Bændablaðið - 08.05.2017, Page 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2017
Þremur tonnum af rusli var
safnað í Aðalvík í árlegri
hreinsunarferð á Hornstrandir í
lok maí. Alls tóku 31 sjálfboða-
liði til hendinni, þar af hópur
frá haf- og strandsvæðastjórnun
í Háskólasetri Vestfjarða, auk
Landhelgisgæslunnar á varð-
skipinu Þór sem ferjaði hópinn
frá Ísafirði.
„Við ætluðum upphaflega að
fara í Bolungarvík á Ströndum.
En stíf norðaustanátt gerði það að
verkum að það var ólendandi í vík-
inni, þannig að það var farið í plan
B – sem var að fara í Aðalvík. Þar
var hreinsað daglangt allar þrjár
víkurnar, Látra, Miðvík og Sæból,“
segir Gauti Geirsson, upphafsmaður
hreinsunarferðarinnar.
Uppskeran var, eins og fyrr sagði,
tæp þrjú tonn af rusli sem að megn-
inu til var plast sem hefur nú
verið komið í endurvinnslu.
„Aðalvík er ekki mikið
rekasvæði og því hefur ruslið
ekki safnast þar upp gegn-
um árin eins og í mörgum
öðrum fjörðum. Hins vegar
urðum við vör við rusl sem
augljóslega fýkur ofan af
landi, s.s. kókómjólkurfern-
ur, pylsusinnepsumbúðir og
nammibréf,“ segir Gauti.
Hugað að neysluvenjum
Þetta var fjórða árið sem blás-
ið var til hreinsunarátaksins.
„Hugmyndin á rætur sínar að
rekja til þess þegar hingað
kom franskur ljósmyndari til
að mynda fegurð Hornstranda.
Honum ofbauð svo ruslið í
fjörðunum að hann endaði
með að taka bara myndir af
plastinu og hélt svo sýningu í
Frakklandi um umhverfissóð-
ana Íslendinga. Þetta stakk
mig og ég vildi gera eitthvað
í málunum,“ segir Gauti, sem
er ættaður af svæðinu.
Hann hrinti því af stað
þessu árlega hreinsunarátaki.
„Við reynum að gera mikið á
stuttum tíma, einu sinni á ári,“
segir hann og bætir við að eftir um
þrjú ár verði búið að fara í alla firði
Hornstranda.
Verkefninu er þó ekki síst ætlað
að vekja athygli á afleiðingum
neysluvenja mannsins. „Við viljum fá
fólk til að líta í eigin barm. Við verðum
að huga að neyslu okkar í tengslum
við plast og hvernig við göngum
um umhverfi okkar. Hornstrandir er
ósnortið svæði sem lítið er búið að
hreyfa við af mannavöldum. Nema
hvað, þar er þetta mikla magn af
plasti. Þessi andstæða ósnortinnar
náttúru við plastrusl sýnir okkur svo
skýrt að svona á þetta ekki að vera,“
segir Gauti Geirsson. /ghp
Sölumenn
Plast Verð án vsk.
Polybale 750 –Hvítt 9.390 kr.
Polybale 750 – Grænt 9.490 kr.
Polybale 750 – Svart 9.190 kr.
Polybale 500 – Hvítt 8.390 kr.
Polybale Pro 750 – Hvítt 10.900 kr.
Net - Cordex Agri
Rúllunet 3600m 23.800 kr.
Rúllunet 4200m 28.700 kr.
Aðrar vörur
Bindigarn 3.500 kr.
Stórbaggagarn 7.490 kr.
Agribale plast fyrir net 23.000 kr.
Verð
Polybale er 5 laga hágæða plast sem
hefur sannað sig á íslenskum markaði í
20 ár. Polybale er framleitt af Bpi.agri í
Bretlandi sem er einn stærsti framleiðandi
rúlluplasts í heiminum.
Kostir Polybale Pro
Meira plast per kefli
Engar frekari stillingar á tækjum
Sannreynt af fagaðilum víða um Evrópu
Umhverfisvænt (minni úrgangur)
Sparar tíma og fjármagn
Ráðlagður fjöldi umferða: 6
Ráðlögð forstrekking: 70%
Polybale Pro er forstrekkt rúlluplast
sem gerir það að verkum að hvert kefli
nýtist á fleiri heyrúllur. Með því að
forstrekkja plastið fæst 30% meira af
plasti sem leiðir af sér lægri kostnað á
hverja rúllu. Þó svo plastið sé þynnra en
hefðbundið, heldur það góðum
eiginleikum í einangrun, styrk og slitþoli.
Norðausturland
Hallgrímur Hallsson
sími: 464 1067
gsm: 893 4094
hallgrimurh@simnet.is
Eyjafjörður
Karl Heiðar Friðriksson
Brekku Dalvík
gsm: 867 6417
brekka80@simnet.is
Norðvesturland
Eymundur Þórarinsson
Saurbæ, Skagafirði
gsm: 892 8012
eymundur@saurbaer.is
Borgarfjörður, Kjós
og Hvalfjörður
Einar Guðmann Örnólfsson
Sigmundarstöðum
gsm: 862 5075
einargudmann@vesturland.is
Austurland
Steinn Björnsson
Þernunesi
gsm: 896 0314
steinnb@visir.is
Hornafjörður og
Suðausturland
Eyjólfur Kristjónsson
Ási
gsm: 840 8871
harpaey@simnet.is
Árnessýsla
Bjarni Másson
Háholti
gsm: 862 4917
801haholt@internet.is
V-Skaftafellssýsla
Einar Bárðarson
Breiðabólsstað
gsm: 844 5252
einar.rvik@gmail.com
Mýrar og Snæfellsnes
Sigurjón Helgason
Mel
Sími: 867 8108
melursf@gmail.com
Sölustjóri
Lúðvík Bergmann
sími: 444 3009
gsm: 840 3009
bergmann@skeljungur.is
Eyjafjörður
Þórarinn Ingi Pétursson
Grund
gsm: 899 3236
grytubakki@gmail.com
Búðardalur og
Reykhólar
Kolur ehf.
Búðardal
www.skeljungur.is/landbunadur
Varðskipið Þór lagði hreinsunarátaki Hornstranda lið:
Skýtur skökku við að sjá plastrusl í ósnortinni náttúru
Myndir / Jóhanna Björk Sveinbjörnsdóttir
Blönduós:
Lífleg sala á
fasteignum
Töluverðar framkvæmdir hafa
undanfarið verið á Blönduósi
en í skýrslu sveitarstjóra
Blönduósbæjar, sem fjallað var
um á fundi sveitarstjórnar nýver-
ið, kemur fram að unnið sé við
lagfæringar og breytingar á hót-
elinu á Blönduósi, nýir eigendur
að Retró við Blöndubyggð 9 vinni
að úrbótum hjá sér og Aðalgata 8
hefur verið seld og nýir eigendur
ætla að nýta eignina til ferðaþjón-
ustu.
Fram kemur í skýrslu sveitarstjóra
að mikil og lífleg sala hafi verið á
fasteignum á Blönduósi undanfarnar
vikur, margar eignir hafi verið seldar.
„Er það afar jákvætt að mikill áhugi
sé fyrir eigum hér og eru nokkrir
aðilar að leita að húsum,“ segir í
skýrslunni. Einnig er nefnt að verið
sé að ljúka breytingum á pósthúsinu
og að stefnt sé að því að starfsemin
flytji aftur þangað inn um miðjan
maí, sem og að miklar framkvæmdir
standi yfir við veiðihúsið Ásgarð við
Laxá á Ásum þar sem verið sé að
tvöfalda stærð hússins.
Þá er nefnt í skýrslunni að vinnu
við viðhald í Íþróttamiðstöðinni sé
lokið. Verið er að skoða að koma
fyrir hleðslustöð fyrir rafmagns-
bíla upp við gafl íþróttahússins, en
Orkusalan gaf bæjarfélaginu slíka
stöð. Um sé að ræða einfalda aðgerð
og við frágang lóðarinnar var sett
rör inn í kjallara sundlaugarinnar úr
brunni við húsgaflinn.
„Með þessari tengingu værum við
að setja okkur enn grænni markmið,“
segir í skýrslu sveitarstjóra sem gat
þess að við byggingu sundlaugarinn-
ar var sú ákvörðun tekin að nota ekki
hefðbundið klórkerfi til sótthreinsun-
ar heldur var farið út í eigin fram-
leiðslu úr salti á klórgasi, „og rekum
við þar með eitt umhverfisvænasta
sundlaugarmannvirki á Íslandi sem
hlotið hefur verðskuldaða athygli,“
segir sveitarstjóri í skýrslu sinni.