Bændablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017
Það er ekki hægt annað en að
komast í gott jólaskap við að
heimsækja stærsta piparkökubæ
í heimi í Bergen í Noregi. Hér
hlaupa piparkökuhúsin og
skúlptúrar úr piparkökudeigi
á hundruðum sem starfsmenn
hinna ýmsu fyrirtækja, nemendur
grunnskóla, börn úr leikskólum og
almennir borgarar hafa föndrað
til að sýna í piparkökubænum.
Piparkökubærinn, sem staðsettur
er í niðurlagðri innanhússsundlaug
í miðbænum í Bergen, hefur yfir
sér svolítið dulúðlegt yfirbragð,
hér hafa forsvarsmenn verkefnisins
fjólubláa og daufa lýsingu
innandyra svo bærinn nýtur sín
vel á þar til gerðum borðum,
hólum og hæðum sem búið hefur
verið til fyrir tilefnið og sett hvítt
léreft yfir allt áður en hin ýmsu
piparkökubyggingarverk eru sett
á sína staði.
„Í ár opnuðum við 18.
nóvember og stendur sýningin
fram á gamlársdag. Um helgar
er fullt út úr dyrum og á virkum
dögum fáum við einnig margar
heimsóknir. Við fullyrðum að þetta
sé stærsti og flottasti piparkökubær
í heimi og stöndum við þau stóru
orð. Verkefnið byrjaði fyrir 26
árum og hefur vaxið ár frá ári,“
segir piparkökuhúsabæjarstjórinn
og skipuleggjandinn Steinar
Kristoffersen.
Ágóðinn til góðgerðarmála
Það sem er merkilegt með
piparkökubæinn er að allir þeir
hlutir sem má sjá þar eru unnir
í sjálfboðavinnu og allur ágóði
af sölu inngangsmiða rennur til
góðgerðarmála.
„Allir geta lagt verkefninu lið,
jafnt háir sem lágir, ungir sem
aldnir. Þetta er sá viðburður sem
dregur að flesta gesti í Bergen
á þessum tíma fyrir jólin en um
100.000 manns koma hingað. Í
gegnum árin hafa milljónir króna
runnið til meðal annars Redd Barna,
SOS barnaþorpa, Children At Risk
Foundation og Hjartaheilla svo fátt
eitt sé nefnt,“ segir Steinar og bætir
við:
„Við erum einnig með lítinn
sölubás inni á svæðinu þar sem
fólk getur keypt sér hressingu
eftir að hafa skoðað sig um í
piparkökubænum og allur ágóði
þess rennur til góðgerðarmála. Það
er ótrúlega gefandi að taka þátt í
þessu verkefni og skemmtilegt að
sjá hversu vinsælt það er að koma
hingað ár eftir ár.“ /ehg
UTAN ÚR HEIMI
Fjöldi gesta streymir að til að skoða stærsta piparkökubæ í heimi í Bergen í Noregi. Myndir / Erla Hjördís Gunnarsdóttir