Bændablaðið - 08.05.2017, Blaðsíða 46
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2017
Í september 2014 prófaði ég Dacia
Logan þegar hann kom fyrst á
markað hér á landi, en þá kostaði
hann frá 2.790.000. Nú, þremur
árum seinna, prófaði ég bílinn
aftur, breytingar eru ekki miklar,
en samt þó nokkrar og verðið er
komið niður í 2.540.000.
Sjáanlegar breytingar eru nánast
engar, en það eina sem ég sá utan
frá voru nýir hjólkoppar, en var að
vonast eftir stærri hliðarspeglum.
Breytt staðsetning flauturofa
Öðru máli gegnir með mælaborðið,
þar er töluverð breyting, komin
snertiskjár fyrir útvarpið sem er
bakkmyndavél og leiðsögukerfi og
bluetooth. Vélin er sú sama og enn er
fimm gíra gírkassi (hefði viljað hafa
hann 6 eða 7 gíra). Það sem mörgum
mislíkaði var staðsetning flaututakk-
ans í fyrri árgerðum sem var á end-
anum á ljósatakkanum (rétt eins og
í traktorum og mörgum vörubílum).
Nú geta þeir sem ósáttir voru verið
ánægðir því að nú er flaututakkinn
kominn í stýrið eins og er á flest
öllum öðrum bílum.
Eyðslan á bílnum er brandari
Í fyrra skiptið þegar ég prófaði
þennan bíl var dísillítrinn töluvert
dýrari en hann er núna. Lagði ég
þá prufuaksturinn upp með því að
spara sem mest eldsneyti og þar af
leiðandi var ég með „ecko“ sparnað-
artakkann á allan tímann. Nú breytti
ég um og byrjaði strax á að slökkva
á ecko- takkanum, núllstillti aksturs-
tölvuna. Eftir 50 km akstur án þess
að reyna neitt að spara dísilolíuna
var eyðsla mín 4,9 lítrar á hundraðið
á meðalhraða upp á 65 km. Þegar ég
skilaði bílnum hafði ég ekið 75 km á
meðalhraða upp á 47, endaði meðal-
eyðsla mín í 5,0 lítrum á hundraðið
án þess að hafa verið neitt að spara
eldsneyti. Í fyrri prufuakstrinum
fyrir þrem árum var ég að eyða 4,0
lítrum með ecko-stillinguna á.
Fannst bíllinn latur
fyrir þrem árum
Miðað við þessar tvær prófanir þá
nefndi ég það að í fyrri prófuninni
hafði mér fundist bíllinn vera latur
af stað í fyrsta og öðrum gír, meðan
ég var að keyra hann á ecko-still-
ingunni. Nú fannst mér hann ekki
svo latur, þó að hann mætti vissu-
lega vera 10–20 hestöflum kraft-
meiri. Var ég mun sáttari við bílinn
núna.
Eins og með flesta bíla sem
ég prófa fer ég á malarveg til að
prófa bíla. Dacia Logan liggur vel á
malarvegum og kemur skriðvörnin
hæfilega seint inn fyrir minn smekk,
en það sem ég tók sérstaklega eftir
var hversu mikið smásteinahljóð var
undir bílnum á hörðum malarvegin-
um. Hefði þurft að setja meiri tekt-
ilvörn undir bílinn eða að sprauta
undir hann hljóðeinangranlegu efni.
Fjöðrunin er fín bæði á möl og í
holóttu malbikuðu vegunum sem
ég keyrði.
Mikið af aukahlutum
Samkvæmt sölubæklingi er hægt að
fá ýmsa aukahluti með bílnum. Síst
af þeim öllum mundi ég taka drátt-
arkrók þar sem að 1.500 rúmsentí-
metra (cc) dísilvél er ekki burðug til
að draga mjög þungt. Þar tala ég af
reynslu þar sem ég átti Dacia Duster
með sömu vél og dró oft kerru á
eftir mér. Hins vegar mæli ég með
skutmottu í farangursrýmið og þver-
bogum á þakið. Á bogana er hægt að
setja farangursbox, reiðhjólagrind,
skíðaboga eða jafnvel festingu fyrir
kajak.
Að lokum, breytingarnar eru ekki
miklar, en að mínu mati er þessi bíll
bestu kaup í dag á rúmgóðum fjöl-
skyldubíl. Ódýr í rekstri og ótrúlega
rúmgóður.
Myndir / HLJ
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Bakkmyndavél er komin í Logan.
Farangrusrými 573 ltr.
Hæð 1.550 mm
Breidd 1.733 mm
Lengd 4.492 mm
Hæð undir lægsta punkt 153 mm
DACIA LOGAN
Helstu mál og upplýsingar: