Bændablaðið - 14.12.2017, Page 70
70 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017
Halldóra Eydís Jónsdóttir frá
Vogum í Mývatnssveit hefur
brennandi áhuga á hönnun og
hannar meðal annars töskur og
skó úr íslensku hráefni. Hráefnin
sem Halldóra nýtir sér eru meðal
annars lambaskinn, hrosshár, roð
og hreindýraskinn.
„Ég hef alltaf haft áhuga á
hönnun og eftir að ég lauk námi frá
Verkmenntaskólanum á Akureyri fór
ég til náms við London College of
Fashion sem er partur af University
of the Arts London, og lauk þaðan
BA-prófi í skóhönnun og skósmíði
árið 2010.“
Halldóra segir að eftir að hún
lauk BA-prófi hafi hugurinn farið
að leita aftur heim og að hana hafi
langað að hanna og búa til muni úr
íslensku hráefni sem væru innblásnir
af íslenskri náttúru. „Í dag má tengja
efnið sem ég nota beint heim í
sveitina.“
Hófst með taglhári
„Á lokaári mínu í London kom ég
heim í frí og klippti hár af tagli
hestanna í sveitinni og óf úr því og
notaði í skóhönnun. Ég heillaðist
gersamlega af taglhárinu og að
nota og nýta náttúruvænt hráefni í
hönnunina og hef einbeitt mér að
því síðan. Á milli kemur svo fyrir að
ég noti einnig ítölsk leður og skinn
með.“
Í dag rekur Halldóra eigin
hönnunarlínu sem ber nafn hennar,
HALLDORA, og framleiðir meðal
annars skó, töskur, peningaveski og
hálsmen. Vörurnar eru að stórum
hluta unnar úr íslensku roði, lambi
og hrosshári. Halldóra rekur einnig
íslensku hönnunarverslunina JÖKLU
á Laugavegi 90, ásamt vinkonu sinni
Jónu Kristínu, og selja þær þar ásamt
fleiri hönnuðum, milliliðalaust.
„Ég vinn og smíða mín skómót og
snið sjálf og hef einnig einbeitt mér
að því að gera þægilega en öðruvísi
skó, með hælum
sem allflestar
konur geta
gengið á,
háa, lága og
alls konar.“
Leður er náttúruvænt hráefni
Halldóra segir að íslenskt
lambaskinn sé fyrirtaks
hráefni, vandað og fallegt,
og skórnir úr því hafa
vakið mikla athygli bæði
hér heima og erlendis.
„Ég lít svo á að hráefnið
sem ég nota sé aukaafurð
íslensks landbúnaðar og
sjávar útvegs og mikilvægt
að nýta það eins og hægt
er. Auk þess sem hráefnið
tengir mig beint heim í
sveitina.
Nú á tímum vegan,
g r æ n m e t i s æ t u t í s k u -
bylgjunnar, er ég oft
spurð hvers vegna ég líti
svo á að vörurnar mínar
séu náttúruvænar þar
sem þær eru unnar úr
dýraafurðum og af hverju
ég noti ekki gerviefni í
staðinn.
Svar mitt er einfalt,
ég ætti erfitt með að
flokka vörurnar mínar
undir náttúruvæna
hattinn væru
þær unnar úr
gervileðri.
V i ð
framleiðslu á gervileðri
er notað mikið magn
spilliefna og gervi efnin
eyðast mörg hver ekki í
náttúrunni. Íslenskt leður
er náttúruvæn afurð
sem fer betur með
fæturna, og lítið
magn spilliefna
er notað við
sútunina og
ég nýt þess
að vinna með
það. Ég segi
samt ekki að
ég muni aldrei
smíða skó úr
stráum og
bambus, en
það er ekki á
dagskrá
eins og
staðan
er í
dag.“
Ný lína úr hreindýraleðri og roði
Halldóra vinnur nú að nýrri línu í
skóm, töskum og peningaveskjum
fyrir dömur og herra. „Nýju vörurnar
eru unnar úr íslensku hreindýraleðri
og roði en eftir áramót býð ég skó úr
þorskleðri og rúskinni með hekluðum
hrosshárablúndum sem ég bý til sjálf,
innblásnir af íslenskum blómum.“
/VH
MENNING&LISTIR
Hálsfesti úr hrosshári og lambaskinni.
SIRRÝ. Stígvél og veski úr
hlýraroði, hálsmen úr laxaroði.
HALLDORA. Hvítt, silfurlaxaroð um-
slagaveski.
Halldóra Eydís Jónsdóttir, hönnuður frá Vogum í Mývatnssveit.
Umslagaveski úr laxaroði, svart og
silfrað.
HANNA. Töskur
úr karfaroði
eða laxaroði og
ítölsku nauts-
leðri.
EIK. Hreindýrastígvél.
ANNA. Skór úr íslensku lambaskinni,
hrosshári, laxaroði og með hraun í
hælnum.