Bændablaðið - 24.08.2017, Page 53

Bændablaðið - 24.08.2017, Page 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2017 Gróffóður er grundvöllur búvöru- framleiðslu af nautgripum og sauðfé hér á landi. Skynsamleg og markviss framleiðsla þessara búgreina m.t.t. afurða og heil- brigðis byggir á því að þekkja gróffóðurgæðin, hvort held- ur orkuinnihald / meltanleika, próteinmagn og gæði eða stein- og snefilefnainnihald. Gróandinn í vor var með því hag- stæðasta sem gerist, nánast um allt land, og grasþroskinn því óvenju snemma á ferðinni. Helstu vaxt- arþættir jarðargróðurs, – raki, varmi og næring voru með ákjósanlegasta móti. Algengasta viðmið um heppi- legan sláttutíma túngrasa; - við byrj- un skriðs á vallarfoxgrasi – til þess að ná hámarks fóðurgæðum, kann því að hafa verið seinna á ferðinni en hinn raunverulegi grasþroski. Þrátt fyrir þessar jákvæðu ytri aðstæður og fremur hagstæða hey- skapartíð – á stórum hluta landsins – er samt sem áður rík ástæða til þess að afla upplýsinga um gæði gróffóð- ursins og alls ekki ástæða til að draga úr eða sleppa því að taka heysýni til efnagreininga. Efnagreiningaþjónusta samningur við EUROFINS / BLGG í Hollandi Undanfarin fjögur ár hefur Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðar- ins, boðið bændum um allt land að taka heysýni og senda til efna- greininga, gegnum þjónustusamn- ing við hollenska efnagreininga- og rannsóknafyrirtækið BLGG AgroXpertus AB í Wageningen í Hollandi. Nýir eigendur (EUROFINS Agro) hafa nú yfirtek- ið reksturinn – en engar breytingar verða á þjónustunni. Almenn ánægja hefur verið meðal bænda með þessa þjónustu, en samningurinn tryggir mjög víðtæka, hraðvirka efnagrein- ingaþjónustu, á hagstæðu verði og sem er í fullu samræmi við þarfir norræna fóðurmatskerfisins Norfór. Samskiptaaðili um þjónustuna er sér- stök umboðsskrifstofa; - Eurofins Agro Testing Sweden AB, sem staðsett er í Kristianstad í Svíþjóð. Við njótum sömu kjara og þjónustu í efnagreiningum og sænskir bændur. Við hjá RML leggjum áherslu á að greina fóðursýni úr verkuðu fóðri, – rúlluböggum eða heystæð- um eftir a.m.k. 5 til 6 vikna verkun. Ráðunautar RML, víðs vegar um land, munu annast heysýnatöku – með þar til gerðum sýnatökubúnaði – og sjá um að safna sýnunum saman til sendingar. Ráðunautarnir sjá einnig um að túlka niðurstöðurn- ar, fyrir þá bændur sem þess óska. RML annast og ábyrgist greiðslu á greiningarkostnaði og innheimtir síðan kostnaðinn hjá bændum. Fjölþættar og greinargóðar upplýsingar um heyfóðrið geta einnig nýst til markvissari áburðarnotkunar og áburðaráætlanagerðar og ekki síður til þess að meta og skipuleggja endurræktun túna. Afhendingartími niðurstaðna: Samkvæmt samningnum er stefnt að því að skila niðurstöðum innan 10 vinnudaga frá því sýni berst til greiningar. Ef til viðbótar venju- legri fóðurefnagreiningu eru greind bæði snefilefni (samtals 14 efni) og að auki rokgjarnar, lífrænar sýrur (mjólkur- edik- og smjörsýra) er afhendingarfresturinn hins vegar eitt- hvað lengri. Bóndinn getur valið um hvort niðurstöðurnar berist honum á rafrænu formi (með tölvupósti) eða fá þær sendar með landpósti. Niðurstöðurnar eru einnig lesnar beint inn í norræna fóðurmatskerfið NorFor (FAS) um leið og þær liggja fyrir og eru þá þegar aðgengilegar og tilbúnar til vinnslu fóðuráætlana í ráðgjafarverkfærinu; TINEOptifor- Island. Sauðfjárbændur eru sérstaklega hvattir til að láta efnagreina sitt heyfóður! Eins og á liðnu ári er ástæða til að hvetja sauðfjárbændur til að láta efnagreina sín hey. Markviss fóðrun búfjár byggist á upplýsingum um efnainnihald fóðursins sem gefið er. Verð á efnagreiningum: Upplýsingar um greiningarkostnað liggja fyrir í sænskum krónum (SEK) en endanlegt verð í íslenskum krónum er að sjálfsögðu háð gengisbreytingum. Sem dæmi má gera ráð fyrir eftirtöldum greiningarkostnaði á sýni eftir því hvað greint er (verðdæmin miðast við kaupgengi SEK 18. ágúst 2017 (1 SEK = 13,2 IKR) og eru án virðisauka). 1. Gras- og hirðingarsýni, fóðurefnagreining, án steinefna kr. 5.400 til 5.600 2. Gras- og hirðingarsýni, fóðurefnagreining, + 10 stein- og snefilefni kr. 7.900 til 8.100 3. Vothey, fóðurefnagreining án steinefna kr. 8.000 til 8.200 4. Vothey, fóðurefnagreining, + 10 stein- og snefilefni kr. 10 500 til 10.700 5. Vothey, fóðurefnagreining, + 14 stein- og snefilefni kr. 15.400 til 15.600 6. Heilsæði, fóðurefnagreining + 10 stein- og snefilefni kr. 11.300 til 11.500 7. Korn, fóðurefnagreining, + 10 stein- og snefilefni kr. 9.100 til 9.300 Hvert geta bændur snúið sér? Við hvetjum alla bændur; – kúa- bændur, sauðfjárbændur, hrossa- bændur, – til þess að kynna sér þessa mikilvægu þjónustu og nýta sér hana. Þær upplýsingar sem fást gegnum fóðurefnagreiningar nýtast ekki ein- göngu varðandi fóðrun heldur ekki síður við ákvörðun á áburðargjöf. Þeir sem hafa áhuga á því að taka þátt í fóðuráætlanagerð fyrir mjólkurkýr með NorFor kerfinu, – eða fóðurráðgjöf / fóðuráætlanagerð fyrir sauðfé og jafnframt nýta sér efnagreiningarþjónustu samkvæmt samningi RML og Eurofins / BLGG, vinsamlega hafi samband við ein- hvern af ráðgjöfum RML í töflunni hér að ofan. Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Styrkir til rannsókna og þróunarverkefna í nautgripa- og sauðfjárrækt Framleiðnisjóður landbúnaðarins Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnes Sími 430-4300 Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki til rannsókna og þróunarverkefna í nautgripa- og sauðfjárrækt samkvæmt reglugerð um almennan stuðning við landbúnað nr. 1240/2016. Í nautgriparækt eru þau verkefni styrkhæf sem talin eru styrkja íslenska nautgriparækt og fela í sér rannsóknir og þróunarverkefni. Í sauðfjárrækt eru hver þau verkefni styrkhæf sem talin eru styrkja íslenska sauðfjárrækt og falla undir það að vera kennsla, rannsóknir, leiðbeiningar og/eða þróun í sauð- fjárrækt. Umsókn skulu fylgja eftirfarandi upplýsingar: a) Yfirlit um tilgang og markmið verkefnisins, þ.m.t. rök- stuðningur fyrir því hvernig það fellur að þeim mark- miðum sem tilgreind eru hér að ofan og hvernig það gagnast viðkomandi búgrein að öðru leyti. b) Listi yfir alla sem eiga aðild að verkefninu. c) Tímaáætlun verkefnisins. d) Fjárhagsáætlun verkefnisins í heild. e) Hvar og hvernig niðurstöður verkefnisins verða kynntar. Umsóknarfrestur er til 1. október n.k. Reglur um styrkina og umsóknareyðublöð er að finna á www. fl.is/þróunarfé. Aðeins er tekið við umsóknum á eyðublöðunum sem þar er að finna. Umsóknum skal skilað til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Hvanneyri 311 Borgarnes, merktum: Umsókn um þróunarfé. Nánari upplýsingar veitir Þórhildur Þorsteinsdóttir, framkvæmda- stjóri Framleiðnisjóðs landbúnaðarins hjá thorhildur@fl.is. Gunnar Guðmundsson verkefnisstjóri hjá RML gg@rml.is Fóðurefnagreiningar: Rétt fóðrun byggir á að þekkja gróffóðurgæðin Baldur Örn Samúelsson Vesturland baldur@rml.is Guðfinna L. Hávarðardóttir Norðurland vestra glh@rml.is Harpa Birgisdóttir Norðurland vestra harpa@rml.is Eiríkur Loftsson Skagafjörður el@rml.is Sigurlína E. Magnúsdóttir Skagafjörður sigurlina@rml.is Berglind Ósk Óðinsdóttir Norðurland eystra boo@rml.is Elín Nolsöe Grethardsdottir Norðurland eystra elin@rml.is Steinunn A Halldórsdóttir Norðurland eystra sah@rml.is Anna Lóa Sveinsdóttir Austurland als@rml.is Jóna Þórunn Ragnarsdóttir Suðurland jona@rml.is Hjalti Sigurðsson Suðurland hjalti@rml.is Gunnar Guðmundsson Vesturland / Vestfirðir gg@rml.is ER ÞITT BÚ ÖRUGGUR OG GÓÐUR VINNUSTAÐUR? ER BARNIÐ ÖRUGGT Á ÞÍNU BÚI? Börn eiga ekki að leika sér í dráttarvélum eða í kringum þær. Það getur reynst lífs- hættulegur leikur. Landbúnaðurinn er frábrugðinn mörgum öðrum atvinnugreinum að því leyti að býlið er jafnframt heimili fjölskyldunnar. Þannig er vinnustaður bóndans oft á tíðum leikvöllur barnanna á sama tíma. Kynntu þér leiðbeiningaefni um öryggi og vinnuvernd í landbúnaði á bondi.is PO RT h ön nu n

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.