Bændablaðið - 24.08.2017, Síða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2017
Íslendingar komu klyfjaðir verðlaunum frá heimsmeistaramóti íslenska hestsins:
Hestaveisla í Hollandi
− Vaskleg framganga ungmenna á stórmóti íslenskra hestaíþrótta
Alls sóttu 42.500 manns
heimsmeistaramót íslenska
hestsins sem fram fór í Oirscot í
Hollandi dagana 7.–13. ágúst sl.
Keppt var í fjórum hringvallar-
greinum og þremur skeiðgreinum.
Þrír íslenskir keppendur stóðu
saman á palli í lok töltkeppninnar.
Jakob Svavar Sigurðsson og Gloría
frá Skúfslæk með glæsibrag, en
þetta mun vera í fyrsta sinn sem
hryssa sigrar greinina. Jakob Svavar
og Gloría hlutu hæstu einkunn
keppenda í forkeppni töltsins, 8,57
og fylgdu því eftir með fumlausri
glæsireið í úrslitum. Hlutu þau 8,94
í lokaeinkunn.
Margfaldur heimsmeistari í
greininni, Jóhann R. Skúlason, kom
fram með ungan hest, Finnboga
frá Minni-Reykjum, og urðu þeir
í 2. sæti keppninnar með 8,33 í
lokaeinkunn. Guðmundur Friðrik
Björgvinsson og Straumur frá Feti
urðu þriðju með 8,22 í lokaeinkunn.
Erlingur Erlingsson, sem keppir
fyrir Svíþjóð, varð fjórði á Herjólfi
frá Ragnheiðarstöðum og Irene
Reber frá Þýskalandi varð fimmta
á Þokka frá Efstu-Grund, hestinum
sem Kristín Lárusdóttir reið til sig-
urs í greininni fyrir tveimur árum.
Þokki í stuði
Það mæddi reyndar mikið á
Þokka á mótinu. Þau Irene fóru
fjallabaksleiðina að úrslitum bæði
í tölti og fjórgangi, með því að sigra
B-úrslit og komu því sex sinnum
fram á hringvellinum. Þokki var þó
í feiknaformi og skilaði sínu með
mikilli reisn. Þau höfnuðu í 2. sæti í
fjórgangi eftir mikla keppni. Þar áttu
Þjóðverjar sviðið, hlutu gull, silfur
og brons í firnasterkum úrslitum þar
sem átta keppendur öttu kappi.
Hin ávallt skælbrosandi Jolly
Schrenk sigraði greinina á Glæsi
von Gut Wertheim og Johanna
Tryggvason og Fönix frá Syðra-
Holti fengu brons. Artemisia
Bertus, sem býr og starfar hér en
keppir fyrir heimaland sitt, Holland,
varð fjórða á Korgi frá Ingólfshvoli
og Guðmundur Björgvinsson og
Straumur frá Feti í því fimmta.
Johanna Beuk og Merkur von
Birkelund frá Þýskalandi urðu sjöttu
og Ásmundur Ernir Snorrason og
Spölur frá Njarðvík í því sjöunda.
Dennis Hedebo Johansen og Kolfaxi
frá Blesastöðum 1A varð svo í átt-
unda sæti.
Sigursælir Þjóðverjar
Þjóðverjar voru sigursælasta
þjóð mótsins, hlutu sjö
heimsmeistaratitla og fimmtán
verðlaun alls. Þannig stal Frauke
Schenzel og Gustur vom Kronshof
sigrinum af Þórarni Eymundssyni
og Narra frá Vestri-Leirárgörðum á
lokametrum úrslitanna. Þórarinn og
Narri, sem komu efstir inn í úrslitin,
leiddu þau allt þar til keppendur
sýndu skeið. Frauke og Gustur
hlutu hærri einkunn fyrir sprettina
og sigraði með 7,29 en Þórarinn
og Narri hlutu 7,26. Lisa Drath frá
Þýskalandi og Bassi frá Efri-Fitjum
fengu brons og Viðar Ingólfsson
og Kjarkur frá Skriðu í fjórða sæti.
Þjóðverjar tóku einnig gull
og silfur í slaktaumatölti. Þar
sigraði Johanna Tryggvason
og Fönix frá Syðra-Holti með
glæsibrag eftir að hafa hlotið
9,17 fyrir afburðasýningu á tölti
við slakan taum. Einnig urðu þau
heimsmeistarar í samanlögðum
fjórgangsgreinum. Önnur varð
Jolly Schrenk á Glæsi von Gut
Wertheim og Julia Christiansen
frá Danmörku varð þriðja á Blika
frá Efri-Rauðalæk. Titilverjandinn
Vignir Jónasson, sem keppir fyrir
Svíþjóð varð fjórði og Reynir Örn
Pálmason á Spóa frá Litlu-Brekku
fimmtu.
Skeiðtitill til Bretlands
Heimsmeistaratitill í samanlögðum
fimmgangsgreinum kom í hlut
Magnúsar Skúlasonar, sem keppir
fyrir Svíþjóð, og hryssunnar
Valsa från Brösarpsgården. Þau
sigruðu einnig gæðingaskeið með
nokkrum yfirburðum, fengu 9,09
í lokaeinkunn en Guðmundur
Einarsson og Sproti frá Sjávarborg
sem urðu í 2. sæti fengu 8,54.
Titilverjandinn Teitur Árnason og
Jakob Svavar Sigurðsson og Gloría frá Skúfslæk fögnuðu sigri í tölti.
Myndir/ Marius MacKenzie
Afburðarsýningar Johönnu Tryggvason og Fönix frá Syðra-Holti skilaði
henni heimsmeistaratitli í slaktaumatölti og samanlögðum fjórgangsgreinum.
Bretar eignuðust sinn fyrsta heimsmeistara í íslenskum hestaíþróttum þegar
Charlotte Cook og Sæla frá Þóreyjarknúpi sigruðu 100 metra skeið.
Agnar Þór Magnússon ásamt þeim Vigni Sigurðssyni í Litlu-
Brekku og Gunnar Þorgeirsson á Efri-Fitjum en fulltrúar
ræktunarbúanna stóðu sig með sóma á mótinu. Mynd/SS
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegs- og landbúnaðar-ráð-
herra ásamt hjónunum Gunnari Arnarssyni og Kristbjörgu Eyvindar-
dóttur, hrossaræktendum í Auðsholtshjáleigu. Mynd/SS
Kristín Lárusdóttir mætti til leiks sem titilverjandi í tölti. Þrátt
fyrir að hafa ekki keppt í úrslitum naut hún lífsins á mótinu
og er hér ásamt Sigrúnu Ólafsdóttur og Skúla Skúlasyni.
HROSS&HESTAMENNSKA
Reynsluboltinn Jolly Schrenk á Glæsir von Gut Wertheim sigraði fjórgang
og fékk silfur í slaktaumatölti.
Magnús Skúlason og hin unga Valsa från Brösarpsgården sigruðu
gæðingaskeið með 9,09 í lokaeinkunn. Takið eftir méllausa beislinu.