Bændablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 6

Bændablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 6
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017 Við höfum fengið nýja ríkisstjórn sem nú er að stíga sín fyrstu skref. Um leið og nýjum ráðherrum er óskað til hamingju með embættin og þess óskað að störf þeirra verði landi og þjóð til heilla, er þeim sem á brott hverfa óskað velfarnaðar við ný verkefni, innan eða utan þings. Ég held að það sé á engan hallað þegar ég vona að hin nýja stjórn geti fært með sér meiri pólitískan stöðugleika en hér hefur ríkt undanfarin misseri. Stjórnarsáttmáli hinnar nýju stjórnar er umfangsmikill og þar segir meðal annars: „Landbúnaður á Íslandi á að vera leiðandi í framleiðslu á heilnæmum landbúnaðarafurðum. Lögð verður áhersla á nýsköpun og vöruþróun til að stuðla að byggðafestu, auka verðmætasköpun og nýta tækifæri sem byggjast á áhuga á matarmenningu með sjálfbærni og gæði að leiðarljósi. Meginmarkmiðið er að landbúnaður á Íslandi sé sjálfbær og vernd búfjárstofna sé tryggð. Eitt af fyrstu verkefnum ríkisstjórnarinnar verður að bregðast við vanda sauðfjárbænda til skemmri og lengri tíma. Samhliða nýrri kynslóð landbúnaðarsamninga verða innleiddir sérstakir aðlögunarsamningar um nýja starfsemi til sveita. Með þeim verður rudd braut fyrir bændur til að byggja upp nýjar búgreinar eða hasla sér völl á öðrum sviðum. Slíkir aðlögunarsamningar til búhátta- breytinga verða tímabundnir og háðir skilyrðum um byggðafestu, verðmætasköpun og búsetu viðkomandi jarðar og geta stuðlað að nýsköpun, náttúruvernd og nýjum áherslum í rannsóknum og menntun. Forsenda þess að landbúnaður geti nýtt tækifæri framtíðarinnar er jafnvægi í framleiðslu, skilvirkt eftirlit og nýsköpun. Ríkisstjórnin ætlar að tryggja betur rétt neytenda til upplýsinga um uppruna, framleiðsluhætti, lyfjanotkun og umhverfisáhrif. Ríkisstjórnin mun ráðast í aðgerðir til að þróa lífhagkerfið enn frekar, grænar lausnir og aðferðir til að draga úr umhverfisáhrifum matvælaframleiðslu með hvötum og stuðningi sem miði meðal annars að kolefnisjöfnun greinarinnar. Efla þarf sérstaklega lífrænan landbúnað.“ Svo mörg voru þau orð um landbúnaðinn. Það er ekki auðvelt að vera á móti neinu af þeim, stóra spurningin er eins og ávallt, hvernig náum við þessu fram og mun ríkisstjórnin tryggja nauðsynlega fjármuni til þess? Það á eftir að koma í ljós. Síðan er auðvitað mjög mikil vinna eftir við að útfæra verkefnin og sum eru alveg óútfærð. Það er til dæmis óljóst við hvað er átt með nýrri kynslóð landbúnaðarsamninga og sérstaka aðlögunarsamninga um nýja starfsemi til sveita. Þessi mál verða væntanlega hluti af áherslum ríkisstjórnarinnar við endurskoðun búvörusamninganna 2019 og þá verður vonandi skýrara við hvað er átt. Taka má undir áform í loftslagsmálum, m.a. fyrirheit um að ganga til samstarfs við sauðfjárbændur um kolefnisjöfnun greinarinnar. En til að þar náist árangur þarf meira að koma til en að færa til fjármuni innan núverandi stuðnings. Jafnframt eru góð orð um að bregðast við vanda sauðfjárbænda í bráð og lengd. Niðurstöður þess þurfa að liggja fyrir nú fyrir árslok svo nýr ráðherra landbúnaðarmála þarf að ganga fram af ákveðni og festu í því máli. Nóg hefur verið beðið hingað til. Tollbreytingar fram undan Stefnan í milliríkjaviðskiptum passar ekki alveg við hugmyndir um vernd búfjárstofna og uppbyggingu innanlands. Þar er hvatt til enn aukinnar fríverslunar. Nú er það svo að búið er að afnema alla tolla í landinu nema af ákveðnum landbúnaðarvörum sem treysta á tollverndina til að geta starfað. Aðeins um 11% af tollskránni bera einhvern toll yfirleitt. Annar innflutningur er tollfrjáls, sama hvaðan hann kemur. En það er ekki allt. Með gildistöku nýs tollasamnings við ESB þann 1. maí næstkomandi verða aðeins 260 tollnúmer sem bera einhvern toll, þegar flutt er inn frá Evrópusambandinu. Það er aðeins 3% tollskrárinnar. Þetta er heldur ekki allt. Í þessum sama samningi er kveðið á um mjög stækkaða tollkvóta sem ESB fær hingað inn. Það er er um að ræða hluta af þessum 260 númerum sem áður greinir en það magn sem flutt er inn með þessum kvótum ber ekki toll. Því til viðbótar er veruleg ógn fólgin í niðurstöðu EFTA dómstólsins frá 14. nóvember. þar sem dómstóllinn dæmdi að ekki mætti takmarka innflutning á hráu ófrosnu kjöti sem og ógerilsneyddum eggjum og mjólk. Dómstóllinn gaf ekkert fyrir rök Íslands um vernd búfjárstofna eða lýðheilsu. Markaðurinn er ofar öllu öðru. En ríkisstjórnin þarf að svara hvernig þetta allt saman fer saman við þau markmið sem hún hefur sett sér. Bændur þurfa á þeim svörum að halda. Ein þjóð í alvöru samfélagi Í stjórnarsáttmálanum eru jafnframt áhugaverð áform um uppbyggingu í samgöngum, fjarskiptum og raforkudreifingu sem og í byggðamálum almennt. Sannarlega er þar ekki vanþörf á og vonandi verða þessi fyrirheit að veruleika. Við erum ein þjóð og verðum að muna að sanngirni þarf að gæta gagnvart landsmönnum öllum hvað varðar innviði og opinbera þjónustu. Án þess erum við ekki alvöru samfélag. En við spyrjum að leikslokum. Að því sögðu óska ég öllum lesendum Bændablaðsins gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með þökk fyrir samfylgdina á því sem er að líða. Gleðilega hátíð. Bændablaðið kemur út 24 sinnum á ári. Því er dreift ókeypis á yfir 400 stöðum á landinu og á öll lögbýli landsins. Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti gegn greiðslu. Árgangurinn kostar þá kr. 10.200 með vsk. (innheimt í tvennu lagi). Ársáskrift fyrir eldri borgara kostar 5.100 með vsk. Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279 Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar − SKOÐUN Ég lifi´ í draumi dreg hvergi mörkin dags og nætur sveiflast aðeins ósjálfrátt. Í hægum gangi á fullt í fangi með að finna það sem oftast reynist öfug átt. Það er líkt og ég sé laus úr öllum viðjum Lentur hringsólandi á vegi miðjum. Ég lifi í draumi dreg hvergi mörkin dags og nætur Sveiflast aðeins ósjálfrátt. Þetta er fyrsti hluti af fallegu ljóði Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar við afar hugljúft lag Eyjólfs Kristjánssonar sem ber nafnið „Ég lifi í draumi“. Þessar ljóðlínur koma ósjálfrátt upp í hugann þegar hugsað er til margra háleitra hugmynda sem stjórnmálamenn á Íslandi reyna nú að hrinda í framkvæmd. Þær hugmyndir eru margar hverjar afar hugljúfar eins og textinn góði. Það er þó æði oft sem hrint er í gang framkvæmdum á kostnað almennings þar sem stjórnmálamenn „í hægum gangi eiga fullt í fangi með að finna það, sem oftast reynist öfug átt“. Það er dapurlegt að fylgjast með hvernig popúlisma er óspart beitt til að vinna hugmyndum fylgi, oftar en ekki á illa ígrunduðum forsendum. Jafnvel svo að í framkvæmdinni öskra þversagnirnar á þá sem fylgjast með og reyna að skilja röksemdafærsluna sem að baki liggur. Ansi oft er þá verið að stefna þróuninni í „öfuga átt“, eins og segir í textanum. Þetta á við allt of margar pólitískar ákvarðanir. Háleit eru markmiðin með þátttöku Íslands við að draga úr loftmengun á heimsvísu. Eitt af fyrstu embættisverkum okkar nýja ástkæra forsætisráðherra var að fljúga til Parísar í reykspúandi þotu til að kynna umheiminum að Íslendingar ætli sko að ganga lengra en flestar aðrar þjóðir í að draga úr útblæstri koltvísýrings. Á sama tíma og ráðherrann boðar þetta fagnaðarerindi er verið að leggja lokahönd á byggingu kísilmálmverksmiðju við Húsavík. Það mun samkvæmt minnisblaði PCC Bakki Silicon hf. brenna um 40.000 tonnum af kolum og koksi árlega og 40.000 tonnum af timburkurli til að framleiða kísilmálm. Af sama meiði er kísilmálmverksmiðja United Silicon í Helguvík. Álverin í landinu og járnblendiverksmiðja brenna líka ógrynni af kolum, koksi og timbri til að framleiða 800.000 tonn af áli. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands voru flutt inn 124.992 tonn af kolum á árinu 2016 og rúm 14.083 tonn af koksi. Á sama tíma er verið að loka gróðrar- stöðinni Barra á Fljótsdalshéraði. Framkvæmdastjórinn segir fyrirtækið hafa gefist upp á sviknum loforðum um aukna skógrækt og kolefnisbindingu. Ísland reiðir sig nú æ meir á innflutning ferðamanna. Til þess eru einkum notaðar þotur sem brenna steinolíu. Af slíku þotueldsneyti voru flutt inn 654.278 tonn á árinu 2016. Á sama tíma voru flutt inn 135.794 tonn af bensíni og 340.844 tonn af dísilolíu. Verulegur hluti af dísilolíunni fer á skip, jarðvinnutæki, flutningatæki og landbúnaðartæki. Bílafloti almennings er því ekki hálfdrættingur á við flugið. Af þessu má líka sjá að langstærsti loftmengunarvandinn á Íslandi liggur hjá stóriðjunni og fluginu. Áfram munum við þó trúlega eins og skáldið sagði, lifa í draumi og draga hvergi mörkin dags og nætur. Sveiflast aðeins ósjálfrátt... – væntanlega eftir nýjustu vinsældavísitölum. Með bestu óskum um gleðileg jól og áramót og með kæru þakklæti fyrir ánægjuleg samskipti á líðandi ári. Hörður Kristjánsson Ég lifi í draumi ÍSLAND ER LAND ÞITT Sindri Sigurgeirsson formaður Bændasamtaka Íslands sindri@bondi.is Meira kjöt á beinin Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 − Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is – Blaðamenn: Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is – Auglýsingastjóri: Guðrún Hulda Pálsdóttir ghp@bondi.is – Sími: 563 0303 – Netfang auglýsinga: augl@bondi.is − Vefur blaðsins: www.bbl.is − Netfang blaðsins: (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Frágangur fyrir prentun: Anna Kristín Ólafsdóttir – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621 Mynd / HKr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.