Bændablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017 Jólamarkaður Skógræktarfélags Reykjavíkur í Heiðmörk við Elliðavatn verður opinn í síðasta skiptið fyrir jól um næstu helgi frá klukkan tólf til fimm, báða dagana. Markaðurinn er haldinn ár hvert af Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Þar myndast iðulega ljúf jólastemning og heimsókn á markaðinn er orðin ómissandi hluti af aðventuhefðinni hjá mörgum fjölskyldum. Jólamarkaðurinn er haldinn í Elliðavatnsbænum og við hann í Heiðmörk og mynda skógurinn og vatnið sannkallaða vetrarparadís, sem gestir geta notið þess að ganga um. Að sögn Söru Riel hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur er jólaskógurinn á Hólmsheiði þar sem fólk getur fundið og sagað sitt jólatré sjálft. Á staðnum eru sagir sem viðskiptavinir fá afnot af og skógarhöggsmenn aðstoða gesti við að finna jólatré og pakka þeim inn í net. Það kostar jafn mikið að höggva sitt eigið tré og að kaupa þau sem eru þegar hoggin, en þau eru til sölu bæði við Elliðavatnsbæinn og á Hólmsheiði. „Skógræktarfélag Reykjavíkur selur að sjálfsögðu íslensk jólatré af ýmsum gerðum, en fyrir hvert keypt tré eru 50 ný gróðursett. Auk þess verða mismunandi vörur úr skóginum í boði. Öll trén eru af löndum sem Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur umsjón með; Heiðmörk, Hólmsheiði og Reynivellir. Furan er sú tegund sem við seljum mest af en það fer þó jafnt og þétt af öllum tegundum. Einnig má benda á að við höfum á þriðja ár selt tré sem við köllum „Einstök tré“. Þetta eru tré sem eru furðuleg í laginu, hafa marga toppa eða eru á einhvern hátt óvenjuleg,“ segir Sara. Verð á trjám er á bilinu frá 5.000 krónum (0–1 metri) til 16.000 króna (2,5–3 metrar), eldiviður kostar 2.500 kr. og greinabúnt 1.500 kr. Jóla- og handverksmarkaður „Skógræktarfélag Reykjavíkur heldur utan um handverksmarkað þar sem sérstök áhersla er lögð á einstakt handverk, unnið úr náttúrulegum efnum, auk þess sem mat- og snyrtivara er þar til sölu,“ segir Sara og hvetur fólk til að fylgjast með viðburðasíðu Heiðmerkur á Facebook, þar sem úrvalið sé mismunandi eftir helgum, nýtt fólk, nýjar vörur hverja helgi. „Það eru þó einstaka aðilar sem eru allar helgar. Við erum með þó nokkra bása sem eru til góðgerðarmála; Zontaklúbbur Reykjavíkur, Zontaklúbburinn Embla, Fríðuhús og Tógó eru aðilar sem starfa sem góðgerðarsamtök og rennur allur ágóði til starfsemi þessarar félagasamtaka. Vörurnar eru af ýmsu tagi, ullarvörur, keramíkvörur, handgerð kerti, útskornir munir, hnífar, gærur, brúður og bangsar, leikföng úr tré, jólavörur af ýmsu tagi, myndir, barnaföt, sultur, saft, tvíreykt hangilæri, grafið ærkjöt, grafin og reykt bleikja, sósur af ýmsu tagi, bakkelsi og svo mætti lengi telja.“ Viðamikil menningardagskrá „Félagið rekur notalega kaffistofu þar sem lagt er upp úr því að verðlag sé hagstætt þannig að flest allir ættu að hafa ráð á að fá sér kakó eða kaffisopa og með því. Viðamikil menningardagskrá er allar helgar, bæði fyrir börn og fullorðna. Menningardagkráin fyrir næstu helgi verður þannig að á laugardaginn 16. desember klukkan 13.00 hefst upplestur á kaffistofunni, þar sem Unnur Jökulsdóttir les upp úr bók sinni Undur Mývatns, en hún er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Klukkan 14.00 hefst Barnastund í Rjóðrinu við varðeld og les Gunnar Helgason upp úr barnabókinni Amma er best. Jólasveinarnir munu láta sjá sig, syngja og tralla með börnunum. Klukkan 15.30 hefjast tónleikar á Kaffistofu, ætla tvíburasysturnar Gyða og Kristín Anna Valtýsdætur að syngja fyrir gesti. Daginn eftir, á sunnudeginum 17. desember, klukkan 13.00 les Kristín Eiríksdóttir upp úr bókinni sinni Elín – ýmislegt, en hún er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Klukkan 14.00 hefst Barnastund í Rjóðrinu við varðeld og les Sigrún Eldjárn upp úr barnabókinni Áfram Sigurfljóð. Síðan hefjast tónleikar klukkan 15.30 á Kaffistofu og munum við tilkynna það þegar nær dregur hver stígur á svið,“ segir Sara að lokum. /smh Jóla- og handverksmarkaðurinn í Heiðmörk MÆLT AF MUNNI FRAM Heldur kuldalegur var kveðskapur síðasta vísnaþáttar. En þar sem veðurfar er frekar önugt það sem af er desember, þá byrjar þessi þáttur með hálfgerðum aftökum. Páll Guðmundsson frá Holti í Ásum orti á útmánuðum næstu tvær vísur: Stabbinn grennist, geilar víkka gengur senn á heyjaforðann. Hokurbóndans brúnir síkka, blæs af Grænlandsjöklum norðan. Bítur kjúkur kyljan hörð, kælir búki þínum, ennþá strjúka él um jörð jötunlúkum sínum. Á harðindavetri orti Ingibjörg Björnsdóttir um Gönguskörð: Tíðin ýtum tjáist hörð, telst því lítil gleðin. Illt er að líta upp í Skörð eru þau hvít og freðin. Þessi vísa Höskuldar Einarssonar frá Vatnshorni lýsir e.t.v. betur átthagaást frekar en vetrarhörkum í Skorradal: Kalla ég hátt í kaldri tíð kveðju norður á heiðar. Fimmtugur einn í frosti og hríð fer þar sinnar leiðar. Traust vinátta var með þeim Höskuldi og Sigurði frá Brún í Svartárdal. Miklar vísnaglettur voru með þeim meðan lífið leyfði. Síðasta vísa sem Höskuldur orti til Sigurðar varð til að morgni þess dags sem Sigurður lést: Illt þó finnist allt mitt grín eftirminnilega þegin kynni þín og mín þakka ég innilega. Eftir Sigurð allan orti Höskuldur: Brúnar rætur, blóm og fræ bjartar nætur kvað hann, eg í sætið engan fæ er mér bætir skaðann. Þó að allt sé kvitt og klárt er kemur að hinsta brottflutningi, getur maður saknað sárt Svartdælings úr Húnaþingi. Nú verður kynntur til sögu nýr hagyrðingur í þessum vísnaþáttum. Guðmundur Sigurjónsson, uppalinn á Valbjarnarvöllum í Mýrasýslu, nú starfandi sem viðskiptafræðingur hjá Lykli fjármögnun, og stýrir þar fyrirtækjaviðskiptum. Foreldrar Guðmundar, Sigurjón Jóhannsson og Inga Guðmundsdóttir búa enn á Valbjarnarvöllum, undir áttrætt bæði tvö. Guðmundur er augljóslega enginn byrjandi á Braga-völlum. Hér á eftir fer bragur sem hann nefnir „Annir á aðventu“. Á þessum árstíma mætti kalla brag Guðmundar sannkallað súkkulaði fyrir sauðfjárbændur: Hrútarnir bros‘útí bæði bísperrtir hlaupa um krær. Ærnar fá ekkert næði eltast þeir sífellt við þær. Móðir og másandi reyna mökin að klára sem fyrst. Tekst það með eina og eina ekkert er daðrað og kysst. Allt þett‘af gleði þeir gera, glampar á velsköpuð tól. Himneskt er hrútur að vera í hátíðarstemmningu um jól. Meira af Guðmundi síðar. Ingólfur Ómar Ármannsson sendi þættinum líka gullkorn sem glatt getur bændur á aðventunni: Þó að myrkur byrgi bólin birtir senn við helgan yl. Bráðum koma blessuð jólin og bændur fara að hleypa til. Með jóla og nýársóskum, Árni Geirhjörtur. 192 Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggð1@gmail.com Við gamla Elliðavatnsbæinn í Heiðmörk myndast iðulega ljúf jólastemning á aðventuhelgunum. Myndir / smh LÍF&STARF Á markaðnum getur fólk keypt hoggin tré, eldivið og greinabúnt. Notaleg upplestrarstund í Rjóðrinu. Frá handverksmarkaðnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.