Bændablaðið - 08.05.2017, Side 18

Bændablaðið - 08.05.2017, Side 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2017 Útskrift frá Háskólanum á Hólum fer fram 9. júní: Praktíkin heillar HROSS&HESTAMENNSKA Guðrún Hulda Pálsdóttir gudrun.hulda.palsdottir@gmail.com Tæplega sextíu nemendur útskrifast frá Háskólanum á Hólum föstudaginn 9. júní. Meðal þeirra er Sarah Høegh, sem gekk hlaðin verðlaunagripum frá reiðsýningu brautskráningarnema í reiðmennsku og reiðkennslu sem fram fór í maí. Sarah Høegh hlaut viðurkenningu Háskólans á Hólum fyrir besta árangur á lokaprófi í reiðmennsku. Einnig vann hún Morgunblaðshnakkinn, sem veittur er fyrir besta heildarárangur í öllum reiðmennskugreinum í BS-námi í reiðmennsku og reiðkennslu. Sarah er 25 ára frá Danmörku en hefur búið hér á landi í sex ár. „Ég kom til landsins þegar ég var 19 ára og ætlaði að vera hér í þrjá mánuði. Síðan fannst mér svo gaman að ég sá fram á að vera hérna,“ segir Sarah sem réði sig í vinnu á hrossaræktarbúinu Grænhóli í Ölfusi. Árin urðu þrjú og Sarah gat ekki hugsað sér að leggja neitt annað fyrir sig en hestamennsku og skráði sig ásamt vinkonu sinni í nám í reiðmennsku og reiðkennslu við Háskólann á Hólum. Hún segir námið hafa veitt sér dýpri skilning á fjölbreyttum þáttum hestamennskunnar. „Af hverju þær aðferðir, sem beittar eru í þjálfun hestsins, eru notaðar og af hverju þær virka. Maður fer að skilja betur eðli hestsins, hvernig hann hugsar og lærir. Ég hafði einnig mikið upp úr því og var að læra hvernig líkami hestsins virkar, allt í tengslum við þjálfunarlífeðlisfræði og fóðurfræði hans. Þetta hefur allt áhrif á þjálfun hans,“ segir Sarah. Rannsakaði áhrif hófhlífa á brokk Sarah skrifaði lokaverkefni um áhrif hófhlífa á fótlyftu, skreflengd og skreftíðni á brokki á hlaupa- bretti. „Við létum átta hross brokka á hlaupabretti án hlífa og síðan með 240 g hlífar. Við tókum þau upp á háhraðamyndavél og út frá myndum mældum við skreflengd og skreftíðni. Einnig mældum við hnélyftu og vinkla á framfótum. Niðurstaðan leiddi í ljós að skreflengd og svif breytist ekki við hófhlífanotkun. En maður sækist eftir því að ná því fram í keppni. Hins vegar lyfta hross meira með hlífar,“ segir Sarah en bendir þó á að niðurstöðurnar taka aðeins til áhrifa hófhlífa því hrossin voru knapalaus í rannsókninni. Hún segir það hafa verið fróð- legt að vinna með vísindalegu hlið hestamennskunnar en sjái þó ekki fyrir sér að leggja rannsóknir fyrir sig. „Ég vil frekar vera í praktíska hlutanum, það er að segja að þjálfa hross og keppa. Ég held að það gæfist aldrei tími til að leggja báða þætti fyrir sig samhliða,“ segir hún. Þjálfar og temur í Þorleifskoti Sarah hefur nú hafið störf við tamningar og þjálfun á Þorleifskoti hjá Selfossi, en þar vinnur hún með kærasta sínum, Bjarna Sveinssyni. „Aðaláherslan verður lögð á að þjálfa upp kynbóta- og keppn- ishross, en mér þykir gaman að byggja upp hross til lengri tíma til að sjá hverju hægt sé að ná fram úr þeim. Þá þarf maður alltaf að halda áfram að frumtemja, því maður lærir svo mikið af því,“ segir hún og ber náminu á Hólum góða söguna. „Þetta voru frábær þrjú ár þar sem ég lærði svo margt. Auk þess kynntist ég fullt af fólki sem ég get leitað til í framtíðinni.“ Sarah Høegh hlaut tvær viðurkenningar eftir reiðsýningu brautskráninganema. Hún er hér ásamt hryssunni sinni, Frigg frá Austurási. Mynd/ Helle Høegh Útskriftarnemar í reiðmennsku og reiðkennslu stilla sér upp eftir að hafa fengið hina bláu einkennisjakka Félags tamningamanna. Mynd/ Helle Høegh Sarah og Frigg á sundspretti. Mynd/ Linda Gustafsson Til að bæta mat á gangtegundum hrossa í kynbótasýningum verða settir upp hljóðnemar við brautirnar á öllum sýningarsvæðum í ár. „Þetta er gert til þess að dómarar heyri vel takt hestsins í öllum tilfell- um og mun bæta öryggi dómsins en einnig mun þetta vonandi bæta sam- ræmi í dómum á milli sýningarstaða en sums staðar eru aðstæður þannig að dómarar sjá og heyra vel en sums staðar heyra þeir ekki neitt inni í dómsskúrum. Þetta var prófað á tveimur sýningum í fyrra, þannig að nokkur reynsla er komin á útfærslur og verður spennandi að þróa þessa nýjung áfram,“ segir Þorvaldur Kristjánsson, ábyrgðarmaður í hrossarækt hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins. Nýjung í mati á gangtegundum Tinnusvartur fjögurra vetra stóðhestur, Hylur frá Flagbjarnarholti, hlaut á dögunum 8,96 fyrir sköpulag á kynbótasýningu á Sörlastöðum. Mun það vera hæsta einkunn sem fjögurra vetra stóðhestur hefur hlotið í sögunni, og er jafnframt fjórði hæsti dómur sem kveðinn hefur verið upp fyrir sköpulag á íslenskum hesti. Hylur hlaut einkunnina 9,5 fyrir samræmi og prúðleika, 9,0 fyrir hófa, fótagerð, háls, herðar og bóga, bak og lend, 8,5 fyrir höfuð og 7,5 fyrir réttileika. Í athugasemdum dómara stendur að Hylur sé létt- byggður, fóta- hár, sívalvaxinn með vöðvafyllt bak og góða baklínu, jafna lend, reistan, langan og mjúkan háls og háar herðar. Þægur og meðfærilegur Faðir Hyls er Herkúles frá Ragnheiðarstöðum sem sjálfur hlaut 8,66 fyrir sköpulag á Landsmóti hestamanna í fyrra. Móðir hans er Rás frá Ragnheiðarstöðum en sú hlaut aðeins 7,93 fyrir sköpulag þegar hún var sýnd árið 1998. Hún hefur hins vegar gefið vel sköpuð afkvæmi samkvæmt Worldfeng, upprunaættbók íslenska hestsins. Hylur er í eigu Arnars Guðmundssonar og Sindrastaða ehf. en eigendur þess eru Ísólfur Líndal Þórisson og Vigdís Gunnarsdóttir. „Hreyfieðli Hyls er að okkar mati einstaklega skemmtilegt. Hann er mjög léttstígur og á auð- velt með að bera sig, með fallegum hreyfingum og höfuðburði. Hann hefur mikið fas og útgeislun, algjör sjarmör. Geðslagið er líka gott, hann er þægur og meðfærilegur,“ segir Vigdís. Byrjað var að temja Hyl á liðnu hausti en Vigdís segir að þau stefni á að sýna hann í reið næsta sumar. „Hann er orðinn ágætlega tam- inn en það hefur farið mikil orka hjá honum í að stækka og með svo miklar hreyfingar að við tókum ákvörðun um að gefa honum lengri tíma til að ná upp styrk og jafnvægi fyrir sýningu í reið. Hann er mjög gengur og sýnir allan gang undir sjálfum sér.“ Hyli var sleppt í hryssur eftir dóminn, og mun þjóna hryssum í hólfi á Lækjamóti í sumar. /ghp Meteinkunn fyrir sköpulag: Glæsigripurinn Hylur Hylur mun taka á móti hryssum í Lækjarmóti í sumar. Mynd/Vigdís Gunnarsd. Hylur hlaut m.a. einkunnina 9,5 fyrir samræmi og prúðleika. Mynd/Arnar Guðmundsson Bændablaðið á bbl.is og líka á Facebook Smáauglýsingar 56-30-300

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.