Bændablaðið - 14.12.2017, Side 63
63Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017
skordýr um frjóvgun þeirra. Sítrusar
eru sjálffrjóvgandi og eiga ólíkar
tegundir, afbrigði og yrki auðvelt
með að frjóvgast innbyrðis.
Aldinið er safaríkt ber með
þykkri húð, hnattlaga eða ílangt
auk þess sem til eru sítrusaldin
sem er fingruð, 4 til 30 löng og 4
til 20 sentímetra að ummáli. Húðin
leðurkennd í þremur lögum, ytra-,
mið- og innralagi. Ystalagið mis
hrufótt eftir tegundum, gult, grænt,
appelsínugult og allt þar á milli.
Fjöldi fræja mismunandi eftir
tegundum, afbrigðum og sum yrki
eru frælaus.
Flestar tegundir sítrusa þrífast
best í hitabeltinu en eru ræktaðir
milli 40° suðrænnar og 40° norð-
lægrar breiddar og að 1000 metrum
yfir sjávarmáli.
Sítrónur eru hluti af helgi-
haldi gyðinga og kallast etrog
og finnast myndir af þeim víða í
skreytingum gamalla synagóga við
botn Miðjarðarhafsins.
Líkt og í annarri stórræktun er
mikið notað af eiturefnum til að
varna sveppasýkingum og afföllum
vegna meindýra við ræktun
sítrusávaxta og ætti því alltaf að
þvo aldinin vel ef nota á börkinn
af þeim í matargerð.
Mandarínur eru upprunnar í Asíu
Mandarínur eru upprunnar í
Suðaustur-Asíu og Filippseyjum
og hafa verið ræktaðar í Asíu í að
minnsta kosti þrjú þúsund ár en
í dag eru þær ræktaðar víða um
heim.
Elsta heimild um ræktun
mandarína eru frá því um 900 fyrir
upphaf okkar tímatals og segir frá
aldinberandi mandarínutrjám í
hálfyfirbyggðum garði valdsmanns.
Fimm öldum síðar er talað um
rauðar og gular mandarínur í
ræktun í Kína.
Talið er að ræktun á mandarínum
hefjist á Indlandi við upphaf
júlíanska tímatalsins og hafi borist
þaðan frá Yunnan-héraði í Kína.
Mandarína er getið í Japan milli
1300 og 1200 fyrir Krist og er talið
að þær hafi borist þangað frá Kína.
Talið er að mandarínur hafi
borist til Vesturlanda eftir nokkrum
leiðum í mismiklu magni og á
mismunandi tíma. Vitað er að
tvö yrki bárust til Englands árið
1805 frá Kína og þaðan til Ítalíu
og landanna sunnan, norðan og við
botn Miðjarðarhafs þar sem ræktun
þeirra var almenn eftir miðja
nítjándu öld. Ávöxturinn er stundum
kallaður Miðjarðarhafsmandarínur
vegna mikillar ræktunar hennar þar.
Ítalski konsúllinn í Nýju Orleans
við Mexíkóflóa var fyrstur til
að rækta mandarínur í Norður-
Ameríku skömmu fyrir 1850.
Þaðan bárust mandarínur til Flórída
og Kaliforníu þar sem þær eru
mikið ræktaðar í dag. Auk þess sem
japanskar mandarínur sem kallast
satsúma bárust til Norður-Ameríku
1878 og skömmu eftir 1900 var
búið að planta nærri milljón slíkum
trjám í suðurríkjunum í kringum
Mexíkóflóa, Texas, Louisiana,
Missisippi, Alabama og Flórída.
Mandarínu-grasafræði
Nokkur breytileiki er í hæð
mandarínutrjáa efir yrkjum en
yfirleitt verða þau ekki meira
en sjö metrar að hæð en oftast
er króna þeirra umfangsmikil.
Greinarnar eru grannar, blöðin
sígræn, breiðlensulaga, smátennt
og stundum með þrengingu og
eins og tveimur minni blöðum
við blaðstilkinn. Blöðin hvít, eitt
eða fleiri saman í hnapp. Aldinið
hnattlaga, grænt eða appelsínugult,
fræin lítil og oddmjó í annan
endann.
Mandarínur eru þurrkþolnar en
miklar kuldaskræfur og þola alls
ekki frost nema í stuttan tíma.
Helstu ættingjar mandarínunnar
eru klementínur, satsúmas,
tangerínur og reyndar mörg
önnur ræktunarafbrigði auk þess
sem til er fjöldi yrkja af hverju
afbrigði fyrir sig og ekki skrýtið
að þessum blendingum sé iðulega
ruglað saman. Öll afbrigðin eiga
það sameiginlegt að auðvelt er að
flysja börkinn af þeim.
Einfaldast er að líta mandarínur
sem yfirheiti á öllum afbrigðunum.
Munurinn á mandarínum og
klementínum
Samkvæmt þriðju útgáfu Íslensku
orðabókarinnar eru klementínur
steinlaust afbrigði af mandarínum.
Sem þýðir að mandarínur og
klementínur eru mandarínur en
mandarínur ekki klementínur.
Sumir segja að auðveldara sé að
flysja klementínur en mandarínur
og að þær séu sætari á bragðið.
Klementínur eru nefndar eftir
franska trúboðanum, Marie-
Clément Rodier, sem starfaði
á munaðarleysingjaheimili í
Alsír. Clément ræktaði meðal
annars mandarínur í garði við
heimilið. Árið 1902 fann hann
frælausa mandarínu og hóf
fjölgun hennar með ágræðslu.
Munaðarleysingjarnir á heimilinu
fóru að kalla ávöxtinn klementínu
í höfuðið á trúboðanum og festist
það við ávöxtinn. Reyndar segja
heimildir að frælausar mandarínur
hafi verið ræktaðar í Kína í
margar aldir undir heitinu kantón-
mandarínur.
Satsúmas eru mandarínur sem
koma frá Japan. Þær eru safaríkar
og ekki eins súrar og margar aðrar
mandarínur. Til eru nokkur yrki
af satsúmum en algengust þeirra
eru okitsu og mihovase. Satsúmur
hafa takmarkað geymsluþol.
Innflutningur á satsúmum til
Bandaríkjanna Norður-Ameríku
frá Japan var talsverður á
fyrstu áratugum síðustu aldar.
Innflutningur var stöðvaður eftir
loftárásir Japana á Perluhöfn 1941.
Eftir að viðskiptasamband komst
aftur á milli Bandaríkjanna og Japan
eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar
voru satsúmur einn fyrsti
varningurinn sem leyft var að flytja
til Bandaríkjanna.
Tangerínur er heiti á manda-
rínum sem upphaflega voru
ræktaðar í Marokkó og kenndar við
hafnarborgina Dar Shams Tangier.
Að öðru leyti eru þær eins og
mandarínur.
Nafnaspeki
Heitið mandarína er dregið af
mandarí sem var tungumál yfir-
og menntastéttarinnar í norðurhluta
Kína og appelsínugulrar yfirhafnar
og hatta sem embættismenn í Kína
klæddust og kölluðust mandarín.
Um 70% Kínverja tala mandarín
í dag og er það opinbert tungumál
landsins.
Ræktun og umhirða innandyra
Mandarínutré þrífast í margs
konar jarðvegi en best í stórum
potti með næringarríkum og vel
framræstum moldarjarðvegi með
pH 5,5 til 6,5. Þær þola þurrt loft
og kjósa góðan stofuhita og henta
því ágætlega til ræktunar innandyra
hér á landi. Auðvelt er að taka fræ
úr aldininu og stinga því í mold og
fá upp fallega plöntu. Mandarínutré
þurfa bjartan stað en ekki endilega
beina sól og þau þola illa að standa
í vatni. Gott er því að rennbleyta
moldina og láta renna vel af henni
og láta hana þorna milli vökvana.
Ekki er víst að fræplöntur gefi
af sér ávöxt innandyra, en þess eru
samt mýmörg dæmi, en í góðu ári
geta mandarínutré erlendis gefið af
sér milli sex og sjö þúsund ávexti.
Nytjar
Algengast er að borða mandarínur
og skylda ávexti ferska og hráa
beint innan úr berkinum eða sem
hluta af salati eða í marmelaði.
Auk þess sem bragðefni sem unnin
eru úr þeim eru notuð í sælgæti,
gosdrykki, ís, tyggigúmmí, safa
og bökunarvörur. Mandarínuolía
er notuð í baðolíur, ilmvatn og
ýmiss konar snyrtivörur og ferskur
börkurinn er gott krydd.
Kínverjar nota börkinn og
aldinið til lækninga á innanmeinum,
meltingartruflunum og til slím-
losunar í öndunarfærum.
Mandarínur tengjast kínverska
nýárinu sem tákn um allsnægtir og
gæfu og sjálfsagt þykir þar að hafa
þær á borðum sem skraut og færa
vinum og samstarfsmönnum sem
gjafir í kringum nýja árið.
Í Bandaríkjum Norður-Ameríku,
Kanada, Rússlandi og Japan
tengjast mandarínur jólunum. Í
Norður-Ameríku er algengt að
gefa mandarínur í sokkinn um
jólin, siður sem tengist upphaflega
japönskum innflytjendum til
Bandaríkjanna.
Mandarínur á Íslandi
Mandarínur eru meðal þeirra ávaxta
sem verslunin Liverpool auglýsir
til sölu í Vísi og Ísafold snemma í
febrúar árið 1913. Næstu ár á eftir
heldur verslunin áfram að auglýsa
mandarínur til sölu. Árið 1926
eru mandarínur kallaðar gullaldin
í Lesbók Morgunblaðsins í
greininni Orð úr viðskiptamáli sem
er að stórum hluta orðasafn sem
Orðanefnd verkfræðingafélagsins
tók saman. Orðasafnið er á margan
hátt skemmtilegt og þar er meðal
annars lagt til að appelsínur
verði kallaðar glóaldin, bananar
bjúgaldin, sítróna gulaldin,
brjóstahaldari brjóstalindi og
lakkrís svertingi.
Um miðja síðustu öld er farið
að tengja mandarínur jólunum hér
á landi og auglýsa jólamandarínur
til sölu og smám saman hafa
mandarínur tekið við af eplum sem
jólaávöxturinn og ekki er talað um
jólalykt af eplum lengur. Þau eru
einnig ófá börnin á Íslandi sem hafa
fengið mandarínu í skóinn um jólin.
Mandarínur og í seinni tíð
klementínur eru í huga margra
tengdar jólunum og margir
sem kaupa mandarínu- eða
klementínukassa eða tvo fyrir
jólin en líta ekki við þeim á öðrum
árstímum. Ástæða þessa er ekki
að mandarínur og klementínur
séu ekki á markaði allt árið heldur
að fyrstu mandarínurnar og
klementínurnar frá Spáni, þaðan
sem mest er flutt inn frá, koma
á markað í nóvember og verð á
þeim hagstætt og þær fluttar inn í
hundruða tonnavís.