Bændablaðið - 24.08.2017, Síða 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2017
Auðkúlurétt við Svínavatn, A.-Hún. laugardaginn 23. sept. kl. 16.00
Árhólarétt í Unadal, Skag. Upplýsingar liggja ekki fyrir.
Deildardalsrétt í Deildardal, Skag. föstudaginn 29. sept.
Flókadalsrétt, Fljótum, Skag. laugardaginn 7. okt.
Hlíðarrétt við Bólstaðarhlíð, A.-Hún. Upplýsingar liggja ekki fyrir.
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag. laugardaginn 30. sept.
Melgerðismelarétt í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 7. okt.
Miðfjarðarrétt í Miðfirði, V. - Hún. Upplýsingar liggja ekki fyrir.
Sauðárkróksrétt, Skag. laugardaginn 16. sept.
Selnesrétt á Skaga, Skag. Upplýsingar liggja ekki fyrir.
Silfrastaðarétt í Blönduhlíð, Skag. sunnudaginn 24. sept.
Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag. laugardaginn 16. sept.
Skrapatungurétt í A.-Hún. sunnudaginn 17. sept. kl. 11
Staðarrétt í Skagafirði. laugardaginn 16. sept.
Tungurétt í Svarfaðardal, Eyf. laugardaginn 7. okt.
Unadalsrétt í Unadal við Hofsós, Skag. föstudaginn 29. sept.
Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún. laugardaginn 23. sept. kl. 9.00
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. laugardaginn 7. okt. kl. 11.00
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. Upplýsingar liggja ekki fyrir.
Þverárrétt ytri, Eyjafjarðarsveit laugardaginn 7. okt.
Stóðréttir haustið 2017
Mikill áhugi er fyrir stóðréttum
ekki síður en fjárréttum. Hér er
listi yfir stóðréttirnar sem að þessu
sinni eru 19 talsins. Ekki voru þó
fyrirliggjandi upplýsingar um þær
allar þegar blaðið fór í prentun.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem blaðið hefur fengið eru síð-
ustu stóðréttir haustsins þann 7.
október í Víðidalstungurétt og
Flókadalsrétt.
Listi yfir fjárréttir er á blaðsíðum
32 og 33 ásamt korti sem sýnir
staðsetningu réttanna.
Fyrirvari er gerður á að einhverjar
villur kunni að hafa slæðst inn og
verður þá reynt að bæta úr því í
næsta blaði eftir því sem kostur
er. Sömuleiðis eru ábendingar vel
þegnar ef einhverjar réttir hafa orðið
útundan í upptalningu blaðsins. /TB
„Það er allt að komast á fullan
skrið hjá okkur, mikið um að
vera og í mörg horn að líta,“ segir
Arnar Bjarni Eiríksson, fram-
kvæmdastjóri Landstólpa, en til
stendur að reisa alls tíu ný fjós frá
félaginu á norðanverðu landinu nú
á næstu mánuðum.
Þau eru í Eyjafirði, Svarfaðardal,
Skagafirði og Húnavatnssýslum.
Fyrsta húsið er nýtt fjós að
Stekkjarflötum í Eyjafjarðarsveit en
einnig er í gangi vinna við annað
slíkt að Sólheimum í Skagafirði. Þá
verður einnig reist geldneytahús í
Þingeyjarsýslu, en um það verkefni
sér verktaki á Húsavík.
Heilmikil lota sem stendur fram
að áramótum
Arnar Bjarni segir að um heilmikla
lotu sé að ræða, en stefnt er að því
að öll nýju fjósin verði risin fyrir
áramót. Mannskapur frá Landstólpa
er sem fyrr segir við störf á tveimur
stöðum norðan heiða um þessar
mundir, en hann býst við að þegar
hjól fara að snúast af fullum krafti
verði samtímis unnið við að reisa
húsin á þremur stöðum í einu.
„Við einbeitum okkur að
Norðurlandi núna, verðum þar
með mikinn mannskap fram að
áramótum,“ segir Arnar Bjarni.
Hann segir að álíka fjósbyggingalota
hafi áður verið tekin á Suðurlandi
og bændur á Norðurlandi beðið á
meðan.
„Nú erum við komin norður
og gerum ráð fyrir að allt verði
komið í fullan gang þegar kemur
fram í september. Við munum sinna
þessum verkefnum af fullum krafti
fram að áramótum.“
Bændum umhugað um velferð
dýranna
Arnar Bjarni segir að þó nokkuð sé
um að á bæjum sé verið að breyta
eldri básafjósum fyrir 30 til 50 gripi
í lausagöngu með einum mjaltaþjóni.
„Það er mikill metnaður
hjá kúabændum og hugur í
mjólkurframleiðendum um allt land
reyndar. Bændur horfa nú mjög til
þess að standast kröfur laga og
reglna um aðbúnað dýra, bændum
er umhugað um velferð dýra sinna
og koma sér í leiðinni og breytingar
eru gerðar upp betri vinnuaðstöðu í
leiðinni.“
Arnar Bjarni segir að öll
Landstólpahúsin sem rísa á næstunni
séu hátæknifjós, með mjaltaþjónuum,
vélvæddum flórsköfum og jafnvel
tölvustýrðu gjafakerfi.
„Fjósin eru þó fyrst og fremst
hönnuð með velferð dýranna í
huga þó ég geti fullyrt að bætt
vinnuaðstaða hafi líka áhrif á velferð
bænda,“ segir hann.
„Það er virkilega gaman að finna
fyrir þeim mikla metnaði og bjartsýni
sem ríkir meðal kúabænda, þeir sem
ætla sér að halda búskap og þurfa að
gera breytingar á sínum húsakosti eru
nú í óða önn að vinna að þeim,“ segir
Arnar Bjarni. /MÞÞ
Landstólpi reisir 10 ný fjós fyrir norðan:
Mikill metnaður og bjartsýni ríkjandi meðal kúabænda
– segir Arnar Bjarni Eiríksson, framkvæmdastjóri Landstólpa
Eitt af Landstólpafjósunum sem unnið verður við að reisa á næstu mánuðum norðan heiða er á Sólheimum í Skaga-
Hópfjármögnun Anitar
Hugbúnaðar- og tæknifyrirtækið
Anitar ehf. er komið langt
með þróun á örmerkjalesara
til að auðvelda skráningu og
utanumhald húsdýra. Lesarinn
ber heitið The Bullet og er notaður
samhliða snjallsímaforritum.
„Með þessari samsetningu á
lesaranum og snjallsímaforritum
verður hægt að skanna og vinna
með upplýsingar fjölda dýra, svo
sem hesta, hunda og svína. Þegar
unnið er með íslenska hestinn þá
tengir snjallsímaforritið þig beint
við gagnagrunn íslenska hestsins,
WorldFeng,“ segir Karl Már
Lárusson, stofnandi Anitar, sem
stendur fyrir Animal Intelligent Tag
Reader.
„Tækni er tengist búskap er oft
kostnaðarsöm eða gamaldags. Við
vorum með tvö markmið við þróun
á The Bullet örmerkjalesaranum.
Annað var að hafa lesarann eins lít-
inn og nettan og við kæmumst upp
með og hitt var að stilla verðinu í
hóf. Sem hestaræktandi langaði mig
að þróa vöru sem hægt væri að nota
daglega og myndi auðvelda hesta-
mönnum, dýralæknum og bændum
lífið,“ segir Karl Már en prófanir
á örmerkjalesaranum hafa nú farið
fram og hefur fyrirtækið hafið hóp-
fjármögnun til að koma lesaranum í
framleiðslu.
Karl Már segist vonast til
að safna 40.000 dollurum, eða
rúmum 4 milljónum króna. Hægt
er að styðja við bakið á verkefninu
og um leið næla sér í eintak af
örmerkjalesaranum til 8. september
í gegnum hópfjármögnunarsíðuna
Kickstarter, eða vefsíðu fyrirtækisins
anitar.is. /ghp