Bændablaðið - 24.08.2017, Side 1
16. tölublað 2017 ▯ Fimmtudagur 24. ágúst ▯ Blað nr. 497 ▯ 23. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Bændasamtök Íslands og Landssamtök sauðfjárbænda:
Tillögur að aðgerðum vegna
erfiðrar stöðu í sauðfjárrækt
Fulltrúar Landssamtaka
sauðfjár bænda og Bænda-
samtaka Íslands hafa átt í við-
ræðum við atvinnuvega- og
nýsköpunar ráðherra um aðgerð-
ir til að bregðast við bráðavanda
sauðfjárræktarinnar frá því í
mars.
Unnsteinn Snorri Snorrason,
framkvæmdastjóri Landssamtaka
sauðfjárbænda, segir að vandann
megi meðal annars rekja til svipt-
inga á alþjóðlegum mörkuðum,
lokunar Noregsmarkaðar, Brexit
og styrkingar íslensku krónunnar.
Viðræður frá því í mars
„Landssamtök sauðfjárbænda og
Bændasamtök Íslands hafa átt í
viðræðum við atvinnuvega- og
nýsköpunarráðherra um aðgerðir
til að bregðast við bráðavanda
sauðfjárræktarinnar frá því í mars.
Þrátt fyrir það hefur ekki enn
fengist niðurstaða í viðræðurnar
þótt bændur hafi
lagt fram ítarlegar
t i l lögur um
miðjan ágúst um
fjölþættar aðgerðir
til að bregðast við
vandanum með
heildstæðum hætti.
H u g m y n d i r
bænda ganga út
á að ná jafnvægi
milli framboðs og
eftirspurnar, taka
á birgðastöðu og
auka um leið nýja
tekjumöguleika
til sveita með
því að ráðast í
öflugt kolefnis-
jöfnunar verkefni. Að auki
verði sett í gang vinna við að
endurskoða nýsköpunarumhverfi
sauðfjárræktarinnar, gera úttekt
á afurðastöðvakerfinu og skoða
sérstaklega lánamál bænda.“
Unnsteinn segir að þrátt
fyrir ágæta sölu á
innanlandsmarkaði
árið 2016 og það
sem af er 2017, séu
líkur á óhóflegri
birgðasöfnun á
lambakjöti. „Til
að bregðast við
þessu viljum við
fara út í aðgerðir
sem taka varanlega
á þeim vanda sem
steðjar að íslenskri
sauðfjárrækt til að
koma í veg fyrir
f j ö l d a g j a l d þ r o t
bænda og byggða-
röskun.
Markmiðið er
að aðgerðirnar skili árangri strax
í haust og að komist verði hjá
allt að þriðjungs tekjuskerðingu
bænda vegna hruns á afurðaverði
og reiknað er með að komið verði
á jafnvægi í kindakjötsframleiðslu
strax árið 2018.
Fækkun fjár um allt að 20%
Tillaga LS og BÍ er að fé verði
fækkað um allt að 20% með því að
gefa þeim sem velja að hætta sauð-
fjárframleiðslu kost á að halda 70%
af greiðslum sauðfjársamnings árið
2017 í fjögur ár og greiða sérstakt
sláturálag á ær haustið 2017.
Lagt er til að aðgerðirnar verði
fjármagnaðar með tilfærslum innan
búvörusamnings og sérstöku eins-
skiptis viðbótar framlagi ríkisins.
Þá verði gæðastýringargreiðslur
frystar í tvö ár til að aftengja þá
framleiðsluhvata sem þær geta
orsakað.
Unnsteinn segir að hugmyndin
sé einnig að ráðast í sérstakt
kolefnisjöfnunarverkefni í sam-
vinnu við sauðfjárbændur.
„Markmiðið er að nýta krafta
bænda til að vinna að markmiðum
Íslands í loftslagsmálum og kolefn-
isjafna íslenska sauðfjárrækt með
samdrætti í losun og bindingu með
uppgræðslu, skógrækt, endurheimt
votlendis og öðrum aðgerðum.“
Sveiflujöfnun birgða
Að sögn Unnsteins eru tvær leiðir til
að bregðast við þeim birgðavanda
sem blasir við næsta haust.
„Að kaupa verulegt magn af
kjöti út af markaðnum og fela
einhverjum að afsetja það utan
landsteinanna. Slíkri aðgerð fylgir
verulegur viðbótarkostnaður og
ætla má að um 50 til 60% af honum
fengist til baka með söluandvirði
kjötsins.
Hins vegar að afurðastöðvum
verði gert að flytja út ákveðið
hlutfall af lambakjötsframleiðslu
sinni. Með því verður hægt að
leysa birgðavandann og tryggja
að allar afurðastöðvar taki þátt í
því með sambærilegum hætti,“
segir Unnsteinn Snorri Snorrason,
framkvæmdastjóri Landssamtaka
sauðfjárbænda. /VH
Mynd / Hörður Kristjánsson
Býður gestum upp á
24–254 40–41
Ætigarður
í uppsveitum