Bændablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2017
Hafin er bygging húsnæðis
fyrir starfsmenn í Hótel Flatey
sem rekið er í samkomuhúsinu
sem áður hýsti pakkhús og
loftskeytastöð.
Helgi Haraldsson var ásamt
Halli syni sínum og tveim
aðstoðarmönnum við að steypa
grunn fyrir starfsmannabygginguna
þegar blaðamann Bændablaðsins
bar að garði. Húsið er talsvert frá
meginþorpinu í Flatey en skammt
frá bryggjunni.
Helgi býr í Stykkishólmi en á
húsið Grænagarð í Flatey ásamt konu
sinni, Höllu Dís Hallfreðsdóttur.
Segist Helgi dvelja mikið í Flatey.
Í síðustu viku var búið að klára
grunninn og segir Helgi að hafist
verði handa við að reisa húsið sjálft
í haust. Það verður byggt úr timbri
eins og flest önnur hús í eyjunni.
Hann sagði að heldur hafi dregið
úr komu fólks til Flateyjar í sumar
miðað við árið í fyrra. Mikið væri
eigi að síður bókað á hótelinu. Þar
var fólk mjög ánægt yfir aðsókninni
þegar blaðamaður leit þar inn. Þar
er einnig boðið upp á fjölbreyttar
veitingar í samkomuhúsinu fyrir fólk
sem leið á um eyjuna. /HKr.
Byggt yfir starfsmenn
Hótels Flateyjar
Myndir / HKr.
Verkefna- og rannsóknasjóður Fljótsdalshrepps og Landsbankans auglýsir
eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum árið 2017.
Veittir verða tveir aðalstyrkir kr. 300.000,- og ef stjórn ákveður svo,
verður einnig veittur einn verkefnastyrkur kr. 100.000,-. Sjóðsstjórn
getur ákveðið þegar umsóknir liggja fyrir að eingöngu verði veittir styrkir
til aðalverkefna ársins og hækka þá þær styrkupphæðir í kr. 350.000,-.
Heimilt er að fella úthlutun ársins niður telji sjóðsstjórn engar umsóknir hæfar.
Úthlutað er til verkefna sem tengjast Fljótsdalshreppi, eða verkefna sem
sjóðsstjórn telur að nýtast muni sveitarfélaginu. Háskólanemar með lög-
heimili í Fljótsdalshreppi sem sækja um fyrir verkefni sem metin eru hæf af
sjóðsstjórn, hafa forgang umfram aðra umsækjendur.
Umsóknum skal skila á skrifstofu Fljótsdalshrepps, Végarði, 701 Egilsstaðir,
fyrir 10. september 2017, eða á netfangið fljotsdalshreppur@fljotsdalur.is.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu Fljóts-
dalshrepps www.fljotsdalur.is
Verkefna- og rannsóknarsjóður
Fljótsdalshrepps og Landsbankans
Hækkun aksturstaxta hjá
þremur fóðursölum
– Engin áform hjá Bústólpa og SS um hækkanir
Fóðurblandan tilkynnti þann 2.
ágúst síðastliðinn, um hækkun á
gjaldskrá vegna útselds aksturs
á fóðri um allt að níu prósent.
Að sögn Eyjólfs Sigurðssonar,
forstjóra Fóðurblöndunnar, eru
launahækkanir meginástæðan
fyrir þessari gjaldskrárhækkun.
Lífland hafði einnig áður tilkynnt
um sams konar hækkun, eða þann
1. júlí síðastliðinn. Lífland gefur
þær skýringar að 48 prósenta laun-
hækkanir hafi orðið frá árinu 2012,
en þá hækkaði fyrirtækið síðast
aksturstaxta sína. Þá hafi olía og
hjólbarðar hækkað um 25 prósent
á þessum tíma og aðrir liðir í rekstri
ökutækja um 14–25 prósent.
Landstólpi hækkar um næstu
mánaðamót
Arnar Bjarni Eiríksson, framkvæmda-
stjóri Landstólpa, segir hækkun verða
á aksturstaxta hjá þeim frá og með
næstu mánaðamótum – væntanlega
á bilinu átta til tíu prósent. „Ástæðan
er hækkun á vinnumarkaði á launum
og launatengdum gjöldum og því er
það nú óumflýjanlegt því miður,“
segir Arnar Bjarni og bætir við að
síðast hafi orðið slík hækkun hjá
þeim í október 2013.
Hólmgeir Karlsson, fram-
kvæmdastjóri Bústólpa, segir að
aksturstaxtar þeirra hafi ekki verið
hækkaðir nú og ekki liggi fyrir
neinar ákvarðanir um breytingar
á þeim. Í sama streng tekur Elías
Hartmann Hreinsson, deildarstjóri
búrekstrardeildar hjá Sláturfélagi
Suðurlands, og segir að engin
afstaða hafi verið tekin varðandi
slíka hækkun. „Eins og staðan er í
dag þá eru ekki áform um hækkun,“
segir Elías. /smh
Mathöllin opnuð á Hlemmi
Myndir / TB
Hlemmur Mathöll var opnuð
laugardaginn 19. ágúst á menn-
ingarnótt. Átta veitingastaðir hófu
starfsemi strax í höllinni og svo
munu tveir bætast við til viðbótar
á næstunni.
Mathöllin sækir fyrirmynd-
ir sínar til rómaðra matarhalla
sem finna má úti um alla Evrópu.
Margir Íslendingar þekkja til dæmis
Torvehallerne í Kaupmannahöfn.
Flestar bjóða þær upp á bæði
tilbúna rétti og eins markað með
gæða hráefni; kjöt, fisk og grænmeti.
Hlemmur Mathöll hefur líka hug á
því og hefur auglýst eftir bændum
og smáframleiðendum sem hafa
áhuga á að taka þátt í útimörkuðum
í framtíðinni með ferska og unna
matvöru.
Afgreiðslutími veitingastaðanna
er misjafn, en þeir sem hafa lengst
opið loka ekki fyrr en klukkan ellefu
á kvöldin. Bakaríið Brauð og Co. og
kaffihúsið Micro Roast Te & kaffi
opna klukkan átta á morgnana.
Aðrir staðir í Mathöllinni eru
taco-staður inn La Pobl ana, víet-
namski staður inn Bánh Mí, Rabbar-
bar inn, grillstaðurinn Kröst, ísbúðin
Ísleif ur heppni og smáréttastaðurinn
Jóm frú in.
Stefnt er að því að Borðið, sælker-
asérverslun og veitingastaður, opni
26. ágúst og SKÁL!, tilraunakenndur
smárétta-, kokteila- og bjórbar, opni
2. september næstkomandi.
Það er Íslenski sjávarklasinn sem
rekur Hlemm Mathöll. /smh