Bændablaðið - 24.08.2017, Page 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2017
Hveragerði og nágrenni verða
miðstöð sjálfbærni og umhverfis-
vitundar samkvæmt viljayfir-
lýsingu um verkefnið Sjálfbært
Íslands sem fulltrúar Heilsu-
stofnunar NLFÍ, Hvera gerðis-
bæjar og Land búnaðar háskólans
að Reykjum undirrituðu á dögun-
um.
Samkvæmt yfirlýsingunni
verður staðið fyrir gerð könnunar á
möguleikanum á því að sett verði á
stofn upplýsinga- og fræðslumiðstöð
um sjálfbæra þróun og lífræna
ræktun í Hveragerði og nágrenni.
Lögð verður áhersla á umhverfi,
matvæli, lýðheilsu og orku í ferl-
inu í samræmi við heimsmarkmið
Sameinuðu þjóðanna sem ríkisstjórn
Íslands hefur samþykkt. Sjálfbær
þróun er þar áberandi þáttur og ein-
setur Ísland sér að stíga afgerandi
skref til breytinga sem nauðsynleg
eru í því skyni að koma veröldinni á
braut sjálfbærni og auka viðnámsþol
hennar, samkvæmt yfirlýstum mark-
miðum Íslands.
„Með því skrefi sem stigið er
varðandi könnun á möguleikum á
upplýsinga- og fræðslumiðstöð um
sjálfbæra þróun og lífræna ræktun er
komið til móts við þennan ríka vilja
ráðamanna til að standast markmið-
in. Tilgangurinn er að vista á einum
stað á landinu flest það er snertir
áætlun hins opinbera um framgang
sjálfbærrar þróunar,“ segir í viljayf-
irlýsingunni.
Þeirri þekkingu, sem fyrirhuguð
miðstöð mun öðlast í ferlinu, verð-
ur í framhaldinu miðlað til annarra
sveitarfélaga.
Hveragerði í fararbroddi
„Okkur líst afar vel á verkefnið
og allar hugmyndirnar falla vel að
þeim markmiðum sem við höfum
sett okkur um framtíðarþróun
bæjarins. Við höfum lagt gríðarlega
vinnu í að bæta umhverfi og efla
umhverfisvitund hér svo ég held að
það séu fáir staðir sem henta betur
fyrir svona verkefni en Hveragerði,“
segir Aldís Hafsteinsdóttir,
bæjarstjóri í Hveragerði.
Ef að verkefninu Sjálfbært Ísland
verður er ljóst að allir bæjarbúar, sem
eru nú 2.550 talsins, muni taka þátt í
því á einn eða annan hátt.
„Íbúar Hveragerðis munu
finna fyrir aukinni áherslu á
umhverfistengd verkefni. Við höfum
alltaf verið í fararbroddi sveitarfélaga
í umhverfistengdum verkefnum og
stigum meðal annars stór skref í
gegnum Staðardagskrá 21 þegar hún
var og hét. Við vorum meðal annars
eitt af fyrstu sveitarfélögum til að fara
út í þriggja tunnu flokkun þar sem
við sérflokkum endurvinnanlegan
úrgang. Við erum eina sveitarfélagið
sem er með fullkomna þriggja þrepa
hreinsistöð á öllu fráveituvatni. Auk
þess hafa fyrirtæki í Hveragerði verið
mjög framarlega á sviði lífrænnar
ræktunar. Við munum halda áfram
á þeirri braut og hvetja íbúa til
þátttöku í þessum verkefnum og
vera þannig áfram til fyrirmyndar,“
segir Aldís.
Hún nefnir sem dæmi að
sveitarfélagið stefni nú að því að
verða plastpokalaust, að farið verði
í ítarlegri flokkun á rusli auk þess
sem hönnun nýrra hverfa gera ráð
fyrir hleðslustöðvum fyrir rafbíla við
hvert hús og að hraðhleðslustöð verði
opnuð í bænum innan skamms.
Ungt fólk dregur vagninn
„Draumurinn væri að geta komið
upp aðstöðu hér á Reykjum þar sem
fólk gæti nálgast heildstæða fræðslu
um sjálfbæra þróun. Einn liður í
slíkri fræðslu gæti verið kennsla
á ýmsum hagnýtum atriðum sem
leiða til sjálfbærara heimilishalds.
Ef við horfum til dæmis á smærri
verkefni þá getur þetta til dæmis
falið í sér að nota það sem til fellur,
jarðgera heimilisúrganginn, nota
moldina svo í ræktun. Ef allir taka
þessi smáu skref verður breytingin
stór og mikil á endanum,“ segir
Guðríður Helgadóttir, staðarhaldari
Garðyrkjuskóla LbhÍ á Reykjum í
Ölfusi.
Hún er afar bjartsýn gagnvart
verkefninu enda endurspegli það
breyttan tíðaranda. „Fólk er að verða
svo meðvitað um umhverfismál. Ég
held að það sé fyrst og fremst því
að þakka að ungt fólk í dag nálgast
umhverfismál með öðrum hætti en
eldri kynslóðir. Það virðist bera meiri
virðingu fyrir náttúru og umhverfi
og veltir fyrir sér þeim áhrifum sem
við höfum á umhverfi, efnahag og
samfélagið, sem eru allt þættir sem
snúa að sjálfbærni.“
Á Landbúnaðarháskólanum á
Reykjum í Ölfusi hefur verið kennd
garðyrkjuframleiðsla í hartnær 80 ár.
Nýjasta námsbraut skólans hverfist
um lífræna ræktun matjurta en annar
árgangur brautarinnar mun útskrifast
vorið 2018. Guðríður skynjar mikinn
áhuga á námsbrautinni og telur hann
í takt við aukna umhverfisvitund.
„Í garðyrkju felast ótrúleg
tækifæri fyrir samfélagið í heild
að vera sjálfbærara en það er í dag.
Það er mikil eftirspurn eftir afurðum
sem ræktaðar eru og framleiddar með
heill umhverfisins að leiðarljósi.
Neytandinn er tilbúinn til að greiða
fyrir vöru hærra verði vitandi að
hann er að fá vottaða afurð,“ segir
Guðríður. /ghp
Miðstöð um sjálfbæra þróun og
lífræna ræktun í burðarliðnum
– Hveragerði og nágrenni verða fyrirmynd um umhverfisvæn sveitarfélög
Ef af verkefninu Sjálfbært Ísland verður er ljóst að allir bæjarbúar Hveragerðis,
sem eru nú 2.550 talsins, muni taka þátt í því á einn eða annan hátt.
Mynd / Aldís Hafsteinsdóttir
Útilífsmiðstöðin Úlfljótsvatn:
Fyrst tjaldsvæða til liðs við Vakann
Útilífsmiðstöðin Úlfljótsvatn er
nýjasti liðsmaður Vakans. Nýverið
bættust við gæðaviðmið fyrir
tjaldsvæði og hostel í Vakann og
Úlfljótsvatn er fyrst allra að hljóta
þær viðurkenningar.
Kjarnastarfsemi Úlfljótsvatns
snýst um að bjóða skátum, nemendum
og öðrum æskulýðshópum vettvang
fyrir ævintýri og fræðslu. „Samhliða
því meginmarkmiði okkar höfum við
undanfarin ár í auknum mæli opnað
staðinn fyrir almenningi og góð dæmi
um það eru fjölskyldutjaldsvæðið
okkar og hostelið, sem bæði
styðja við kjarnastarfsemi okkar,“
segir Guðmundur Finnbogason,
framkvæmdastjóri Úlfljótsvatns, í
frétt á vefsíðu Ferðamálastofu.
Jákvæð og spennandi upplifun í
öruggu umhverfi
„Við leggjum áherslu á að bjóða
jákvæða og spennandi upplifun í
öruggu umhverfi. Þetta gerum við
til dæmis með spennandi afþreyingu
fyrir gesti um helgar, en líka með
því að bjóða sérsniðna dagskrá fyrir
hópa, bæði íslenska og erlenda. Í því
samhengi njótum við líka góðs sam-
starfs við marga ferðaþjónustuaðila á
Suðurlandi. Það er okkur gríðarlega
mikilvægt að gestir okkar upplifi
sig velkomna og örugga. Markmið
Vakans falla því vel að okkar mark-
miðum og innleiðingarferlið hefur
reynst okkur gagnlegt við að festa
í form ferla og starfshætti,“ segir
Guðmundur. /MÞÞ Mynd / Ferðamálastofa
Viljayfirlýsing undirrituð:
Vináttusamband Yamal
og Skagafjarðar
Þann 7. ágúst síðast-
liðin kom fjölmenn
sendinefnd frá rúss-
neska héraðinu Yamal
til Íslands. Tilgangur
ferðarinnar var að
kynnast landi og þjóð
og koma á samstarfi
og vináttusambandi
við Íslendinga.
Áður höfðu aðilarnir
verið í samskiptum við
Skagfirðinga og vildu
gjarnan skrifa undir
viljayfirlýsingu um
áframhaldandi samstarf
og vináttusamband.
Heimsóttu fyrirtæki og stofnanir
Sendifulltrúarnir samanstóðu af
þingmönnum, borgarstjórum og
fleiri aðilum úr stjórnsýslu Yamal.
Þeir heimsóttu ýmis fyrirtæki og
stofnanir á Íslandi meðan á heim-
sókn þeirra stóð. Meðal annars
heimsóttu þeir forseta Íslands,
fóru til Vestmannaeyja og skoðuðu
framleiðslu á fiski og landbúnað-
arvörum. Ferðin endaði síðan á
því að fulltrúar úr Skagafirði og
Yamal skrifuðu undir fyrrgreindan
samning í rússneska sendiráðinu
eftir góða kynningu á heimkynnum
sínum.
Ýmislegt sameiginlegt
Ágúst Andrésson, ræðismaður
Rússlands á Íslandi, sagði við
undirritun samningsins í rússneska
sendiráðinu að þegar menn fóru að
bera saman bækur sínar hafi komið
í ljós að ýmislegt var sameiginlegt
með Yamal og Skagafirði.
„Náttúra er stundum óblíð og
atvinna sambland af tæknivinnu og
búskap. Íbúar fundu einnig sam-
hljóm í áhuga á veiði og sönggleði
og ljóst að kraftur og bjartsýni íbúa
beggja tengdi fólk beggja svæða
saman.“
Í framhaldi af undirritun viljayf-
irlýsingarinnar ætla báðir aðilar að
kynna systursvæði á heimaslóðum
sínum og hefja samtal og samstarf
um áframhaldandi viðræður og
jafnvel heimsóknir.
Hátækniiðnaður og hirðingjar
Yamal er tangi í Síberíu sem að
megninu er innan hins svokallaða
Arctic Circle. Svæðið er fámennt
en þarna eru um 1/5 af olíu- og
gaslindum heimsins.
Vetrarríki er mikið í Yamal og
er veturinn níu mánuði á ári í það
minnsta og frost fer í -40 gráður
og stundum enn lægra. Þrátt fyrir
að í Yamal sé hátækniiðnaður sem
tengist orkuframleiðslu eru flestir
íbúar af hirðingjaþjóðflokkum og
margir búa enn tjaldflökkulífi. Um
300 þúsund hreindýr eru í Yamal og
eru þau helsta lífframfærsla bænda
og hirðingja í héraðinu. /VH
Undirritun vináttu- og samstarfsamnings í rússneska sendiráðinu. Sigríð-
ur Svavarsdóttir, forseti sveitarstjórnar Skagafjarðar, Andrey Nikolaevich
Kugaevsky, formaður héraðsstjórna Yamal, og Stefán Vagn Stefánsson,
formaður byggðarráðs Skagafjarðar.
Ágúst Andrésson, ræðismaður Rússlands á Íslandi,
kynnir fundarmönnum tilurð og tilgang komu Yamal
sendinefndarinnar til Íslands.