Bændablaðið - 08.05.2017, Side 15
15Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2017
Jörðin Ásbrekka, landnúmer 166535, er talin vera um 131,9 hektarar. Á jörðinni er íbúðar-
hús á einni hæð byggt 1985 um 100m2. Fjós og hlaða byggt árið 1966. Jörðin er afar skjól-
sæl og að heita má öll grasi gróin, þótt nokkrir klapparásar séu í landareigninni. Mestur
hluti land sins er þurrlendi og mýri sem ekki er stór og hefur verið ræst fram. Túnið liggur
í vari móti suðri og suðvestri og er jafnlent. Jörðin á land að Stóru-Laxá og er veiðisvæði 2
fyrir landi jarðarinnar. Veiðitekjur eru um 500 þúsund á ári og má búast við vaxandi tekjum
í framtíð inni. Bærinn stendur suðvestan í hæðardragi, sem gengur suður úr Háholtsfjalli.
Hitaveita frá Hitaveitu Gnúpverja sem er að 60% í eigu bænda á svæðinu.
Í tíð núverandi eiganda hafa verið gerðar umtalsverðar endurbætur. Má þar nefna að íbúð-
ar húsið hefur allt verið endurnýjað, t.d. nýir ofnar, nýtt inntak, nýtt hitakerfi, nýjar hurðir,
nýjar flísar á gólfum, ný drenlögn einnig ný og glæsileg rúmlega 100m2 verönd í kringum
húsið. Gróðursett hefur verið í mikið af landinu, eða um 400 þúsund plöntum í 80–100 ha.,
og umtalsvert af stórum trjám. Búið að girða alla jörðina. Boruð hefur verið ný hola eftir
köldu vatni. Samgöngur um jörðina hafa verið bættar, m.a. með mikilli vegalagn ingu og
einnig hefur verið komið fyrir fjórum nýjum ræsum. Útihúsin hafa einnig verið mikið end-
ur nýjuð og innréttuð, m.a. sett nýtt þak, nýjar hurðir og allt málað, utan sem innan. Nýtt
gólf og milliloft í hlöðu. Milliloftið lagt parketi og loft panelklætt. Endurnýjað hefur verið
gólf í fjósi. Plön fyrir framan íbúðarhúsið og útihúsin hafa öll verið hreinsuð og mikið magn
af möl borin í þau. Búið að leggja ljósleiðara í hús. Mjög áhugaverð jörð í fögru umhverfi.
Upplýsingar veitir Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali
Sími: 892 6000 - Netfang: magnus@fasteignamidstodin.is
TIL SÖLU JÖRÐIN ÁSBREKKA Í
SKEIÐA- OG GNÚPVERJAHREPPI ÁRNESSÝSLU