Bændablaðið - 08.05.2017, Qupperneq 46

Bændablaðið - 08.05.2017, Qupperneq 46
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2017 Í september 2014 prófaði ég Dacia Logan þegar hann kom fyrst á markað hér á landi, en þá kostaði hann frá 2.790.000. Nú, þremur árum seinna, prófaði ég bílinn aftur, breytingar eru ekki miklar, en samt þó nokkrar og verðið er komið niður í 2.540.000. Sjáanlegar breytingar eru nánast engar, en það eina sem ég sá utan frá voru nýir hjólkoppar, en var að vonast eftir stærri hliðarspeglum. Breytt staðsetning flauturofa Öðru máli gegnir með mælaborðið, þar er töluverð breyting, komin snertiskjár fyrir útvarpið sem er bakkmyndavél og leiðsögukerfi og bluetooth. Vélin er sú sama og enn er fimm gíra gírkassi (hefði viljað hafa hann 6 eða 7 gíra). Það sem mörgum mislíkaði var staðsetning flaututakk- ans í fyrri árgerðum sem var á end- anum á ljósatakkanum (rétt eins og í traktorum og mörgum vörubílum). Nú geta þeir sem ósáttir voru verið ánægðir því að nú er flaututakkinn kominn í stýrið eins og er á flest öllum öðrum bílum. Eyðslan á bílnum er brandari Í fyrra skiptið þegar ég prófaði þennan bíl var dísillítrinn töluvert dýrari en hann er núna. Lagði ég þá prufuaksturinn upp með því að spara sem mest eldsneyti og þar af leiðandi var ég með „ecko“ sparnað- artakkann á allan tímann. Nú breytti ég um og byrjaði strax á að slökkva á ecko- takkanum, núllstillti aksturs- tölvuna. Eftir 50 km akstur án þess að reyna neitt að spara dísilolíuna var eyðsla mín 4,9 lítrar á hundraðið á meðalhraða upp á 65 km. Þegar ég skilaði bílnum hafði ég ekið 75 km á meðalhraða upp á 47, endaði meðal- eyðsla mín í 5,0 lítrum á hundraðið án þess að hafa verið neitt að spara eldsneyti. Í fyrri prufuakstrinum fyrir þrem árum var ég að eyða 4,0 lítrum með ecko-stillinguna á. Fannst bíllinn latur fyrir þrem árum Miðað við þessar tvær prófanir þá nefndi ég það að í fyrri prófuninni hafði mér fundist bíllinn vera latur af stað í fyrsta og öðrum gír, meðan ég var að keyra hann á ecko-still- ingunni. Nú fannst mér hann ekki svo latur, þó að hann mætti vissu- lega vera 10–20 hestöflum kraft- meiri. Var ég mun sáttari við bílinn núna. Eins og með flesta bíla sem ég prófa fer ég á malarveg til að prófa bíla. Dacia Logan liggur vel á malarvegum og kemur skriðvörnin hæfilega seint inn fyrir minn smekk, en það sem ég tók sérstaklega eftir var hversu mikið smásteinahljóð var undir bílnum á hörðum malarvegin- um. Hefði þurft að setja meiri tekt- ilvörn undir bílinn eða að sprauta undir hann hljóðeinangranlegu efni. Fjöðrunin er fín bæði á möl og í holóttu malbikuðu vegunum sem ég keyrði. Mikið af aukahlutum Samkvæmt sölubæklingi er hægt að fá ýmsa aukahluti með bílnum. Síst af þeim öllum mundi ég taka drátt- arkrók þar sem að 1.500 rúmsentí- metra (cc) dísilvél er ekki burðug til að draga mjög þungt. Þar tala ég af reynslu þar sem ég átti Dacia Duster með sömu vél og dró oft kerru á eftir mér. Hins vegar mæli ég með skutmottu í farangursrýmið og þver- bogum á þakið. Á bogana er hægt að setja farangursbox, reiðhjólagrind, skíðaboga eða jafnvel festingu fyrir kajak. Að lokum, breytingarnar eru ekki miklar, en að mínu mati er þessi bíll bestu kaup í dag á rúmgóðum fjöl- skyldubíl. Ódýr í rekstri og ótrúlega rúmgóður. Myndir / HLJ É ÁV LAB SINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Bakkmyndavél er komin í Logan. Farangrusrými 573 ltr. Hæð 1.550 mm Breidd 1.733 mm Lengd 4.492 mm Hæð undir lægsta punkt 153 mm DACIA LOGAN Helstu mál og upplýsingar:

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.