Bændablaðið - 08.05.2017, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2017
Á síðustu tveimur áratugum hafa
svæðisbundin samvinnnufélög
bænda í Noregi sprottið upp í
mörgum fylkjum landsins og eru
enn að bætast við ný slík félög.
Hér sjá bændur sér hag í að vinna
saman við að koma vörum sínum,
með svæðisbundnum merkingum,
á markað og neytendur virðast
kunna vel að meta framtakið.
Blaðamaður Bændablaðsins
heyrði í tveimur forsvarsmönn-
um slíkra félaga í Noregi, annars
vegar hjá Lærdal Grønt í Sognfirði
og hins vegar Gudbrandsdalsmat
í Guðbrandsdalnum í austurhluta
landsins.
Lærdal Grønt var stofnað árið
1999 þegar tvö pökkunarfyrirtæki
voru sameinuð í eitt. Í dag eru 43
framleiðendur sem afhenda sínar
vörur til fyrirtækisins.
„Hugsunin með stofnun fyrirtæk-
isins var að hagræða í framleiðsl-
unni með því að fá meira magn inn
en einnig að fá meiri völd gagnvart
markaðnum og vera sýnilegur þátt-
takandi þar inni. Þetta eru aðallega
bændur frá Lærdal sem eru með en
þó eru þrír framleiðendur utan þess
svæðis sem afhenda vörur til okkar,“
segir Harald Blaaflat Mundal, fram-
kvæmdastjóri Lærdal Grønt.
Veltan um 83 milljónir n.kr.
Hjá Lærdal Grønt eru sjö starfs-
menn í fullri vinnu og á háanna-
tíma eru um 40 starfsmenn í vinnu
við pökkun hjá fyrirtækinu.
„Við pökkum kartöflum, gul-
rótum, mórelluberjum og frosnum
hindberjum. Þar að auki tökum
við á móti og dreifum áfram
ferskum hindberjum, jarðarberj-
um, rifsberjum, stikkilsberjum,
bláberjum, sumarkáli, blómkáli
og rófum. Við sækjum hindber
og mórelluber hjá bændunum en
aðrar vörur keyra þeir sjálfir inn
til okkar. Við vinnum einnig að
framleiðslu- og markaðssetningar-
þróun fyrir framleiðendurna undir
merkjum Lærdal Grønt.
Hér rekum við í sama hús-
næði samvinnufélagsverslun
(Felleskjøpet) þar sem eiga að vera
til allar þær vörur sem bóndinn
þarf á að halda eins og áburður,
varnarefni, vatnsúðunarkerfi og
svo framvegis. Í versluninni eru
einnig vörur fyrir aðra hópa en
bændur sem koma einnig töluvert
hingað til okkar,“ segir Harald og
bætir við:
„Á þennan hátt geta bændurnir
einbeitt sér að framleiðslunni á
meðan við sjáum um afganginn
fyrir þá, vonandi á betri hátt og
fyrir lægri kostnað en ef allir væru
að vinna í sínu horni. Á síðasta
ári var velta fyrirtækisins 83
milljónir norskra króna þar sem
um 18 milljónir komu í gegnum
verslunina en hitt með vörum frá
bændunum, ávextir, grænmeti og
ber.“
Bylting fyrir bændur
Hjá Gudbrandsdalsmat eru 26
framleiðendur sem skila inn til
fyrirtækisins til pökkunar og
dreifingar. Hér eru það bændur og
lítil og meðalstór vinnslufyrirtæki
sem sameinast undir merkjum
fyrirtækisins sem telur nú þrjú
og hálft ársverk og veltan var 15
milljónir norskra króna árið 2016.
„Ferðamannaiðnaðurinn hafði í
lengri tíma beðið um svæðisbundn-
ar vörur en fannst það erfitt og ná
litlum árangri að vera í sambandi
við hvern og einn framleiðanda.
Margir framleiðendur voru farnir
að framleiða mikið og áttu í erfið-
leikum með að inna söluvinnuna
af hendi að auki. Í nokkur misseri
áður hafði verið reynt að koma
á fót matarverkefnum sem gengu
ekki en síðan tóku 17 framleiðend-
ur sig til og fóru í samstarfsverk-
efni sem átti í aðalatriðum að vinna
að sölu og dreifingu,“ segir Anette
Svastuen, framkvæmdastjóri
Gudbrandsdalsmat, sem var stofn-
að árið 2006.
„Í dag snýst þetta um
tengslanetavinnu, samvinnu við
ferðamannaiðnaðinn og margt
fleira. Við seljum og dreifum
svæðisbundnum matvælum í versl-
anir, til hótela og veitingastaða og
í sérverslanir.
Fyrir marga bændur hefur þetta
verið algjör bylting að hefja þetta
samstarf. Hjá öllum sem eru með
hefur salan aukist og leiðir yfirleitt
af sér aukna framleiðslu því með
því að vinna saman komumst við á
stærri markað með góða dreifingu.
Við eigum í samstarfi við
mjólkursamlagið Tine um
dreifingu á vörunum sem hefur
gengið mjög vel.
Núna erum við með um 400
vörutegundir þar sem kjöt er stór
hluti í okkar sölu en einnig fiskur,
egg, ostar, bjór, sultur, ber, hunang,
grænmeti, te, krydd, jurtir og
bakstursvörur svo fátt eitt sé nefnt.
Síðan er ýmis önnur vinna sem
við sinnum fyrir bændurna en að
selja og dreifa, við höfum gefið
út matarhefti með uppskriftum
og bjóðum fólki upp á að
kaupa gjafabréf frá okkur með
mismunandi vörutegundum í.
Svo þetta snýst einnig mikið
um að vera alltaf á tánum varðandi
frekari þróun, framleiðendum og
neytendum til hagsbóta.“ /ehg
UTAN ÚR HEIMI
Góður árangur svæðisbundinna
samvinnufélaga norskra bænda
Gulrætur eru stór söluþáttur hjá Lærdal Grønt sem selja grænmeti, ávexti
og ber til verslana.