gylfi Ólafsson, annar stofn- enda Vía, nýsköpunarfyrirtækis í skordýraeldi, sem hætti starfsemi í nóvember í fyrra. Gylfi hélt erindi á ráðstefnunni Úrgangur í dag – auðlind á morgun þar sem hann fjallaði um sögu Vía. Gylfi og Sigríður Gísladóttir stofnuðu Víur árið 2014 með það að markmiði að stunda rannsóknir og tilraunaræktun á lirfum svörtu her- mannaflugunnar. Aðalhugmyndin var að nota vannýtt hráefni til framleiðslu á fóðurefni í fiskeldi. „Hugmyndina má rekja til útgáfu skýrslu Matvæla- og landbúnað- arstofnunar Sameinuðu þjóðanna um skordýraát og fóðurframleiðslu, framtíð þess og möguleika árið 2013. Við skoðuðum þetta nánar og sáum að skordýr voru ekki rækt- uð á Íslandi í þessum tilgangi. Því fórum við að velta því fyrir okkur hvort það væri ekki fullt af vannýttu hráefni sem hægt væri að nýta sem fóður fyrir þessi skordýr, og nota þær svo til að fóðra dýr og jafnvel menn. Enn fremur hefur fiskeldi vaxið mjög hratt á Vestfjörðum og fiskimjölsverð hækkar. Þar sem laxar þurfa að fá dýraprótein vild- um við skoða möguleika á að geta framleitt prótein úr dýrum sem eru staðsett lágt í fæðukeðjunni, til þess að framleiðsla fóðurs væri sem ódýrust, bæði út frá fjármagni sem og lífhagkerfinu,“ segir Gylfi. Lítið um hráefni Víur rak starfsstöð í Bolungarvík og störfuðu þar mest þrír starfsmenn. Þar voru ræktaðar svartar hermannaflugur, hraðvaxta hitabeltisskordýr sem nærðust á úrgangi úr fiskframleiðslu en úr lirfunum var svo unnið eldisfóður. Hins vegar komst framleiðsla fyrirtækisins ekki á legg en Gylfi telur einkum tvær ástæður liggja þar að baki. „Í fyrsta lagi framleiðir Ísland ekkert sérstaklega mikið af landbúnaðarafurðum miðað við aðrar þjóðir. Í öðru lagi erum við orðin mjög góð að nota það sem áður var vannýtt og setja það ofarlega í virðiskeðjuna. En hugmyndin okkar sneri að því að taka vannýtt hráefni og setja neðarlega í keðjuna, þ.e.a.s. að nota hana í fóður.“ Hann segir enn fremur að þrátt fyrir að kvartað sé undan háu fóðurverði, þá sé verðið afar lágt til framleiðenda. „Þess vegna er erfitt að ætla að búa til fyrirtæki sem framleiðir fóður og hagnast á því. Viðskiptamódelið okkar reyndist því ekki nógu sterkt,“ segir Gylfi. Skordýr flokkuð sem húsdýr Lög og reglur hafa eðlilega mikil áhrif á hvernig fyrirtæki geta unnið en í tilfelli Vía reyndist reglugerðarumhverfi afar heftandi. Gylfi segir að lagaumhverfi Evrópusambandsins um skordýraeldi sé skiljanlega óþroskað enda engin hefð fyrir framleiðslu skordýra til fæðu eða í fóður. Skordýr séu því enn sem komið er flokkuð með öðrum húsdýrum í reglugerðum og því fylgir takmarkanir á fóðri fyrir dýrin. „Þrátt fyrir að sýnt hafi verið fram á að skordýr geti nærst af skít og hægt sé að nota slík skordýr til ýmissa góðra nota á fyllilega öruggan hátt er óleyfilegt að gefa húsdýrum skít.“ Þannig ætti að taka skordýr sérstaklega út fyrir sviga í flokkun eldisdýra en samtök skordýraræktenda í Evrópu vinna nú að því að ná fram breytingum á reglugerðum, að sögn Gylfa. Framgangur í Evrópu Þótt Víur hafi lagt upp laupana segir Gylfi vera mikla grósku í þróun skordýraræktunar í Evrópu og spáir því að ekki líði á löngu þar til að komi fram vörur sem gera slíkt eldi auðveldara. „Ég er sannfærður um að á næstu 5–10 árum verði til arðbær fyrirtæki í Evrópu sem framleiða skordýr í fóðurframleiðslu eða til manneldis. Þannig munu tæknilausnir verða til sem munu hjálpa einstökum bændum til að nota aukaafurðir frá sér, láta skordýr éta þær og nota svo til fóðurframleiðslu á einn eða annan hátt. Ég hef til að mynda séð áhugavert úrræði sem miðar að því að búa til umhverfi þar sem lirfur gætu étið afganga. Síðan yrðu hænum sleppt lausum í rýmið og þær gætu étið lirfurnar beint.“ En enn sem komið er sé ekki vettvangur á Íslandi fyrir skordýraeldi. „Við komumst að þeirri niðurstöðu að þetta var ekki nógu góð lausn á Íslandi árið 2017. Kannski eftir 10–20 ár, en það finnst mér í raun ósennilegt vegna þess lúxusvandamáls að það er skortur á vannýttu hráefni til að nota sem fóður fyrir lirfurnar,“ segir Gylfi Ólafsson. /ghp Víur ræktaði svartar hermannaflugur til fóðurgerðar: Framleiðsla skordýra reyndist ekki arðbær – Regluverk og skortur á hráefni stóð viðskiptahugmyndinni fyrir þrifum FRÉTTIR Lirfur hermannaflugunnar nærðust á úrgangi úr fiskframleiðslu en úr lirfunum var svo unnið eldisfóður. Þrátt fyrir að Víur hafi lagt upp laupana er Gylfi Ólafsson sannfærður um að á næstu árum verði til arðbær fyrirtæki í Evrópu sem framleiða skordýr í fóðurframleiðslu eða til manneldis. Glerárgata 34b v/ Hvannavelli · 600 Akureyri Sími: 461 1092 · E-mail: asco@asco.is ÁSCO Hlaut hæsta kynbótadóm sögunnar: Heimsmethafi til sölu – Þórálfur frá Prestsbæ á leið úr landi Stóðhesturinn Þórálfur frá Prestsbæ hlaut hæsta kynbóta- dóm sem kveðinn hefur verið upp á íslenskum hesti á kynbótasýn- ingu á Melgerðismelum í Eyjafirði í byrjun mánaðarins. Þórálfur er nú 8 vetra. Hann hlaut 8,93 fyrir sköpulag og 8,95 fyrir hæfileika sem gera 8,94 í aðal- einkunn. Hann hækkaði dóm Spuna frá Vesturkoti frá 2011 þar með um 2 kommur. Þórálfur hlaut m.a. 9,5 fyrir skeið, vilja og geðslag, samræmi, fótagerð og hófa og einkunnina 9,0 fyrir fet, brokk, stökk, réttleika og prúðleika. Ræktendur og eigendur Þórálfs eru Inga og Ingar Jensen frá Svíþjóð en hesturinn hefur verið í umsjón Þórarins Eymundssonar, reiðkennara og tamningamanns, frá upphafi. „Þetta er öðlingur. Hann er mjög skrefmikill, hefur góðar gangtegund- ir og einarðan vilja. Þrátt fyrir það geta allir riðið honum. Það fer bara eftir því hvað maður krefur hann mikið. Ef maður biður hann um afköst þá skilar hann þeim alveg hreint,“ segir Þórarinn. Heiðursverðlaun í báða leggi Þórálfur er stórættaður gripur, undan tveimur heiðursverðlaunahrossum. Móðir hans er Þoka frá Hólum sem hlaut Glettubikarinn árið 2012. Hún hefur nú gefið 12 afkvæmi og hafa öll dæmd afkvæmi hlotið háa fyrstu verðlauna dóma. Þórarinn hefur tamið og sýnt öll afkvæmi Þoku og segir vilja og getu einkenna afkvæmi hennar. „Þau eru með ofsalega jafnar og góðar gangtegundir og bæta lengi í.“ Þórálfur sé einmitt gott dæmi þess, en hann hefur verið að bæta í dómi ár frá ári. Faðir Þórálfs er Álfur frá Selfossi sem hlaut Sleipnisbikarinn árið 2012. Undan honum eru nú skráð 694 afkvæmi, þar af 118 fyrstu verð- launa hross. Samkvæmt Worldfeng eru afkvæmi Þórálfs nú 118 og eru þau elstu að komast á tamningaaldur. Stefnt á Heimsleika Hæst dæmdu hross á kynbóta- sýningum ársins fá boð um að koma fram á kynbótasýningu á Heimsmeistaramótinu sem fram fer í Hollandi í ágúst. Ef fer sem horfir mun Þórálfur því vera fulltrúi Íslands í elsta flokki stóðhesta ytra. Gæðingurinn mun auk þess vera til sölu og að sögn Þórarins hafa ein- hverjar þreifingar nú þegar átt sér stað. /ghp Þórarinn Eymundsson hefur séð um Þórálf frá Prestsbæ frá upphafi og segir gæðinginn mikinn öðling. Mynd/Bjarney Anna

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.