Bændablaðið - 14.12.2017, Qupperneq 80
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 201780
Sveinn Aðalsteinsson og Sif
Jóhannesdóttir eru leiguliðar á
bænum Ærlæk til tveggja ára frá
nóvember 2016.
Býli: Ærlækur.
Staðsett í sveit: Öxarfirði í Norður-
Þingeyjarsýslu.
Ábúendur: Við hjónin Sveinn
Aðalsteinsson og Sif Jóhannesdóttir
erum leiguliðar á bænum til tveggja
ára frá nóvember 2016
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Fjölskyldan og búseta hennar er
fremur venju flókin.
Fjölskyldan býr á tveimur stöðum,
Sveinn og Þorsteinn sonur hans búa
á Ærlæk í vetur ásamt föður Sifjar,
Jóhannesi Óla. Sif og sonur okkar,
Jóhannes Óli yngri, búa að jafnaði á
Húsavík, en koma í sveitina hvenær
sem færi gefst.
Bræður hafa haft vistaskipti en
síðasta vetur bjó Þorsteinn á Húsavík
en Jóhannes Óli á Ærlæk. Þar að auki
eigum við þrjú uppkomin börn sem
öll búa á Akureyri og stunda þar nám.
Gæludýrin eru tvö; kötturinn Kolur
á Húsavík og eins árs gömul gömul
Border Collie-tík sem býr á Ærlæk
og heitir Píla.
Stærð jarðar? Um 700 ha.
Gerð bús? Sauðfjárbú.
Fjöldi búfjár og tegundir? 530
vetrarfóðraðar ær, 15 endur og 7
hross.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Hefðbundinn dagur í desember
þegar allt er komið á hús og fengitíð
ekki byrjuð er frekar einfaldur
og þægilegur. Morgungjöf kl. 8,
bæta á eldinn í reykhúsinu og svo
stússast við frágang eftir rúning
og undirbúning fyrir fengitíð.
Seinnipartsgjöf eftir kl. 16.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Vorverk á sauðburði
eru alla jafna skemmtilegust þegar
vel gengur og veðrið er þokkalegt.
Smölun og réttir eru líka frábær
skemmtun í góðu veðri og góðum
félagsskap. Leiðinlegast er að
þurfa að berjast um í slyddu og
djöfulskap, sama á hvaða árstíma.
Það gerir öll bústörf leiðinleg.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir
ykkur á jörðinni eftir fimm ár?
Ærlækur er jörð sem hefur allt til
að bera sem hægt væri að hugsa sér
til að stunda búskap. Af því leiðir
að þeim sem býr þar eru allir vegir
færir.
Hvaða skoðun hafið þið á
félagsmálum bænda? Við þekkjum
of lítið til félagsmála bænda til að
hafa mótað sterkar skoðanir á þeim.
Hvernig mun íslenskum
landbúnaði vegna í framtíðinni?
Einfalda svarið er vel. Það liggur
fyrir að starfsumhverfi er að
breytast og óvissa er um framhald
og það hvernig raunveruleika
landbúnaður mun búa við,
sérstaklega í sauðfjárrækt. Þeim
sem ná að laga sig að breyttum
aðstæðum og starfsumhverfi með
hökuna uppi og hugmyndaflug
til að nýta möguleikana á eftir að
vegna vel.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra
búvara? Ef útflutningur á að
vera mögulegur, verður hann að
vera á mörkuðum þar sem kúnninn
er til í að borga fyrir vöru vegna
uppruna og aðferða við framleiðslu.
Sérvara í „litlu magni“ á háu verði.
Magnútflutningur á lágvörumarkað
er glórulaus hugmynd.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Nýmjólk, án hennar er hungursneyð
yfirvofandi.
Hver er vinsælasti maturinn
á heimilinu? Heimagerð bjúgu
Sveins bónda hafa gengið hvað
best í mannskapinn.
Eftirminnilegasta atvikið
við bústörfin? Á okkar stutta
búskapartíma hefur margt
eftirminnilegt gerst og vafalítið á
hver fjölskyldumeðlimur sitt eigið
eftirminnilegasta atvik. Sveinn
fær að eiga svarið við þessari
spurningu: „Þegar við Sif unnum
verkefni í fæðingarhjálp saman
sem kröfðust lagni og afls. Sif lagði
til lagni, ég afl. Eftirminnilegust
eru slík tilvik þar sem lömb og
mæður lifðu og döfnuðu.“
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Jólamarkaður í Ásgarði í Álafosskvosinni:
Hápunktur ársins á handverkstæðinu
Hápunktur hvers árs í
Ásgarði, handverkstæðisins í
Álafosskvosinni í Mosfellsbæ,
er jólamarkaðurinn sem jafnan
er haldinn fyrstu helgina
í desember. Ásgarður er
verndaður vinnustaður, en
þar vinna 22 starfsmenn að
smíðum og listmunagerð
allan ársins hring,
undir handleiðslu níu
starfsmanna.
Jólamarkaðurinn var
haldinn laugardaginn 2.
desember síðastliðinn og
var fjöldi manns kominn
í Braggann, smiðjuna
þar sem munirnir voru
sýndir, fljótlega eftir
opnun á hádegi.
Kaffihlaðborð var
svo í sjálfum
Ásgarð inum,
steinsnar frá.
Hjörtur Garð arsson,
einn leiðbeinendanna
í Bragganum, sagði
gestum frá því sem fyrir
augu bar á markaðnum. „Á
trésmíðaverkstæðinu smíðum
við alls konar tréleikföng og
listmuni af ýmsum gerðum.
Við erum með ákveðna
línu í barnaleikföngum
sem við erum alltaf með
í framleiðslu og svo fyrir
þennan hátíðardag okkar
smíðum við líka sérstaka
jólamuni. Svo erum við líka með
listasmiðju og þar er unnið úr hornum,
leðri og kopar til dæmis – auk þess
sem þar er mikið ofið. Við höldum
okkur mest við íslenskt hráefni, en
koparinn og nautgripahornin þurfum
við reyndar að flytja inn þar sem fátt
er yfirleitt af slíku í boði hér á landi.
Við vinnum samt talsvert úr íslenskum
hreindýrahornum og eitthvað úr
hrútshornum.“
Þetta er aðaldagurinn en verslunin
opin flesta daga
„Þetta er aðaldagurinn okkar en
verslunin, sem stendur fyrir ofan
Ásgarð, er þó opin flesta daga,“ segir
Hjörtur Garðarsson. /smh
Góð aðsókn var á jólamarkaðinn í Ásgarði, enda margt fallegt og forvitnilegt þar að skoða. Myndir / smh
Ærlækur