Bændablaðið - 24.08.2017, Page 50

Bændablaðið - 24.08.2017, Page 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2017 Landbúnaðarsýningin Libramont, sem haldin er árlega fjóra daga seinnipartinn í júlí í Libramont- Chevgny í Suður-Belgíu, hefur alltaf verið afar vel sótt og á því var engin breyting í ár. Rúmlega 200 þúsund manns, þar af einnig hópur Íslendinga, skoðuðu það nýjasta sem í boði er innan landbúnaðar. Þessi sýning er ein sú stærsta sem haldin er ár hvert í Evrópu enda afar fjölbreytt og höfðar til afar fjölbreytts hóps gesta. Þannig mátti sjá nánast allt sem tilheyrir hefðbundinni landbúnaðartækni allra helstu og þekktustu framleiðenda heims en einnig óhefðbundna tækni eins og húshitunartækni svo dæmi sé tekið. Þá var sýningin að vanda með þunga áherslu á kynbótagripi, sem skiptu þúsundum. Þó svo að sýningar hrossa, nautgripa og sauðfjár séu veigamiklar þá mátti einnig sjá geitur, asna, svín og alifugla. Eins og við er að búast á sýningu sem þessari er margt áhugavert að skoða og hér á eftir má sjá brot af því sem vakti áhuga greinarhöfundar á þessari sýningu. Snorri Sigurðsson, sns@seges.dk Glæsileg landbúnaðarsýning Rússneskir bændur í stórsókn: Viðskiptabann veldur uppgangi í ostagerð Svar Rússa við viðskiptabanni Bandaríkjanna og Evrópu- sambandsins vegna deilna um Úkraínu og Krímskagann var innflutnings bann, m.a. á landbúnaðar vörur frá Evrópu- sambandinu. Nú er talað um að þetta hafi verið happdrættisvinn- ingur fyrir rússneska bændur. Stefnan var sett á að Rússar yrðu sjálfum sér nægir og virðist það nú vera að skila sér í miklum uppgangi í landbúnaði í Rússlandi. Pútin forseti setti Rússum það markmið að verða sjálfum sér nægir í matvælaframleiðslu árið 2020 og gætu þar með tryggt fæðuöryggi sitt. Nú segjast rússneskir bændur vonast til að viðskiptabannið vari í að minnsta kosti tíu ár í viðbót. Þetta hafi verið sannkölluð himnasending fyrir rússneskan landbúnað. CBC News segir að rússneskir ostaframleiðendur segi að innan nokkurra ára geti þeir farið að flytja út osta til Evrópu, Bandaríkjanna og Kanada. Þar er bæði um að ræða osta sem framleiddir eru úr kúamjólk og geitamjólk. Rússneskir bændur viðurkenni að gæðin séu enn sem komið er ekki fyllilega sambærileg við bestu ostana í Evrópu, en gæðin séu samt nokkuð góð þótt enn skorti á stöðugleikann. Viðskiptabannið veldur bændum í ESB miklum skaða Fyrir viðskiptabannið voru Rússar að flytja inn osta fyrir um 1 milljarð dollara á ári. Stór hluti af þeim ostum kom m.a. frá Danmörku. Rússnesk yfirvöld hafa varið miklu fé til að styrkja landbúnað í kjölfar viðskiptabannsins. Hefur það leitt til þess að framleiðsla á rússneskum ostum hefur aukist um 10% á ári. Til lengri tíma litið mun viðskiptabannið því fyrst og fremst leiða til mjög neikvæðra áhrifa fyrir bændur í Evrópusambandinu sem tapa miklum viðskiptum. Mikil ostahátíð í nágrenni Moskvu Fréttastofa Reuters greindi m.a frá því 9. ágúst að mikil ostahá- tíð hafi verið haldin 65 km fyrir utan Moskvu um síðustu mánaða- mót. Þar voru kynntar rússneskar útgáfur af cheddar- og feta-ostum sem og rússneskum brie-ostum, camembert og mygluostum (blue sheeses). Í fréttinni segir að þarna sé að verða til mikill iðnaður og haft er eftir einum af skipuleggjendum sýningarinnar að margir rússneskir bændur hafi byrjað að fikra sig áfram í ostagerð fyrir þrem árum. Fyrst hafi menn verið að gera þetta í pottum, en síðan með tækjabúnaði sem framleiddur var í Rússlandi. Nú séu menn að fara að framleiða osta í stórum kerum. Stoltir af hreinræktaðri innanlandsframleiðslu „Við erum mjög stolt yfir að vera ekki einungis að framleiða osta heldur líka að þeir séu framleiddir með rússneskum tækjabúnaði,“ sagði Oleg Sirota, einn af skipuleggjendum hátíðarinnar. Reuters segir að sumir matgæðingar geri lítið úr ostaframleiðslu Rússa og segi þá einungis vera að framleiða lélegar eftirlíkingar af evrópskum ostum. Eigi að síður hafi gestir hátíðarinnar verið mjög ánægðir með framleiðsluna. Rætt er við einn gestanna, Önnu að nafni, sem segir að þar hafi verið á boðstólum mjög fjölbreytt úrval af frábærum ostum. Þeir séu mjög svipaðir ostum frá Frakklandi og Ítalíu. „Það eru margar gerðir af sam bærilegum ostum og ég hef smakkað erlendis og þeir eru alls ekki verri.“ /HKr UTAN ÚR HEIMI Á FAGLEGUM NÓTUM Rússneskir bændur fagna viðskiptabanninu og Rússar stefna á að verða sjálfum sér nægir í framleiðslu á landbúnaðarvörum árið 2020. Mynd / pravda.ru Sýningarsvæðið sem Libramont sýningin er haldin á er um 10 hektarar að stærð og á nokkrum stöðum eru stór kynningarsvæði og hér er eitt þeirra þar sem reglulega, á meðan sýningunni stóð, voru haldnar margs konar kynn- ingar á tækjum og tólum til notkunar í landbúnaði. Hverju tæki, sem sýnt var, var lýst í þaula svo gestirnir sem á horfðu gætu áttað sig sem best á því sem verið var að sýna. Á landbúnaðarsýningum vekja dráttarvélar alltaf mikla athygli og hér er Libramont engin undantekning enda allir helstu og stærstu framleiðendur dráttarvéla með mikið og fjölbreytt úrval véla. Hér má sjá eina af stærri gerðinni frá New Holland. fyrirtækið Lely sem framleiðanda á mjaltaþjónum og heyvinnutækjum en líklega vita færri að Lely framleiðir einnig og selur litlar vindmyllur sem kallast Lely Aircon. Vindmyllurnar eru framleiddar í tveimur stærðum, 10 kW og 30 kW og eru sagðar sérstaklega sterkbyggðar og geti þolað allt að 60 m/s vindhraða. Eitt af því sem fylgir þegar stórar sýningar eru haldnar er að það þarf að þjónusta gesti sýningarinnar enda koma á Libramont um 50 þúsund gestir á dag. Til þess að metta allan mannskapinn þarf umtalsvert af veigum og var hægt að fá allt frá skyndibita og upp í stórsteikur þar sem hver gat valið kjöt af mismunandi holdanautakyni, allt eftir áhuga og smekk. Hér má sjá einn af ótal eldunarstöðum á sýningunni en hér var verið að grilla svínakjöt.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.