Bændablaðið - 08.05.2017, Blaðsíða 48

Bændablaðið - 08.05.2017, Blaðsíða 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2017 „Við tókum við jörðinni síðast- liðið haust og höfðum aðeins verið hér viðloðandi áður, en foreldrar mínir búa á næsta bæ,“ segir Karen, sem býr í Víkum á Skaga. „Jörðin var í fullum rekstri en þak á fjárhúsum og hlöðu voru orðin léleg svo þau voru endurnýjuð fyrir veturinn.“ Býli: Víkur á Skaga. Staðsett í sveit: Austur- Húnavatnssýsla. Ábúendur: Jón Helgi Sigurgeirsson og Karen Helga Steinsdóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Sem stendur erum við hér 5 því við njótum enn dyggrar aðstoðar fyrri ábúenda, þeirra Lilju, Finns og Valgeirs, Karls barna, en þau flytja á Blönduós í sumar. Einnig er hér hundurinn Skotta og einn köttur á leiðinni. Stærð jarðar? Um 1.650 hektarar. Gerð bús? Sauðfjárbú. Fjöldi búfjár og tegundir? Vetrarfóðraðar kindur voru um 420 og erum með um 15 hross. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Eins og á öðrum sauðfjárbúum getur hann verið mjög breytilegur en á veturna eru það náttúrlega gegningar kvölds og morgna og önnur bústörf þess á milli þegar ekki er verið við vinnu utan búsins. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Sauðburðurinn er skemmtilegur tími en fjárrag að hausti er ekki síðra. Það er alltaf gott þegar frágangi og þrifum að loknum sauðburði er lokið. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Það verður áframhaldandi sauðfjárbúskapur í svipuðum horfum en ræktarland hefur vonandi aukist og bústofninn í framför þó við séum heppin með það að taka við vel ræktuðu fé af þeim systkinum. Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Höfum kannski ekki kynnst þeim nógu vel ennþá til að hafa stór orð um þau. Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Dásamlega, trúum ekki öðru. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Okkur líst rosa vel á þessa lúxusmarkaði sem þeir eru að vinna í að koma okkur inn á þar sem lögð er áhersla á hreinleika afurðanna. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Ekki komin reynsla á það þar sem við erum enn á hótel Lillý. En hún á alltaf til mjólk, ost, egg, jógúrt eða súrmjólk og lýsi. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Lambalærið rennur alltaf ljúflega niður. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Búskaparsaga okkar er nú ekki löng en það var óneitanlega mjög góð tilfinning þegar nýja þakið var komið á fjárhúsin síðasta sumar. Svo fengum við rafveiturafmagn rétt fyrir jólin þó það tengist ekki beint bústörfum. Annars hafði verið notast við ljósavél á bænum fram að því. BÆRINN OKKAR Focaccia og lambahryggvöðvi Grillað grænmetis-focaccia-brauð Það er frábær leið til að nýta afgangs grænmeti í kælinum að baka bragð- mikið focaccia-brauð og það er mik- ilvægt að nýta grillið vel í sumar. Grillað grænmetið sekkur inn í brauðið meðan deigið rís upp við baksturinn. Prófið álegg, eins og þunnt sneidda tómata eða sveppi og beikon ofan á focaccia-deigið. › 1 pakki þurrger (um 2 teskeiðar) › 4 tsk. sykur › 1 1⁄3 bolli heitt vatn (35–40 gráður) › ¼ bolli extra virgin ólífuolía, skipt í tvennt (annar hlutinn fer ofan á deigið) › 3 bollar brauðhveiti › 2 tsk. þurrkað oregano › 1 ½ tsk. salt, skipt í tvennt (annar hlutinn fer ofan á deigið) › ½ tsk. fennelfræ Meðlæti ofan á brauðdeigið › 2 msk. balsamic-edik › 1 stk. kúrbítur, skera í sneiðar › 1 rauðlaukur, skera í sneiðar › ½ tsk. fersk malaður svartur pipar › ¼ bolli rifinn ostur › ¼ búnt ferskt basil Látið ger og sykur leysast upp í 1 - ur matskeiðum af olíu í skál. Látið standa í fimm mínútur. oregano, einni teskeið af salti og fennelfræjunum. Hrærið vel saman. Bætið hveitiblöndunni við ger- blönduna og hrærið saman. Færið deigið úr skálinni og út á borð sem búið er að strá hveiti yfir. Hnoðið þar til deigið er slétt og teygjanlegt (um það bil 5 mínútur). Bætið þá restinni verður klístrað. Setjið deigið í stóra skál með eldhúsplastfilmu yfir. Látið hefast á heitum stað (35 gráðum) í um eina og hálfa klukkustund eða þar til deigið hefur tvöfaldast í stærð. Setjið í olíuborið ofnfast fat, látið eldhússtykki yfir og látið rísa í um 30 mínútur til viðbótar. Hitið grillið. Blandið tveimur matskeiðum af olíu saman við balsamic-edikið í lítilli skál. Hellið yfir kúrbítinn og laukinn. Kryddið með afgangnum Setjið grænmeti á grillplötu sem búið að pensla með smá olíu. Grillið kúrbítinn (eða sveppi) í fjórar mín- útur á hvorri hlið eða þar til græn- metið er eldað í gegn. Grillið laukinn í sex mínútur á hvorri hlið, eða þar til hann er vel brúnaður. Fjarlægið grænmetið af grillinu. Kælið alveg. Hitið ofninn (eða grillið) í 225 gráð- ur. Raðið grænmetinu jafnt yfir yfirborð brauðdeigsins og stráið osti yfir. Bakið við 225 gráður í 27 mínútur eða þar til gullin skorpa er komin á brauðið. Skreytið með basil. Látið kólna í 10 mínútur fyrir framreiðslu. Lambahryggvöðvi með granateplagljáa Granatepli eru falleg en líka bragð- góð og er hér lambakjötsuppskrift sem passar vel með granateplagljáa og góðum sveppum. Granateplagljái › 2 stk. / 250 ml granateplasafi (hægt að kaupa tilbúin í fernum) eða kreista fersk granatepli › 1–4 msk. sykur › 1 msk. smjör Gott er að geyma nokkur granateplafræ til skrauts. Blandaðu granateplasafa og sykri saman í potti. Setjið yfir háan hita og látið sjóða þar til safinn byrjar að þykkna. Lækkið hitann. Hrærið smjörinu saman við og haldið volgu. Hvítlauksrósmarín krydd-rub › 4 geirar hvítlaukur, gróft hakkaður › 1 tsk. gróft salt › ½ tsk. þurrkað rósmarín › ¼ tsk. þurrkuð salvia › ¼ tsk. þurrkað timjan › ¼ tsk. ferskur malaður svartur pipar › 1 msk. ólífuolía Blandið hvítlauk, grófu salti, krydd- jurtum og pipar saman í mortéli eða matvinnsluvél. Myljið í duft. Bætið ólífuolíu við og blandið vel saman. Setjið til hliðar. Lamb og sveppir › Lambahryggvöðvi (lambafile) › 500 g sveppir (eða shiitake-sveppir), hreinsaðir › 1 skalottlaukur, sneiddur fínt › 2 msk. ólífuolía › 3 msk. vatn › ¼ bolli rauðvín › Salt og pipar, eftir smekk Hitið ofninn í 230 gráður. Nuddið kryddinu yfir lambið. Hitið pönnu yfir miðlungs hita. Setjið olíu á pönnuna og brún- ið lambið á báðum hliðum þar til það er gullbrúnt, í um eina til tvær mínútur á hlið. Takið kjötið af pönnunni og penslið allar hliðar með granateplagljáa þar til það er allt vel þakið. Leggið til hliðar. Minnkið hitann. Setjið laukinn á pönnuna, eldið í eina mínútu eða tvær. Bætið við vatni og setjið í ofninn, fituhliðina upp. Dreifðu sveppum í kringum lambið. Steikið í ofni þar til innra hita- stigið hefur náð 58 gráðum (fyrir miðlungs steikt), um 12–16 mín- útur. Takið pönnuna úr ofninum. Takið lambið og setjið til hliðar í nokkr- ar mínútur áður en það er skorið í sneiðar. Setjið pönnu með sveppum yfir miðlungs hita. Bættu við rauðvíni og látið sjóða, kryddið með salti og pipar og bætið granateplagljáanum við, ef eitthvað er eftir af honum. Skerið lambahryggvöðvann og framreiðið með kartöflum og græn- meti að eigin vali og skreytið með fallegum granateplum. MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI Víkur á Skaga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.