Bændablaðið - 24.08.2017, Qupperneq 47

Bændablaðið - 24.08.2017, Qupperneq 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2017 Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir: Framleiðnisjóður landbúnaðarins Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnes Sími 430-4300 Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir hér með eftir um sóknum um styrki til stuðnings við nýsköpun, vöru þróun kynningar- og markaðsstarf til stuðnings íslenskri sauð fjár- rækt. Sjá nánar inn á heimasíðu sjóðsins www.fl.is, undir markaðssjóður/verklagsreglur. Styrkþegar geta verið einstaklingar, hópar, félög, samtök, rannsóknarstofnanir, háskólar eða fyrirtæki. Styrkhæf eru þau verkefni sem talin eru styrkja íslenska sauðfjárrækt og falla undir það að teljast nýsköpun, vöruþróun, kynningar- eða markaðsstarf. Umsókn skulu fylgja eftirfarandi upplýsingar: a) Listi yfir þá sem eiga aðild að verkefninu. b) Yfirlit um tilgang og markmið verkefnis. c) Tímaáætlun verkefnisins og upplýsingar um helstu áfanga þess. d) Fjárhagsáætlun verkefnisins í heild. e) Upplýsingar um hvernig niðurstöður verkefnisins verða kynntar eða nýttar. Umsóknarfrestur er til 1. október n.k. Reglur um styrkina og umsóknareyðublöð er að finna á www.fl.is/markaðssjóður. Aðeins er tekið við umsóknum á eyðublöðunum sem þar er að finna. Umsóknum skal skilað til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Hvanneyri 311 Borgarnes, merktum: Markaðssjóður. Nánari upplýsingar veitir Þórhildur Þorsteinsdóttir, framkvæmda- stjóri Framleiðnisjóðs landbúnaðarins hjá thorhildur@fl.is. Öflug markaðsherferð Icelandic lamb skilar árangri Frá og með síðustu áramótum hefur verið unnið öflugt starf á vegum Icelandic lamb við markaðssetningu á lambakjöti og öðrum sauðfjárafurðum til erlendra ferðamanna. Icelandic lamb er sá hluti Markaðsráðs kindakjöts sem sér um fram- kvæmd verkefnisins. Hugmyndafræðin gengur út á að kynna sögu, menningu, hreinleika og gæði í gegnum eitt merki. Til að byrja með er sjónum beint að erlendum ferðamönnum hér á landi og undirbúningur samhliða hafinn að sókn inn á sérvalda hágæðamark- aði í útlöndum. Verkefnið hefur þegar skilað árangri og jókst sala á kindakjöti innanlands um rúm 5,% í fyrra og rúm 6% á fyrri helmingi þessa árs eftir nokkur samdráttarár í röð. Veitingastaðir Nú eru um 100 veitingastaðir í samvinnu við Icelandic lamb um að setja íslenskt lambakjöt í önd- vegi. Hafliði Halldórsson, fyrrver- andi framkvæmdastjóri íslenska kokkalandsliðsins og sölustjóri hjá Garra, heldur utan um þennan hluta verkefnisins. Almenn ánægja er hjá stöðunum og ýmis smærri verkefni hafa sprottið upp úr samstarfinu. Gengið var frá fyrstu samstarfs- samningunum í tilraunaskyni í fyrra og verkefnið skilaði strax góðum árangri. Eins og fram kom í við- tali við Stefán Viðarsson, yfirmat- reiðslumeistara hjá Icelandair hótel- um, í Bændablaðinu fyrir skömmu, jókst salan þar um 20%. Hjá þeim 30 veitingastöðum sem voru með í samstarfinu árið 2016 jókst sala að meðaltali um fjórðung. Samfélagsmiðlar Þrátt fyrir að erlendum ferðamönnum hafi fjölgað á Íslandi undanfarin ár, skilaði sú fjölgun sér ekki í aukinni sölu á lambakjöti fyrr en ráðist var í sérstakt átak til að ná til þeirra. Öflug verðlaunaherferð hófst á samfélagsmiðlum á seinni hluta síðasta árs. Gerð hafa verið 28 uppskriftamyndbönd og 9 önnur myndbönd sem dreift er með skipulegum hætti á netinu. Nú hafa notendur samfélagsmiðla séð myndbönd og auglýsingar frá Icelandic lamb um 14,5 milljón sinnum. Ólíklegt er að nokkru sinni fyrr hafi jafn margir séð auglýsinga- og kynningarefni um íslenskt lambakjöt á jafn skömmum tíma. Herferðin var nýlega verðlaunuð af FÍT og tilnefnd til norrænu Emblu- verðlaunanna 2017. Nýsköpun og smásala Icelandic lamb hefur líka unnið með smásölu- og sprotafyrirtækjum og einstaka framleiðendum að sértækum verkefnum í nýsköpun og vöruþróun. Má þar nefna ýmis nýsköpunarverkefni þar sem merki og markaðsefni er nýtt til að styðja við markaðssetningu á fæðubótarefnum, gærum og ýmsu fleiru. Þá hefur sérstakur sérfræðingahópur unnið að endurkortlagningu dilksins með því að leita hugmynda að nýjum vörum og nýjum skurðum. Á næstu vikum mun fyrsti afraksturinn af þessu starfi sjást í hillum verslana þegar ný vörulína sem ætluð er erlendum ferðamönnum fer í tilraunasölu í 10 verslunum á Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu. Samhliða fer í loftið sérstakt auglýsingaefni á samfélagsmiðlum. Verkefni erlendis Icelandic lamb tók þátt í vörusýn- ingu í Tókíó í byrjun þessa árs og gekk í kjölfarið frá samstarfssamn- ingi við japanskt innflutningsfyr- irtæki sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á hágæða matvöru til veitingastaða og sérverslana. Í gegnum þetta verkefni hafa þegar verið seld á annað hundrað tonn af lambakjöti til Japans. Unnið er að þýðingu og staðfæringu á öllu markaðsefni Icelandic lamb og samfélagsmiðlaherferð á japönsku hefst eftir fáeina mánuði. Á dögun- um var gengið frá sambærilegum samningi við þýskt fyrirtæki. Unnið hefur verið að markaðsrannsóknum og greiningu undanfarna mánuði og reikna má með sölu í Þýskalandi strax á næsta ári. Þá kemur Icelandic lamb að svipuðu verkefni í Bandaríkjunum og eins standa yfir viðræður við Whole Foods versl- unarkeðjuna um markaðssamstarf og notkun á markaðsefni Icelandic lamb. Fleiri sambærileg verkefni eru í undirbúningi. Framhaldið Til viðbótar við þetta vinnur Icelandic lamb að ýmsum verk- efnum sem tengjast minjagripum, ull og gærum í gegnum 30 samn- inga við fyrirtæki í þessum hluta sauðfjárafurða. Tilgangurinn er að auka virði sauðfjárafurða varanlega með vandaðri markaðssetningu inn á hágæðamarkaði. Miklar vonir eru bundnar við áframhaldandi árangur gagnvart erlendum ferðamönnum og ýmis ný verkefni í Japan, Evrópu og Bandaríkjunum. Eins og stað- an er nú treystir greinin of mikið á ódýrari afsetningarmarkaði og erfiðleikar þar valda tímabundinni birgðasöfnun og verðlækkun til bænda. Því er mikilvægt að bænd- ur, afurðastöðvar og aðrir sem að greininni koma hafi framtíðarsýn og staðfestu til að byggja upp betur borgandi markaði. Svavar Halldórsson, framkvæmdastjóri Markaðsráðs kindakjöts og Icelandic lamb Salka Restaurant Húsavík er meðal 100 veitingastaða sem hafa gert samning um að setja lambakjöt í öndvegi. Talið frá vinstri: Guðrún Emilsdóttir, Börkur Emilsson og Guðbjartur Benediktsson. Birna Mjöll Atladóttir í Breiðuvík með skjöld Icelandic lamb sem vísar til þess Á FAGLEGUM NÓTUM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.