Bændablaðið - 08.05.2017, Síða 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2017
TIL SÖLU LÍKAN AF SÆNSKA VASASKIPINU
Skipið er 2,50 m á lengd
og 2,50 m á hæð með
fullum seglum.
Allar nánari upplýsingar
í síma 694 4429.
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Breiðdælingar
móta framtíðina
Styrkjum, samtals að upphæð
5,3 milljónir króna úr verkefninu
Breiðdælingar móta framtíðina
var úthlutað fyriri skömmu. Alls
hlutu 14 verkefni sem efla sam-
félagið í Breiðdalshreppi styrk að
þessu sinni, en þetta er í þriðja sinn
sem styrkjum er úthlutað vegna
þessa verkefnis.
Áætlaður heildarkostnaður verk-
efna er um 40 milljónir króna en sótt
var um styrki fyrir 11,7 milljónum
króna. Jöfn kynjahlutföll voru á
milli styrkþega þar sem 7 konur og
7 karlar hlutu styrki. Styrkirnir eru
hluti af verkefni Byggðastofnunar,
Brothættar byggðir.
Hæsta styrkinn, 900 þúsund
krónur hlaut Sigríður Stephensen
Pálsdóttir vegna verkefnis sem
nefnist Þvottaveldið, tveir styrkir
voru að upphæð 700 þúsund krónur,
vegna hársnyrtistofu og vöruþróunar
hjá útgerðarfélaginu Einbúa, þá hlaut
Breiðdalsbiti 600 þúsund króna
styrk. Hið Austfirzka Bruggfjélag
hlaut 450 þúsund krónur vegna
starfsleyfisumsókna fyrir Beljandi
Brugghús.
Aðrir styrkir voru að upphæð frá
100 þúsund krónum og upp í 400
þúsund og má þar nefna verkefni
eins og gerð nýrrar heimasíðu fyrir
Breiðdalssetur, landbúnaðartengd
hostel í Breiðdal og gerð
frisbígolfvallar.
Skoðanir íbúa fái að njóta sín
Markmiðið með verkefninu
Brothættum byggðum er m.a.
að fá fram skoðanir íbúanna
sjálfra á framtíðarmöguleikum
heimabyggðarinnar og leita lausna
á þeirra forsendum í samvinnu
við ríkisvaldið, landshlutasamtök,
atvinnuþróunarfélag, sveitarfélagið,
brottflutta íbúa og aðra.
Samtal við íbúa Breiðdalshrepps
á vegum verkefnisins Brothættra
byggða hófst með íbúaþingi í
nóvember 2013 og hlaut heitið
„Breiðdælingar móta framtíðina“.
Alls voru 15 málaflokkar til
umræðu á þinginu. Atvinnumál
skoruðu hæst í stigagjöf íbúa
varðandi málaflokka. Þar var m.a.
rætt um fjölgun atvinnutækifæra
út frá sérstöðu svæðisins. Einnig
var rætt um ferðaþjónustu, um
nýtingu frystihússins, opnun slipps,
matvælaframleiðslu, um Einarsstofu
og eflingu Breiðdalsseturs, svo
nokkur dæmi séu nefnd.
Nánari upplýsingar veitir Hákon
Hansson (hih@eldhorn.is), oddviti
Breiðdalshrepps í síma 862-4348.